12.10.1984
Sameinað þing: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 173 í B-deild Alþingistíðinda. (43)

Skýrsla ríkisstjórnarinnar um kjaradeilurnar

Salome Þorkelsdóttir:

Herra forseti. Það er e.t.v. að bera í bakkafullan lækinn að blanda sér í þessar umræður um kjaradeiluna nú. Margt er búið að segja um þessi mál, margt sem hægt væri að taka undir, en einnig annað sem vert væri að gera athugasemdir við. En það voru miklu fremur umræður þær sem fram fóru í gær og yfirbragð á þeim sem hvöttu mig til að taka til máls heldur en það yfirbragð sem hefur að mestu verið á umr. í dag.

Það er ekki örgrannt um að öðru hverju hafi það hvarflað um hugann í gær að áheyrendur á þingpöllum hefðu farið húsavillt og væru komnir í leikhúsið við Tjörnina að hlusta og horfa á gamanleik en ekki í æðstu stofnun þjóðarinnar, löggjafarsamkomu á Alþingi Íslendinga þar sem þar til kjörnir fulltrúar þjóðarinnar eru að kljást við svo alvarleg mál sem raun ber vitni, kjaradeilur sem hafa þróast þannig að verkföll opinberra starfsmanna hafa nú staðið í rúma viku, engum til ávinnings en öllum til tjóns. Það er dapurleg staðreynd að til slíks þurfi að koma, enn dapurlegra fyrir þá sök að fjöldi þess fólks, sem tekur þátt í þessu verkfalli, vill að þessi mál séu leyst með friði við samningaborðið án harkalegra verkfallsaðgerða, enda er það svo að verkfallsaðgerðir bitna yfirleitt á þeim sem síst mega við því.

Það getur varla talist greiða fyrir samningum að stöðva strætisvagnaferðir. Á hverjum bitnar það? Já, það bitnar á börnum og unglingum og öldruðu fólki og lasburða sem ekki hefur önnur samgöngutæki til að komast leiðar sinnar. Sumir eiga að vísu góða að, sem geta hjálpað við slíkar aðstæður, en við skulum muna að þeir eru margir sem ekki eru þannig settir, eru einstæðingar, lifa í einsemd. Einmitt þetta sama fólk verður verst fyrir barðinu á lokun útvarps og sjónvarps. Það er þetta sama fólk sem þarf að hafa útvarpið og sjónvarpið til að tengja það við umheiminn og veita því öryggi. Dettur einhverjum í hug að það greiði fyrir samningum að svipta það þessum mannréttindum, ferðafrelsi og fréttaþjónustu? Það var ekki að ófyrirsynju að ýmsir gripu til þess örþrifaráðs að setja upp úfvarpsstöðvar sem hafa orðið meginefnið í þessum kjaradeiluumræðum. Ég ætla ekki, herra forseti, að tefja umr. með því að fjölyrða um það mál, en vil hins vegar fagna því að hæstv. menntmrh. hefur nú lagt fram frv. til útvarpslaga og þess er að vænta að menn hafi nú þegar myndað sér skoðun í þeim efnum, byggða á þeirri reynslu, sem við höfum upplifað undanfarið, til hvers það getur leitt að hafa aðeins ríkisrekið útvarp og sjónvarp.

Ég get ekki neitað því að mér hefur fundist menn vera farnir að missa sjónar á tilgangi verkfalla þegar svo er komið að mannúðarsjónarmiðin eru ekki lengur í farangrinum. Hvaða skaða gat það t.d. haft á samningaviðræður þó að þeir sem um sárt eiga að binda vegna ástvinamissis fengju að koma dánartilkynningum í útvarpið? Að synja frómri ósk biskupsins í þeim efnum var vægast sagt hryggilegt og þeim mun gleðilegra er það að nú skuli vera búið að leysa það mál. Það gefur von um að fleiri góðar fréttir fari að berast um að mannleg viðhorf fái að ráða úrslitum í deilumálum.

Þetta er í annað sinn sem verkfall opinberra starfsmanna dynur yfir. Flestum er í minni fyrri kjaradellan og afleiðingar hennar, en þá átti Sjálfstfl. einnig sæti í ríkisstjórn. Það kemur óneitanlega í hugann að ekki hefur þótt ástæða til verkfalla síðan fyrr en nú þegar Sjálfstfl. er aftur kominn í ríkisstjórn. Ég saknaði þess í ræðu hv. 3. þm. Reykv., þegar hann fór á kostum í ræðustól í gær, að hann nefndi ekki nú að það væru slétt skipti að skerða kaup og halda niðri verðbólgu, eins og hann orðaði það svo hnyttilega þegar hann var í síðustu ríkisstjórn. Það er eins og mig minni að hann hafi einnig bent á að ekki væri hægt að hækka laun þar sem ekki væri meira til skiptanna. Þetta yrðu menn að skilja og þeir gerðu það, það urðu engin verkföll, bara slétt skipti eftir 14 kaupskerðingar. Nú er öldin önnur, komin ný ríkisstjórn sem fékk það hlutverk að taka við þrotabúi, að taka við sökkvandi þjóðarskútu, taka við neyðarástandi í efnahagsmálum þjóðarinnar.

Það er rétt, sem fram hefur komið í umr., að núverandi ríkisstj. hafði mikinn meðbyr þegar hún tók við og sú krafa að tekist yrði á við efnahagsvandann, verðbólguna sem komin var þá í þriggja stafa tölu, var mjög hávær frá kjósendum. Skoðanakannanir, sem margir eru farnir að trúa á, staðfestu þetta. Það hefur einnig komið fram í síðustu könnunum að meðbyrinn er ekki sá sami og í byrjun, sem engum kemur á óvart. En ekki er það nú svo slæmt að um hrun sé að ræða, eins og stjórnarandstaðan hefur haldið hér fram, það er af og frá. Auðvitað eru það gleðitíðindi fyrir stjórnarandstöðu ef fylgi ríkisstjórnar minnkar og vonbrigði fyrir ríkisstj., hvort tveggja eru mannleg viðbrögð. En vonbrigðin nú eru þó fyrst og fremst fólgin í því ef ríkisstj. tekst ekki að halda verki sínu áfram sem er rétt aðeins að byrja. Hún hefur aðeins haft rúmt ár eða 16 mánuði til að koma þjóðinni út úr þeim gífurlega vanda sem við blasti. Á þeim tíma hefur árangurinn í baráttunni við verðbólguna verið stórkostlegur, því ber enginn á móti, en sá árangur hefur vissulega kallað á fórnir hjá almenningi, sem sumir geta fært, en aðrir ekki. Nú blasir við að taka næsta skrefið, halda verðbólgunni í skefjum, tryggja atvinnuöryggi og bæta þjóðarhag um leið og heimilanna í landinu.

Við vitum það ósköp vel, sem sitjum hér á hv. Alþingi, að svigrúm til launahækkana hjá opinberum starfsmönnum er lítið. Það hefur nú þegar verið skorið niður á öllum sviðum ríkisgeirans og í mörgum efnum, okkur öllum til sárra vonbrigða. Samt verður að gera betur og finna leiðir til að leysa kjaradeiluna. Þá verður væntanlega skilningur hér á hv. Alþingi og innan kerfisins ef til meiri sparnaðar þarf að koma. Ég efast ekki um að það muni takast ef allir taka höndum saman og viljinn er fyrir hendi.

Við þessar erfiðu aðstæður í efnahagsmálum hlýtur athyglin fyrst og fremst að beinast að því að hækka lægstu launin, sem allir eru sammála um að verður að gera. En með hvaða hætti á það að gerast? Um það snýst málið. Kröfur BSRB eru 30% launahækkun. Er t.d. nauðsynlegt að 15 þús. kr. mánaðarlaun hækki um 30% eða um 4–5 þús. krónur? Ég efast ekki um að allir eru mér sammála að svo sé. Er líka nauðsynlegt að 40 þús. kr. mánaðarlaun hækki um 30%, þ.e. um 12 þús. kr.? Ég tel svo ekki vera við núverandi aðstæður. Slíkar hækkanir verða að bíða betri tíma, uns betur árar. Þess í stað á að lækka tekjuskattinn sem yrði raunhæf kjarabót. Einnig þarf að koma til lækkun útsvars, fella það niður af lægri tekjum sem bera útsvar á annað borð, en eins og allir vita er útsvarið brúttóskattur og það kemur oft illa við þá sem lægstu tekjurnar hafa og eru útsvarsskyldar.

Þegar umræður um kjarasamninga eru á dagskrá leggja forustumenn áherslu á að bæta kjör þeirra verst settu, lægst launuðu. Í reynd hefur niðurstaðan oftast orðið önnur. Það er ekki örgrannt um að það hvarfli að manni að umhyggjan fyrir þeim lægst launuðu sé notuð sem yfirskin. Nú er hins vegar tækifærið til að sýna í verki að menn vilji leysa þessi mál þannig að þegar upp er staðið hafi svigrúmið verið notað til að hækka lægstu launin og bæta kjör annarra með skattalækkunum. Þannig er von til þess að um raunhæfar kjarabætur verði að ræða og að verðbólgunni verði jafnframt haldið í skefjum.

Það er vitað að láglaunastéttir innan BSRB eru fjölmennar og það er engin tilviljun að einmitt í þessum stéttum eru konur fjölmennastar, í heilbrigðisstéttunum og kennarastéttinni. Ég fagna þeirri umræðu sem hér hefur farið fram um kjör kennara. Ekki síst fagna ég þeim upplýsingum, sem fram komu í ræðu hæstv. menntmrh. í gærkveldi, um að kjör kennara verði tekin til endurskoðunar frá grunni, og þá ber að fagna því að hæstv. menntmrh. hefur nú þegar fengið stuðning frá Kvennalistanum sem hér hefur lagt fram till. til þál. um sama efni. Það væri freistandi að fara fleiri orðum um þýðingu þess að bæta kjör kennara en verður að bíða betri tíma.

Herra forseti. Mál mitt er orðið nokkru lengra en til stóð. Það hefði vissulega verið freistandi að koma inn á ýmis atriði, sem fram hafa komið í umr. hér, og gera athugasemdir við eitt og annað í máli stjórnarandstöðunnar, en það þjónar litlum tilgangi að karpa um keisarans skegg. Ég sleppi því.

Ég sagði í upphafi að það hefði hvarflað um huga minn í gær að menn hefðu villst á húsum þegar hlátrasköllin heyrðust frá þingpöllum undir ræðu stjórnarandstöðuþingmanna. Vissulega er gott að geta brosað á erfiðum stundum, annars væri illa fyrir okkur komið. Við vitum að það er stundum stutt á milli hláturs og gráturs og það er engum hlátur í huga um þessar mundir sem nauðugir viljugir eru nú í verkfalli. Ég er þó sannfærð um að við munum taka höndum saman, stjórn og stjórnarandstaða, til að leysa þessi vandamál því að öll berum við fyrir brjósti hag íslenskra heimila og þjóðarbús.