08.05.1985
Efri deild: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4975 í B-deild Alþingistíðinda. (4225)
355. mál, starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Hér er vissulega komið að nokkru álitamáli, hvað gera eigi. Ég skal viðurkenna að vel mætti orða þetta á einhvern annan hátt en þarna er gert núna í sambandi við starfsréttindi og starfsheiti. Það kann vel að vera að n. hefði getað fundið eitthvert annað orðalag. En út af ummælum sem hér féllu varðandi brot á stjórnarskránni skv. því sem
Vinnuveitendasambandið sagði um þetta mál vildi ég geta um það að frá árinu 1971 hafa verið hér í gildi lög um tæknimenntaðar heilbrigðisstéttir og þar segir, með leyfi virðulegs forseta, í 5. gr.:
„Óheimilt er að ráða til heilbrigðistæknistarfa aðra en þá sem heilbrrh. hefur veitt löggildingu skv. lögum þessum og reglugerðum sem settar kunna að verða um heilbrigðistækna.“
Þannig orðalag er í fleiri lögum, en ég minni á þessi lög sérstaklega vegna þess að lög um starfsréttindi og starfsheiti heilbrigðisstétta taka við af þessum lögum frá 1971.