09.05.1985
Neðri deild: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5034 í B-deild Alþingistíðinda. (4329)
47. mál, barnalög
Frsm. minni hl. (Guðrún Helgadóttir):
Herra forseti. Minni hl. n., hv. þm. Guðmundur Einarsson og ég, teljum enga ástæðu til að vísa frv. því sem fyrir liggur á þskj. 47 til ríkisstj., enda hefur það sjaldnast mikla þýðingu.
Hér er um að ræða leiðréttingarmál sem er sjálfsagt og réttmætt og varðar jöfnun réttar íslenskra barna til náms og starfsþjálfunar við sérstakar kringumstæður og jafnframt til aðstoðar við einstæða foreldra vegna skírnar barns, fermingar, vegna sjúkdóms, greftrunar og annars þess háttar.
Barnalögin frá 15. apríl 1981 voru um margt góð og rétt lög sem jöfnuðu rétt svokallaðra „skilgetinna“ og „óskilgetinna“ barna til lífs og starfs. Eitt af ákvæðum þeirra var lenging framfærsluskyldu þess foreldris, sem barnið býr ekki hjá, til 18 ára aldurs og heimildarákvæði var sett fyrir frekari stuðningi, ef barnið var í námi eða starfsþjálfun allt til 20 ára aldurs. Umgengnisréttur foreldra var jafnframt rýmkaður og allur andi laganna er sá að samskipti barns og beggja foreldra þess verði sem eðlilegastur hvort sem foreldrarnir búa saman eða ekki. Skyldur þeirra við börn sín væru hinar sömu eftir því sem unnt væri.
Þáverandi hæstv. dómsmrh., Friðjón Þórðarson, sagði svo við framsögu fyrir frv. til barnalaga, með leyfi forseta:
„Það er augljóst, að ekki er horfið að þessari hækkun aldursmarks eingöngu til samræmis við lagaákvæði í nágrannalöndum. Hér ráða fyrst og fremst breytingar í þjóðfélagi okkar. Skólaganga barna og unglinga lengist jafnt og þétt og börn dveljast af þeim sökum lengur en áður hjá foreldri, þrátt fyrir gamlar hefðir um að menn fari ungir út á vinnumarkað. Önnur ákvæði í frv. veita heimild til framlengingar á framfærsluskyldu allt til 24 ára aldurs vegna námsástæðna eða starfsþjálfunar. Hafa verður í huga að hér er um undantekningarákvæði að ræða sem færu eftir fjölskylduaðstæðum og efnahag.“
Þetta aldursmark, 24 ár, náði ekki fram að ganga, heldur var bundið við 20. Enn fremur sagði þáverandi hæstv. dómsmrh. í sömu framsögu:
„Það er eitt af einkennum frv., að reynt er að láta í sem flestum efnum reglur um forsjá og framfærslu vera hinar sömu og ákvæðið um þær í einu lagi um skilgetin og óskilgetin börn. Þessu fylgir jafnframt að föður óskilgetins barns er ætlaður mun meiri réttur og skyldur bæði um forsjá og umgengni heldur en eftir gildandi lögum. Í ýmsum efnum eru í frv. ítarlegri reglur en í gildandi lögum um úrlausn vandamála í sambandi við stöðu barna við samvistarslit foreldra, hvort heldur eftir hjúskap eða óvígðri sambúð.“
Þetta sagði þáverandi hæstv. dómsmrh., Friðjón Þórðarson, þegar hann mælti fyrir barnalögum fyrir örfáum árum.
Barnalögin voru um margt vel unnin. En engin lög eru fullkomin. Á þessum lögum hefur komið fram galli sem auðvelt er að leiðrétta. Og til þess er frv. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur flutt.
Í 17. og 19. gr. barnalaga, sem samþykkt voru á Alþingi 1. apríl 1981, voru sett ákvæði um framlag frá meðlagskyldum aðila til menntunar og starfsþjálfunar barns frá 18 ára aldri. Við setningu laganna var ekki hugað að því að tryggja sambærilegan rétt í þeim tilvikum þegar framfærsluskyldur aðili er látinn eða af öðrum ástæðum ófær um að taka á sig slíkar greiðslur og Tryggingastofnun ríkisins greiðir barnalífeyri í stað meðlags. Frv. er flutt til að leiðrétta þetta.
Brtt. sem liggur frammi á þskj. 89 og ég hef flutt er til þess fram komin að þau önnur börn, sem ekki njóta þessa sama réttar skv. barnalögum, öðlist hann einnig. Ég tók ekki eftir þessum galla í barnalögum fyrr en frv. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur var flutt. Þessi börn eru börn öryrkja og ellilífeyrisþega sem ekki hafa annan framfærslulífeyri en bætur almannatrygginga. En það skal tekið fram að einnig um þessa hópa er hér um að ræða heimildarákvæði og hvert einstakt tilvik verður að úrskurðast af valdsmanni á hverjum stað.
Í 71. gr. stjórnarskrárinnar segir svo, með leyfi forseta:
„Hafi foreldrar eigi efni á að fræða sjálf börn sín eða séu börnin munaðarlaus og öreigar, er skylt að sjá þeim fyrir uppfræðingu og framfæri af almannafé.“
Svo segir í stjórnarskránni. Löggjafanum ber að fylgja eftir ákvæðum stjórnarskrárinnar með setningu laga í anda hennar. Hafi löggjafanum yfirsést í því efni er siðferðileg skylda hans að leiðrétta það. Frv. það sem hér er fjallað um er flutt til að leiðrétta ágalla barnalaga er varða nokkurn hóp ungmenna í landinu. Því er eðlileg og sjálfsögð skylda Alþingis að samþykkja frv. Þess skal getið að hagsmunasamtök þeirra einstaklinga sem hér um ræðir, Félag einstæðra foreldra og þing Sjálfsbjargar 1984, hafa fengið frv. til umsagnar og hafa að sjálfsögðu skorað á Alþingi að veita frv. og brtt. brautargengi.
Í bréfi formanns Félags einstæðra foreldra til formanns allshn. hv. Nd., Gunnars G. Schram, dags. 15. apríl s. l., segir m. a., með leyfi forseta:
„Stjórn Félags einstæðra foreldra hefur kynnt sér nál. meiri hl. og minni hl. allshn. Alþingis um frv. til laga um breytingar á barnalögum nr. 9 frá 15. apríl 1981. Eins og fram kemur hjá báðum sendi Félag einstæðra foreldra umsögn um málið og lagði til að þær breytingar á barnalögunum sem hér um ræðir verði samþykktar.
Stjórn Félags einstæðra foreldra telur það fráleita afgreiðslu að senda málið til ríkisstj. Sú röksemd að heildarendurskoðun fari nú fram á almannatryggingalöggjöfinni, er að okkar dómi harla léttvæg. Sú endurskoðun hefur staðið yfir á einn eða annan hátt í áratugi. Hins vegar er hér um svo brýnt réttlætismál að ræða að Félag einstæðra foreldra átelur allt það sem gæti orðið til þess að tefja málið og drepa því á dreif.
Hæstv. nm. hljóta að sjá að það er skylda Alþingis að leiðrétta þá mismunun sem hefur verið með tilliti til barnalífeyris þegar foreldri er látið og hefur viðgengist. Í samtölum við alþm. frá því barnalögin voru samþykkt og menn áttuðu sig á þessari gloppu hefur verið talað um að bæta hana snarlega.“
Undir þessi orð viljum við hv. þm. Guðmundur Einarsson taka. Það er óþolandi, og ég vil endurtaka það, það er óþolandi að löggjafinn lítilsvirði svo tilraunir hv. þm., hvar í flokki sem þeir standa, til að bæta augljósa ágalla í löggjöf þjóðarinnar sem varða beint hag þegnanna að til þess sé fremur litið hvort stjórnar eða stjórnarandstöðuþm. séu flutningsmenn frv. Ljóst er að stjórnarandstöðuþm. ber að virða gerð fjárlög í stórum dráttum eftir að þau hafa verið samþykkt og hér er það gert. Ekki er hér um að ræða stórkostleg fjárútlát úr ríkissjóði og svo sannarlega fáránlega lágar upphæðir í samanburði við það fé sem forréttindastéttir þjóðfélagsins fá greitt úr sameiginlegum sjóðum í launaauka eða til bifreiðakaupa.
Alþingi Íslendinga er ekki til þess eins að setja lög um skammtímalausnir efnahagsmála, heldur einnig til að tryggja landsmönnum jafnan rétt til lífs og starfs með löggjöf til lengri tíma. Minni hl. n. skorar á hv. þm. deildarinnar að taka hér af skarið og taka sjálfstæða ákvörðun í þessu máli og samþykkja frv. hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur og brtt. þá sem fyrir liggur á þskj. 89 og varðar hinn hópinn sem út undan varð við setningu barnalaga. Enginn aðspurður hefur efast um réttmæti þessa máls og ég fullvissa hv. þm. um að þeir hafa enga ástæðu til þess heldur. Rétt mál og sanngjarnt ber að samþykkja hver sem málið flytur.
Það er til vansæmdar, herra forseti, ef þetta mál nær ekki fram að ganga hér og það verður afgreitt með því að vísa því til ríkisstj. Hér er um leiðréttingarmál á barnalögum að ræða og sú leiðrétting er fullkomlega í anda stjórnarskrárinnar.