31.10.1984
Efri deild: 8. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 645 í B-deild Alþingistíðinda. (429)
85. mál, rannsóknarnefnd til að rannsaka afskipti ráðherra og embættismanna af rekstri ólöglegra útvarpsstöðv
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Virðulegi forseti. Rétt á meðan hv. 3. þm. Suðurl. lýkur símtali sínu ætlaði ég að nota tækifærið til að gera örfáar aths.
Það er ljóst að Gróa er þaulsætin yfir kaffibollanum hjá hv. 5. landsk. þm. og hefur greinilega haldið því að honum að enginn megi kæra lögbrot nema ráðherrar. Hv. þm. upplýsti það að í hans eigin kjördæmi hefðu að mér skilst þrjár ólöglegar kapalstöðvar starfað um árabil. Hann kveðst hafa vakið athygli á þessu á útvarpsráðsfundi og skilur svo ekkert í — (EG: Fundum.) Fundum. Ja, ég veit ekki hvenær hv. þm. vakti athygli á því síðast-og skilur svo ekkert í því að ekkert hafi í málinu gerst síðan, þ.e. að ekki hafi verið kært í málinu. Það má einna helst skilja á máli hv. þm. að hann telji að það sé vegna þess að ráðherrar eigi að framkvæma lögin. Ég vil upplýsa hv. þm. um það að hvaða löghlýðinn borgari sem er getur kært það athæfi sem ólöglegt er í þessu sambandi sem öðru, snúið sér til ríkissaksóknara ef því er að skipta. Og ef hv. þm. þykir það ámælisvert að hafa ekki gert það, þá er hann þar með að lýsa sök á hendur sjálfum sér, sök sem hann hefur borið allan þann tíma sem þessi starfsemi hefur farið fram. Þannig er nú löghlýðnin og réttarvarslan þar á bæ. (EG: Er hæstv. ráðh. að gefa í skyn að ég sé lögbrjótur?) Ég er að gefa í skyn að hv. þm. hafi ekki gert ráðstafanir til þess að láta framfylgja þeim lögum sem hann er að gagnrýna að ekki sé framfylgt. (EG: Ég gerði það hér á Alþingi með tilmælum til ráðh.) Hv. þm. hefur þetta vald í hendi sér sjálfur, að kæra slíkt ef honum sýnist svo, og hann á auk heldur sæti í útvarpsráði, í menntmn. þingsins, er formaður menningarmálanefndar Norðurlandaráðs og hefur öll skilyrði til þess að átta sig á hvað til hans friðar heyrir í menningarmálum í þessu landi og á öllum Norðurlöndum ef því er að skipta. Er kannske ástæðan sú að hv. þm. sem og ýmsum öðrum þm. þyki frelsið ekki hafa sömu þýðingu hvar sem er á landinu? Er öðruvísi frelsi í Vesturlandskjördæmi en í Reykjavík eða annars staðar? Eða hafa annarra flokka menn rétt til annars konar frelsis en sjálfstæðismenn ef því væri að skipta? Eða er það kannske svo að aðalheimildarmaður hv. þm. eða jafnvel hann sjálfur eigi einhvern hlut að leiðarakorni sem birtist í NT nú fyrir held ég tveim dögum og hljóðar svo m.a., með leyfi hæstv. forseta:
„Í því „frelsisæði“ sem gengið hefur yfir landið á síðustu misserum hefur lítið borið á andspyrnu, enda erfitt að vera á móti „tíðarandanum“, segir í greininni.
Það reynist mörgum erfitt þessa dagana, a.m.k. þeim sem vefja það fyrir sér að afgreiða jafnsjálfsagða réttarbót og breytingu á útvarpslögunum. — Áfram held ég, með leyfi hæstv. forseta:
„Það er þó full ástæða til að vara fólk við að fara of geyst inn í faðm frelsisins, en vinna frekar markvisst og skipulega að þeirri för í þeim tilfellum þegar við á.“
Svona hljóðar hluti af þessum leiðara. Ég held næstum því að ég verði að lesa allan þennan leiðarastúf. Hann er svo skemmtilegur að ég held að þeir sem hv. þm. kallar að mig minnir „frjálshyggjugaurana“ ættu að átta sig á þessum leiðara, stækka hann, ramma hann inn og hafa hann fyrir veggspjald til þess að menn áttuðu sig á því hver þörf væri á því að innleiða sjálfsagt frelsi í landinu innan ramma laga siðaðra manna. — Í leiðaranum segir áfram:
„Íslendingar þurfa ekki annað en að líta á staðreyndirnar í kringum sig til að sannfærast um réttmæti þessarar varfærni. Á launamarkaðinum ríkja heiftúðugustu deilur síðustu áratuga vegna „frjálsra“ samninga, á peningamarkaðinum ríkja hæstu raunvextir heims vegna „frjálsra“ vaxta og á vörumarkaðinum sópa milliliðirnir til sín fjármagni vegna „frjálsrar“ álagningar. Hvað síðasta dæmið varðar má geta þess að það hefur ævinlega verið erfitt að dæma um ágæti þess að innleiða frelsi til verslunarálagningar,“ — Ég skýt hér inn í tilvitnunina að það eru margir fyrirvarar í greininni. Þar er fyrirvari á eftir hverri fullyrðingu. En ég held áfram lestrinum: „þar sem ekki hefur verið hægt að fullyrða með neinu öryggi hvað hefði gerst ef frelsið hefði ekki verið innieitt. Sem betur fer eru undantekningar frá reglunni, t.d. við verðlagningu á landbúnaðarafurðum. Þar hefur verið stuðst við strangar reglur sem er hægt að nota til að bera saman verðlagningu með eða án álagningarfrelsis.
Í frétt á bls. 3 í NT í dag er tekið athyglisvert dæmi frá Verðlagsstofnun um þetta. Álagning á lambakjöti, sem var gefin frjáls í febr. s.l., hefur haft í för með sér allt að 20% hærra verð til neytenda en ef sexmannanefndin hefði notað reglur sínar og 8% að meðaltali.
Þessar niðurstöður Verðlagsstofnunar ættu að sannfæra menn um að frelsi til álagningar leiðir ekki endilega til lækkaðs vöruverðs.“ — Ekki endilega. „Hér er þó ekki verið að leggjast gegn slíku frelsi, því það hefur áreiðanlega eitthvað gott í för með sér. Hér er einfaldlega verið að vara menn við þeim eilífðar áróðri frjálshyggjumanna að frumskógarfrelsið sé einungis af hinu góða fyrir alla. Staðreyndirnar tala öðru máli.“
Baráttumenn frumskógafrelsis eru nú kannske fáir á okkar kalda landi, en hinir eru margir sem eiga frelsið að hugsjón og berjast fyrir því ótrauðir, og það vil ég taka fram, þegar verið er að reyna að koma óorði á formann Sjálfstfl. í sambandi við þau mál sem verið hafa til umr. hér undanfarið, að þau ummæli hygg ég að beri vott um að aðrir flokkar í landinu öfundi okkur af þeirri dugandi ungu forustu sem við höfum í Sjálfstfl. Sjálfstfl. hefur nefnilega ævinlega haft vit á því að hafa í forustu menn síns tíma og það er þess vegna sem Sjálfstfl. er svona stór. Sjálfstfl. staðnar ekki í kreddum, Sjálfstfl. treystir á unga hæfileikamenn og lýtur þeirra forustu. Það held ég að eigi eftir að koma í ljós að verði okkar flokki til gæfu.
Ég veit það vel að virðulegur og góður skólamaður, Þorgeir 1bsen sem vitnað var til hér áðan, notar orð eins og góðum uppalendum er títt þegar þeir vanda um við ungt fólk og tala um gullastokk þegar þeir ræða um starfsvettvang þess. Það eru þau orð sem koma fram í viðtalinu við Þorgeir Ibsen. En hitt veit ég að honum er einungis velvilji í hug og hann er meðal þeirra manna sem einmitt treysta dugandi og heiðarlegu ungu fólki eins og þeir menn eru sem eru í forustu Sjálfstfl.
Ég skil það ósköp vel að hv. stjórnarandstæðingar vilja reyna að nota sér til einhvers framdráttar skýrslu Radíóeftirlitsins. Ég skil það ósköp vel að þarna halda þeir að e.t.v. sé einhver höggstaður. Það skyldi þó aldrei vera að ráðherrar hafi staðið í þessum rekstri. Það liggur alveg ljóst fyrir að svo er ekki. Í ræðu minni þegar þessi till. var til umr. nú í síðustu viku, þá gerði ég grein fyrir því á hvern hátt rangar voru þær staðhæfingar og dylgjur sem menn höfðu uppi haft í sambandi við mín ummæli um þetta mál. Mér dettur ekki í hug, hv. 5. þm. Vesturl., — (Gripið fram í.) Landskjörinn, rétt, en kjördæmið er Vesturland, — mér dettur ekki í hug að láta slíkar dylgjur hræða mig eitt augnablik frá því að lýsa yfir eindregnu fylgi mínu við meira frelsi í útvarpsrekstri og því að berjast fyrir því. Mér þykir það hugleysi af mönnum sem þykjast vera því hlynntir og hafa á árum áður léð þeim málum fylgi sitt að gera ýmislegt til þess að þvælast fyrir framgangi jafnsjálfsagðra mála og þá þess heldur þegar þeir hafa flutt innfjálgar ræður á Alþingi, 1981 að vísu og kannske seinna, um að sjálfsagt sé að breyta lögum þannig að kapalstöðvar í þeirra eigin kjördæmi yrðu löglegar. Þeir yrðu þá að hlíta því að slíkt yrði löglegt jafnvel í öðrum kjördæmum líka og jafnvel þó að þeim líkuðu ekki skoðanir þeirra sem að slíkum stöðvum stæðu.
Þetta finnst mér ástæða til þess að taka fram því að svo dæmalaus finnst mér málflutningurinn fyrir þessari till. Hitt er svo auðvitað að deildin tekur afstöðu til þess hvort hún vill samþykkja till. um sérstaka nefnd til að rannsaka hluti sem liggja ljósir fyrir, sem eru opinberir. Það er ekki nokkurt leyndarmál í sambandi við þessa hluti af hálfu ráðh. svo að ég viti til. Þau skjöl og bréf, sem um þetta hafa farið fram og aftur í menntmrn., eru opinber skjöl og það er alveg sjálfsagt að leggja þau fram. Það þarf ekki einu sinni neina nefnd. Öll deildin getur fengið það ef henni sýnist svo, enda hygg ég nú að hv. 5. landsk. þm. hafi séð flest af því í útvarpsráði því að þeim málum, umsóknum um leyfi fyrir útvarpsstöðvum og kapalstöðvum, hef ég vísað til útvarpsins til umfjöllunar. Ríkisútvarpið hefur þann einkarétt að reka útvarp, en ríkisstj. hefur það ekki. Eftir útvarpslögum sem giltu fyrir 1971 hafði ríkisstj. þann rétt og þá munu vera dæmi til þess að ráðherrar hafi veitt slík leyfi. En eftir þann tíma er það Ríkisútvarpið sjálft sem hefur þann rétt og dæmi eru til þess að útvarpsstjóri hafi veitt slík leyfi. Þess vegna tel ég það eðlilega meðferð málsins að útvarpið hafi það forræði á meðan lög eru svo sem þau eru nú.
Reyndar er nú hv. 3. þm. Suðurl. fyrir nokkru búinn með símtal sitt og ég hafði nú ekki ætlað að tala miklu lengur, en því olli sú ástæða að ég mátti til með að koma á framfæri frelsishugsjóninni sem einhver hefur fengið ritstjórn þess ágæta blaðs NT til að birta í leiðaradálki.