08.05.1985
Efri deild: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4966 í B-deild Alþingistíðinda. (4208)
363. mál, lagmetisiðnaður
Frsm. meiri hl. (Björn Dagbjartsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir áliti meiri hl. iðnn. við frv. til l. um breyt. á lögum nr. 58 frá 4. júní 1981, um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetis, með síðari breytingum. Á þskj. 842 eru brtt. frá meiri hl. n. sem eru í tvennu lagi. Í fyrsta lagi er lagt til að 1. gr. frv. falli brott og í öðru lagi við 2. gr. að greinin orðist svo:
„Í stað „31. des. 1985“ í 13. gr. laganna (sbr. lög nr. 77/1983) komi: 31. des. 1988.“
Frv. það sem hér er til umræðu er víst vel þekkt meðal eldri og reyndari þm. Ég þekki það að nokkru leyti líka sem fyrrv. embættismaður. Megintilgangur þess er að framlengja gildandi lagaákvæði um einkarétt Sölustofnunar lagmetis á viðskiptum við Austur-Evrópu. Upphaflega gerði frv. ráð fyrir framlengingu gildistíma þessa einkaréttar um fimm ár og var í því sambandi vitnað til bréfaskrifta allra lagmetisverksmiðjanna. Síðast þegar þessi ákvæði voru framlengd var það gert til tveggja ára. Það kom reyndar fram í 1. umr. og í umræðum er síðast voru framlengd þessi ákvæði að ýmsum þótti hlutur viðskiptafrelsis heldur vera fyrir borð borinn. Því er svo sem ekki að neita, en hitt er rétt að í viðskiptum við t. d. Austur-Evrópu er síður en svo við venjulega viðskiptavini að eiga. Þeir skilja kannske ekki þetta mikla frelsi okkar hér. Þeir vildu sjálfsagt hafa eina allsherjar síldarútvegsnefnd, eða Prodintorg, að versla við og engan rugling.
Meiri hl. n. taldi ekki fært að hundsa beiðni allra framleiðenda innan Sölustofnunar lagmetis um framlengingu einkaréttar, en hins vegar voru skiptar skoðanir um það hvenær næsta „sólarlag“ skyldi verða eða endir þess gildistíma sem um er fjallað. Í þeim efnum var sæst á þrjú ár með tilliti til þess m. a. að aðstæður geta breyst á skemmri tíma en fimm árum og ekki síður með tilliti til þess að það getur þótt heppilegt að Sölustofnun lagmetisiðnaðarins, sem um er getið í grg. frv., taki við samningagerðinni.
Eins og segir í nál. bárust umsagnir frá Iðntæknistofnun Íslands og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins þar sem því var mótmælt að fulltrúar þessara stofnana skyldu felldir úr stjórn Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins, eins og gert var ráð fyrir í 1. gr. frv. Nm. voru sammála um að ekki þætti ástæða til þess að breyta ákvæðinu um skipan sjóðsins frá gildandi lögum. Eins og segir í 10. gr. laga nr. 58 frá 4. júní 1981 er snar þáttur í hlutverki Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins, með leyfi forseta, „að efla lagmetisiðnaðinn m. a. með því að stuðla að tæknilegri uppbyggingu, þróun vinnsluaðferða og vörutegunda og markaðsöflun erlendis.“
Með tilliti til þessa hlutverks þótti eðlilegt að fulltrúar þessara tæknistofnana ættu þar nokkuð um að véla. Því lagði meiri hl. n. til að 1. gr. frv. félli niður og sjóðsstjórnin stæði eftir óbreytt að skipan.