31.10.1984
Efri deild: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 632 í B-deild Alþingistíðinda. (422)

85. mál, rannsóknarnefnd til að rannsaka afskipti ráðherra og embættismanna af rekstri ólöglegra útvarpsstöðv

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Eins og hv. 3. þm. Norðurl. v. benti á í lokaorðum sínum er hér farið fram á að farin verði fullkomlega eðlileg og lögleg leið til að rannsaka embættisgerðir ráðh. og tengist það rekstri þeirra útvarpsstöðva sem í gang fóru eftir verkfall útvarpsstarfsmanna ríkisins og kallaðar hafa verið frjálst útvarp. Ég vil í fáum orðum skýra aðild mína að þessari þáltill. vegna þess að mínar ástæður kunna e. t, v. að vera örlítið aðrar en annarra sem að ályktuninni standa.

Menn hafa sagt hér: Við erum ekki að ræða um frjálst útvarp. Það kann að vera rétt í orði kveðnu. En ég tel samt sem áður, með tilliti til þeirra mála sem hér eru fram komin á þingi, mjög gagnlegt að afskipti ráðh. verði könnuð. Ég held að það hljóti að vera jafngagnlegt bæði fyrir ráðh. og þing, sérstaklega ef ráðherrarnir sjálfir telja ekkert að sínum afskipum, vegna þess að fram er komið á þingi frv. til útvarpslaga og það frv. hefur almennt verið kennt við útvarpsfrelsi. En ég tel að frv. sé ekki um frjálst útvarp að einu eða neinu leyti. Ég tel að það tengist að nokkru leyti undangengnum málum í eðli sínu.

Það er gert ráð fyrir því í því frv. sem fyrir liggur að kosin verði svokölluð útvarpsréttarnefnd af þingi, sjö menn eftir hverjar alþingiskosningar, og þá eru þeir kjörnir af flokkum þeim sem sitja á þingi í hlutfalli við stærð þeirra. Síðan er gert ráð fyrir að menntmrh. skipi formann og varaformann þessarar nefndar úr hópi nm. Þetta frv. gerir sem sé ráð fyrir mjög miklum afskiptum ríkisvaldsins af hinu frjálsa útvarpi og er það í anda þess sem á undan er gengið. Menn skulu athuga að frjálsu útvörpin sem af stað fóru, og þá sérstaklega annað þeirra, koma fram fyrir atbeina stærsta ríkisafskiptaflokks landsins, þess flokks sem taldi það hreint og beint vera hlutverk sitt að grípa inn í á þessum vettvangi þegar skapaðist glufa og upplýsa landsmenn um það sem væri að gerast í kringum þá.

Ég ætla ekki að fjölyrða mikið um lögmæti eða ólögmæti þessara útvarpsstöðva. Ég held að enginn maður efist um að þær hafi verið ólöglegar sem slíkar. Aftur á móti greinir menn á um hversu réttmætt var að koma slíkum útvarpsstöðvum upp. Ég fyrir mitt leyti tel það afskaplega eðlilegt þegar útvarp leggst af að menn reyni að bjarga sér sjálfir um slíka hluti og tel ekki að menn þurfi að verða neitt undrandi yfir því. Ég tel það aftur á móti ekkert sérstaklega eðlilegt þegar að því stendur stærsti stjórnmálaflokkur landsins. Ég vil aðeins benda á í því tilviki að ég efast um að umburðarlyndi manna hefði verið jafnmikið og það var þrátt fyrir allt ef hér hefðu verið á ferðinni einhverjir aðrir. T.d. var mjög algengt, þegar frjálsar útvarpsstöðvar voru að fara af stað úti í Evrópu fyrir 10–15 árum, að þær væru reknar af mjög róttæku vinstra fólki. Ég bið menn að hugleiða með sjálfum sér hvort umburðarlyndi manna hefði verið jafnmikið nú ef Fylkingin hefði orðið fyrst til að fara af stað með frjálst útvarp.

Ég skil reyndar ekki andstöðu ráðh. við þessa rannsókn né andstöðu annarra manna, sem hér hafa lýst henni, við hana því að ég tel að báðum aðilum sé það jafngagnlegt að fengin verði niðurstaða í þessu máli og það sem allra fyrst. Mér skilst af orðum ráðh. að þeir telji ekkert óeðlilegt við afskipti sín af þessu máli. Ef þeir eru þeirrar skoðunar, hreinir og óskiptir, skil ég ekki hvers vegna þeir hvetja ekki beinlínis sjálfir til þessarar rannsóknar.

Hv. 4. þm. Austurl. Tómas Árnason taldi að rannsókn þessi yrði að pólitískri sýningu. Það er landlægt í Framsfl. að þeir hafa ímugust á pólitík. Alltaf þegar framsóknarmenn hafa einhvern rökstuddan grun um að pólitísk umræða eigi að fara fram bregðast þeir mjög hart við og telja hana af því illa. Pólitísk umræða á að mati framsóknarmanna greinilega að fara fram í skúmaskotum, en ekki fyrir opnum. tjöldum, það er óviðeigandi. Ég held að menn sem hugsa þannig og skýra hugsanir sínar með þessum orðum dæmi sig sjálfir í þeirri umræðu. Afstaða þeirra til þess fyrirbæris sem kallast pólitík kemur mjög greinilega fram þegar menn segja það nánast berum orðum að slíkt eigi ekki að gerast nema einhvers staðar þar sem enginn sér eða heyrir til.

Ég tel að ef niðurstaða þessarar rannsóknar yrði sú að afskipti ráðh., afskipti embættismanna eða annarra aðila, og þá á ég við stjórnmálaafla, af frjálsum útvarpsstöðvum hafi verið óeðlileg, þá sé það mikli stuðningur við þá brtt. sem BJ hefur lagt fram við frv. til útvarpslaga þar sem við leggjum einfaldlega til að svokölluð útvarpsréttarnefnd verði ekki skipuð, það sé engin útvarpsréttarnefnd aðili að heimildum til útvarpsreksturs, heldur eigi menn þar eingöngu við fyrirtæki Pósts og síma um úthlutun sendirásar eða tíðni og síðan gildi landslög um ábyrgð útvarpsstöðva á rekstri sínum, en ekki allir þeir undarlegu lagakrókar sem búið er að setja fram í frv. til útvarpslaga um álíka kynlega hluti eins og það að útvarpsréttarnefnd eigi að hafa beint eftirlit eða umsögn um það hvers lags rekstrarform er á því fyrirtæki sem að útvarpsstöðinni stendur, að útvarpsstöðvarnar verði að gera útvarpsréttarnefnd grein fyrir dagskrárstefnunni sem fyrirhuguð er, einnig að láta í té dagskrárefni á böndum og tilkynna líka hverjir beri ábyrgð á útvarpsefninu. Eins og það gerist ekki af sjálfu sér með þeim aðilum sem að útvarpsstöðinni standa. Eins er það að þessi útvarpsréttarnefnd sé nokkurs konar pólitískur dómstóll og geti í raun og veru valið og hafnað hverjir það eru sem að frjálsu útvarpi mega standa. Þá er frjálst útvarp ekki til nema á pappírnum, að mínu mati, og verður það ekki fyrr en flokksvaldinu, sem við búum við hér á landi, er létt af í þessum efnum sem svo mörgum öðrum og einstaklingum gefið það frelsi sem alltaf er verið að lofa þeim, en aldrei staðið við.