09.05.1985
Efri deild: 69. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5029 í B-deild Alþingistíðinda. (4305)
209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins
Jón Kristjánsson:
Virðulegi forseti. Ég mun ekki lengja þessa umr. mikið en fyrst menn eru farnir að lýsa hér almennt afstöðu sinni til þeirrar brtt. sem hér um ræðir vil ég leggja örfá orð í belg.
Ég vil eindregið taka undir það sem hér kom fram hjá hv. 3. þm. Vesturl. að þær gengisfellingar, sem hafa verið á undanförnum árum, eru ekki vegna sjávarútvegsins heldur hefur uppsafnaður vandi í landinu komið þar til. Gengisfellingar stafa ekki af þessu kerfi sem við höfum hér. Ég er eindregið andsnúinn því að fella niður það kerfi sem hér um ræðir, breyta breytinganna vegna án þess að vita nokkuð hvað við fáum í staðinn og leiða lögmál framskógarins inn í verðlagningu sjávarafurða. Verðlagningin hefur beinst að því, eins og kom hér fram hjá síðasta ræðumanni, að jafna atvinnu um landið, að fiskveiðar geti gengið klakklaust fyrir sig. Jafnvel þó að það séu ekki viðunandi verð í svipinn á einstökum tegundum dettur ekki nokkrum manni í hug að hætta að veiða eins og kom hér fram í ræðu hv. 8. þm. Reykv. áðan. Ég skil satt að segja ekkert í að menn skuli fara með svona yfirlýsingar hér úr ræðustól, að menn eigi að hætta að veiða hér fisk og leiða lögmál frumskógarins inn í verðlagningu sjávarafurða. Ég er því á móti þeirri brtt. sem hér um ræðir.