09.05.1985
Efri deild: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5028 í B-deild Alþingistíðinda. (4304)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Karl Steinar Guðnason:

Virðulegi forseti. Þetta hafa verið fróðlegar umr. sem farið hafa fram um Verðlagsráðið, einkum um þá brtt. sem þm. BJ. hafa flutt hér. Ég skil mjög vel þá hugsun sem þar er á ferðinni, að vilja breyta til og brydda upp á einhverju nýju. En það dugar ekki að koma með till. um eitthvað nýtt ef menn finna ekki svör við því hvernig á að framkvæma það sem framhaldið býður upp á. Ég óttast það — það er byggt á reynslu — að verði farið út í fyrra samkomulag eigi það sér stað að menn ganga til samninga eins og gerðist hér áður fyrr og flotinn var í höfn í einn, tvo mánuði þegar besta veiðitímabilið var. Það gerðust ætíð þeir hlutir að ríkisvaldið kom til skjalanna þegar samningsaðilar höfðu komið sér saman. Það sem var öðru vísi en nú tíðkast út af fiskverðinu var það að þjóðarbúið tapaði svo og svo miklu og varð fátækara vegna þess að svona aðferðir voru notaðar.

Ég fullyrði að það fyrirkomulag sem er nú er betra en fyrra fyrirkomulag. Ég vil ógjarnan hverfa frá því nema sýnt sé fram á að hægt sé að hafa þetta eftir þessum frjálsu leiðum sem einhvers staðar eru úti í loftinu. Ég er viss um að það er hægt að hafa á einstökum stöðum hér á Suðvesturlandi frjálsan markað. En ef við hugsum um landið allt held ég að það sé óframkvæmanlegt við þær aðstæður sem við búum við.

Menn segja það ekki í fullri alvöru hér á Alþingi að ef óhagstætt er að veiða karfa eða einhverja fisktegund hætti menn því bara meðan þúsundir verkafólks í landi bíða eftir vinnu, meðan þúsundir í landinu óska eftir því að hafa eitthvað til lífsviðurværis. Þær leiðir hafa verið notaðar með því að grípa til þess vonda ráðs sem hv. flm. þessarar brtt. hefur gagnrýnt. Það hefur jafnað til verðinu á þessum fisktegundum sem gert hefur það kleift að veiða fisktegundir sem ella væru óarðbærar. Ég verð að játa það að ég tel það vera af því góða að koma á vissum stöðugleika í þessum efnum.

Ég lýsi því yfir — eins og reyndar aðrir þm. hafa gert hér — að ég vil mjög gjarnan skoða nýjar leiðir í þessum efnum. Ég vil mjög gjarnan að það komist á meira frelsi. En á meðan við vitum ekki hvað á að taka við en á bara að vísa á lögmál frumskógarins, á bara að vísa til eldri tíma, gamals forms sem er úrelt, þá er ég ekki tilbúinn til þess að samþykkja svona brtt. Endirinn skyldi í upphafi skoða.

Hér var rætt aðeins um gengisfellingar og það að gengisfellingar kæmu oft á eftir fiskverðsákvörðun. Breytist það samhengi sem þar er á milli við það að oddamaður er tekinn út? Það breytist ekki neitt. Hitt er annað mál að menn verða að þekkja það hér í Alþingi að gengið fer ekki eftir einföldum ákvörðunum í landi. Það er þorskurinn, það er verðið á þorskinum, það er verðið á afurðunum erlendis, sem ræður því hvert gengið er í landinu. Það eru fiskveiðarnar sem stjórna genginu en ekki einhverjir spekúlantar úti í bæ. Þannig er hið íslenska þjóðfélag sett saman.

Ég óttast að ef af þessu yrði og einhverjir yrðu til þess að trúa því að hægt væri bara með einu pennastriki að breyta þessu yrði það fyrst og fremst til þess að útvegsmenn færu að hætti arkitekta, eins og kom fram hér áðan, og lögfræðingar o. fl., auglýstu hvert fiskverðið ætti að vera og síðan yrðu sjómennirnir og verkafólkið að una við molana sem þar fengjust. Á Íslandi er málunum þannig fyrir komið ef menn vita það ekki, að í 90% tilvikum er það sami aðilinn sem á útgerðina og fiskvinnsluna. Þetta er því ekkert einfalt mál einmitt þess vegna, það gerir þetta mál öllu erfiðara. (StB: Hverju breytir það?) Það breytir því hvort maður er að semja við sjálfan sig eða ekki og það breytir því hvaða kjör landverkafólk og sjómenn hafa. Þeir koma ekkert nálægt þessu, ekki frekar en neytandinn þegar lögfræðingur eða arkitektinn auglýsir sinn taxta.