08.05.1985
Neðri deild: 65. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 4981 í B-deild Alþingistíðinda. (4249)
49. mál, vinnumiðlun
Frsm. (Friðrik Sophusson):
Herra forseti. Í meðförum hv. Ed. hefur frv. tekið nokkrum breytingum. Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að í ráðgjafarnefnd komi til viðbótar þeim sem um getur í 3. gr. laganna landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands.
Í öðru lagi hefur verið samþykkt brtt. Stefáns Valgeirssonar, sem var lögð fram til leiðréttingar á 6. gr. frv., og í þriðja lagi hefur verið gerð breyting á 17. gr., þar sem nú er kveðið á um það með skýrum hætti í lagagreininni að fyrirtækjum og einstaklingum sé heimilt að annast milligöngu um ráðningar starfsmanna, enda sé það gert á kostnað atvinnurekenda.
Ég hef haft samband við alla nm. í hv. félmn. Nd. og eftir þau viðtöl mæli ég með því að frv. verði samþykkt svo breytt, eins og það kom frá hv. Ed.