09.05.1985
Neðri deild: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5050 í B-deild Alþingistíðinda. (4353)
480. mál, greiðslujöfnun fasteignaveðlána
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga á þskj. 854. Aðdragandi þessa máls er nokkur svo að ég vil aðeins ræða það áður en ég byrja að skýra frv. sjálft.
Í janúar s. l. lagði félmrh. fyrir ríkisstjórnarfund að fjalla um nauðsyn þess að taka til endurskoðunar lánskjaravísitöluna með hliðsjón af vaxandi greiðsluerfiðleikum fólks vegna húsnæðislána.
Ríkisstj. var sammála um að reyna að gera ráðstafanir til þess að leysa þennan vanda. M. a. var settur upp nýr lánaflokkur við Húsnæðisstofnunina sem hafði það hlutverk að greiða úr sárustu vandamálum fólks á þessu sviði. Í sambandi við þennan lánaflokk var ákveðið að setja upp ráðgjafardeild í Húsnæðisstofnun sem hefði með framkvæmd þessa að gera. Þessi ráðgjafarþjónusta Húsnæðisstofnunarinnar, sem var vel kynnt í fjölmiðlum á sínum tíma, tók til starfa í byrjun febrúar og hefur starfað síðan með miklum ágætum. M. a. hafa þeir sem ráðgjöfina veita farið á flesta þéttbýlisstaði í landinu og átt viðtöl við fólk og gefið kost á beinum viðræðum og svo er enn í dag.
Skv. upplýsingum frá ráðgjafarþjónustunni hafa nú borist um 1350 umsóknir um aðstoð vegna greiðsluerfiðleika. Þegar er búið að afgreiða verulegan hluta af þessum umsóknum og áform stofnunarinnar eru þau að afgreiða um 100 umsóknir á dag. Það hefur margt komið í ljós í sambandi við þessa ráðgjöf sem væri ástæða till að fjalla um en tímans vegna mun ég ekki fara mjög náið í það. Eitt þýðingarmikið atriði í sambandi við þessa ráðgjöf var samkomulag sem gert var við fulltrúa viðskiptabanka og sparisjóða um að taka þátt í þessu starfi, vera á fundum með úthlutunarnefnd, sem úrskurðar um fyrirgreiðslur, og tengja þessar fyrirgreiðslur við bankakerfið, svo að það geti nýst sem best því fólki sem á í erfiðleikum, ekki síst þar sem ljóst er að verulegur hluti greiðsluerfiðleikanna er í bönkum eða peningastofnunum. Þar er meira um skammtímalán að ræða og þörfin þess vegna mjög brýn að reyna að ná samningum um slík lán og breyta þeim í föst lán með lengri lánstíma. Þetta hefur að dómi ráðgjafarþjónustunnar tekist mjög vel. Ber vissulega að fagna því að bankakerfið hefur tekið þessum málum mjög vel og er hin ágætasta samvinna þarna á milli.
Þannig er hægt að leysa úr vanda margra sem í hafa ratað.
Einnig má geta þess að ráðgjafarþjónustan hefur unnið að því að afla nauðsynlegra gagna sem til þarf, í sambandi við veðbókarvottorð, brunabótamat o. fl., og eins að fá frestun á uppboðum og koma í veg fyrir uppboð meðan verið er að ganga frá þessari fyrirgreiðslu.
Gildi þessarar ráðgjafarþjónustu er augljóst og þess vegna hefur verið ákveðið að framlengja þessa þjónustu og skipuleggja hana þannig með vélvæðingu og öðru að hún verði fastur liður í starfsemi Húsnæðisstofnunarinnar. Mér þótti ástæða til, herra forseti, að láta þetta koma hér fram því það tengist að hluta til því máli sem hér er til umr.
Í sambandi við þessa endurskoðun á lánskjaravísitölunni vegna greiðsluerfiðleikanna fól félmrh. sérstakri nefnd, sem hefur verið að vinna að úttekt á fasteignaviðskiptum og fasteignamarkaði hér á landi, að taka þetta mál sérstaklega til athugunar, þ. e. að gera tillögur um leiðir til að jafna greiðslubyrði af fasteignaveðlánum einstaklinga. Mér þykir rétt að geta þess hér að í þessari nefnd, sem er núna að skila lokaskýrslu um fasteignamarkaðinn og fasteignaviðskipti, eiga sæti Stefán Ingólfsson verkfræðingur, sem er formaður nefndarinnar, Friðrik Stefánsson viðskiptafræðingur, Gunnar Helgi Hálfdánarson hagfræðingur og Jón Sveinsson lögfræðingur.
Vegna þeirra tilmæla sem félmrh. beindi til nefndarinnar sérstaklega í þessu skyni skilaði nefndin áfangatillögum 22. febr. s. l. Í þessari skýrslu nefndarinnar, sem kynnt var opinberlega, m. a. í fjölmiðlum, kemur fram að að mati nefndarinnar er greiðslugeta fasteignakaupenda nátengd launatekjum þeirra þegar fasteignaveðlán bera öll raunvexti. Ef þær forsendur sem kaupendur ganga út frá við fasteignakaup eiga að standast verður greiðslubyrði þeirra að breytast í samræmi við almenna þróun launa. Nefndin taldi að greiðslubyrði verðtryggðra fasteignaveðlána hefði aukist um liðlega 37% umfram launahækkanir frá árinu 1980. Leiðir eins og breyting raunvaxta, afnám verðtryggingar og lenging lánstíma eru að mati nefndarinnar ekki einar sér færar um að leysa þann vanda sem skapast hefur vegna aukinnar greiðslubyrði. Verður því að leita nýrra leiða. Nefndin mælti með því að tekið yrði upp sérstakt fyrirkomulag til að reikna út afborganir af fasteignaveðlánum. Það hefur verið nefnt greiðslujöfnun og felst í því að tryggja lántakendum að greiðslubyrði fasteignaveðlána haldist í hendur við breytingar á launum. Nefndin mælti með tvíhliða greiðslujöfnun, þ. e. að þegar laun hækka minna en lánskjaravísitala minnka afborganir en þegar launin hækka hlutfallslega meira er endurgreiðslu lánsins hraðað. Nefndin mælti einnig með því að greiðslujöfnun yrði beitt á óverðtryggð lán jafnt sem verðtryggð fasteignaveðlán til einstaklinga.
Eftir að nefndin kannaði þetta nánar sendi hún þessar tillögur sínar og niðurstöður kannananna, en þær hófust raunar í september á fyrra ári. Leitaði nefndin umsagnar Seðlabanka Íslands um þær grundvallarhugmyndir sem tillögur nefndarinnar byggjast á og nefndin nefnir greiðslujöfnun. Umsögn Seðlabankans var jákvæð að mati nefndarinnar og þess vegna var haldið áfram á þeirri braut að fullvinna þessa hugmynd. Og hún var lögð fram, eins og áður sagði, í áfangaskýrslu 22. febr. s. l.
Á grundvelli þessa fól félmrh. tveimur sérfróðum mönnum að semja frv. um þetta greiðsluform. Tóku þeir það að sér Þórður Ólafsson lögfræðingur forstöðumaður bankaeftirlitsins og Yngvi Örn Kristinsson hagfræðingur við Seðlabankann og sömdu frv. um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga. Þetta frv. var svo lagt fram í ríkisstj. 7. mars s. l. Aðalatriðið í því frv. er að þar var gert ráð fyrir því að þetta form yrði tekið upp við allar lánastofnanir, opinbera lánasjóði, og það yrði einnig á óverðtryggðum lánum.
Þegar þetta frv. var lagt fyrir voru að hefjast viðræður milli ríkisstj. og Alþýðusambands Íslands, en Alþýðusambandið hafði óskað eftir að ræða sérstaklega við ríkisstj. um húsnæðismál. Í bréfi eða umræðugrundvelli Alþýðusambandsins var lögð aðaláhersla á 11 atriði sem þeir lögðu sérstaka áherslu á. Með leyfi forseta tel ég rétt að lesa það upp svo að það liggi hér fyrir í þingtíðindum. Rætt yrði við ríkisstj. um eftirfarandi:
1. Lækkun vaxta svo að raunvextir fari aldrei yfir 3%.
2. Lántakanda sé tryggt að geta jafnan valið á milli verðtryggðs og óverðtryggðs láns.
3. Breyttan grunn lánskjaravísitölu, þannig að hún reiknist út frá umreiknuðum vísitölum, framfærslukostnaðar að 1/3, byggingarkostnaðar að 2/3. Við umreikninginn verði eftirtaldir þættir teknir út: óbeinir skattar, niðurgreiðslur, opinber þjónusta, áfengi og tóbak.
4. Leiðrétting á höfuðstól verðtryggðra lána sem síðustu misseri hafa hækkað sérstaklega vegna lækkunar niðurgreiðslna og hækkunar á opinberri þjónustu, áfengi og tóbaki.
5. Takmörkun á greiðslubyrði lána miðað við kaupmátt taxtakaups. Hluta gjaldfallinnar greiðslu verði bætt við höfuðstól eða hann færður aftur fyrir lánstíma lánsins.
6. Lengingu á lánstíma lífeyrissjóðslána um allt að fimm árum ef lántaki óskar þess.
7. Áframhald á endurskoðun á lánareglum Byggingarsjóðs ríkisins. Grunnlán verði aðeins veitt einu sinni en viðbótarlán miðist við fjölskylduhagi.
8. Sérstaka hækkun á lánum vegna kaupa á eldra húsnæði. Reglur um veitingu slíkra lána verði tengdar reglum um veitingu nýlána.
9. Aukið fjármagn til Byggingarsjóðs verkamanna. Ýmist verði um nýbyggingar að ræða eða kaup og endursölu eldra húsnæðis eftir því sem hagkvæmast verður talið hverju sinni.
10. Skattameðferð vaxtafrádráttar. M. a. verði kannað hvort heppilegt geti verið að tryggja öllum sérstakan skattafslátt vegna húsnæðisöflunar í sömu krónutölu.
11. Aukins fjármagns verði aflað til sérstakra ráðstafana fyrir það fólk sem nú er í greiðsluþroti.
Þetta voru þeir umræðupunktar sem Alþýðusambandið lagði fram í þeim viðræðum sem stofnað var til við ríkisstj. að því er varðar húsnæðismál. Mér þykir rétt að geta þess einnig að samþykkt frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja barst einnig ríkisstj. um þessi mál. Stjórn BSRB ítrekar eftirfarandi úrræði og með leyfi forseta vil ég lesa þau upp:
1. Verðtrygging launa og íbúðarlána fylgist að.
2. Lengdur verði lánstími á öllum lánum til íbúðarhúsnæðis. Þetta taki einnig til lána sem þegar hafa verið tekin.
3. Ársvextir af verðtryggðum lánum verði lækkaðir í 2% .
4. Vextir af íbúðarlánum komi til frádráttar við álagningu útsvars.
5. Veitt verði verulegu fjármagni til aukningar félagslegra íbúða í þeim tilgangi að fjölgað verði a. m. k. um 1200 slíkar íbúðir á næstu þremur árum.
Síðan bárust tillögur eða ábendingar frá áhugamönnum um umbætur í húsnæðismálum og þarf ég ekki að ræða það hér hvernig það er til komið. En mér þykir rétt að lesa hér upp þær tillögur sem þeir lögðu áherslu á og fjallað var um í viðræðum þeirra við ríkisstj.
Það var í fyrsta lagi leiðrétting á umframgreiðslum undanfarinna ára. Þeir leggja til að veittur verði sérstakur skattaafsláttur þegar á þessu ári og á næstu árum til að mæta þeim umframgreiðslum sem þegar hafa átt sér stað. Afsláttur þessi geti komið til útborgunar hjá tekjulágum einstaklingum. Honum skal jafnað niður á jafnlangan tíma og umframgreiðslur mynduðust hjá viðkomandi einstaklingi. Í lánakerfi Húsnæðisstofnunar væri og möguleiki á að láta umframgreiðslur síðustu ára ganga upp í greiðslur næstu ára.
2. Viðbótarlán frá Húsnæðisstofnun. Gefinn verði kostur á viðbótarlánum á sömu kjörum og til jafnlangs tíma og hagstæðustu lán stofnunarinnar eru veitt til greiðslu lausaskulda vegna húsnæðisöflunar, þ. e. skammtímalán við banka, byggingarvöruverslanir, byggingarfyrirtæki og þess háttar, svo og til að greiða upp önnur óhagstæð lán sem fólk hefur neyðst til að taka í vandræðum sínum.
3. Skuldbreyting og lenging lána. Gefinn verði kostur á skuldbreytingum lána til a. m. k. átta ára á hagstæðustu mögulegum lánskjörum og án lántökukostnaðar. Fyrsti gjalddagi þessara lána verði 6–10 mánuðum eftir skuldbreytingu, þannig að fólki gefist svigrúm til að greiða gjaldfallna heimilisreikninga.
Að síðustu er lögð áhersla á nauðsyn þess að endurskipuleggja húsnæðislánakerfið. M. a. verði séð til þess að lánshlutfall hækki, kaupendur gamals og nýs húsnæðis séu við sama borð og endurgreiðslukerfi taki mið af þróun kauptaxta.
Mér þótti rétt, herra forseti, að skýra frá þessum atriðum sem komu fram frá þessum aðilum. Það sem ríkisstj. gerði í framhaldi af þessu var að skipaður var sérstakur samstarfshópur sem tók málið sérstaklega fyrir ásamt með fulltrúum frá Alþýðusambandi Íslands. Í þessum starfshópi eru eftirtaldir aðilar: Af hálfu stjórnvalda: Þórður Friðjónsson, Bjarni Bragi Jónsson, Hallgrímur Snorrason, Jóhann Einvarðsson og Sigurður Snævarr. Af hálfu Alþýðusambands Íslands: Björn Björnsson, Grétar Þorsteinsson og að hluta til Björn Þórhallsson. Þessi nefnd hefur síðan starfað að þessum málum og haft til meðferðar þá viðræðupunkta sem Alþýðusamband Íslands lagði fram, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og áhugahópur um húsnæðismál. Síðast en ekki síst hafði nefndin til meðferðar frv. til l. um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga.
Það er skemmst frá því að segja að það fyrsta sem nefndin náði samkomulagi um var að leggja fram frv. um greiðslujöfnunarleiðina skv. frv. félmrh. frá 7. mars og gerir á því nokkrar breytingar sem fram koma í frv. Þær eru fyrst og fremst í því fólgnar að nefndin taldi ekki mögulegt að lögfesta greiðslujöfnun fasteignaveðlána nema í sambandi við opinbera sjóði húsnæðismála, þ. e. byggingarsjóði ríkisins, en lagði hins vegar til að það yrði samningsatriði við aðrar peningastofnanir og sjóði að taka upp þessa aðferð.
Með þessu frv., sem hér liggur fyrir á þskj. 854, er boðuð ný stefna í verðtryggingu húsnæðislána. Frv. byggir á svonefndri greiðslujöfnun fasteignaveðlána sem felst í því að endurgreiðslur húsnæðislána eru tengdar launabreytingum. Tilgangur frv. er þannig að fyrirbyggja að greiðslubyrði vegna húsnæðislána þyngist, ef misgengi skapast milli hækkunar lánskjaravísitölu eða annarrar viðmiðunarvísitölu og hækkunar launa og/eða vegna hækkunar raunvaxta.
Ef laun hækka minna en lánskjaravísitalan er hluta endurgreiðslu lánsins frestað þar til laun hækka á ný umfram lánskjaravísitöluna. Þetta gerist skv. frv. með þeim hætti að mismunur launavísitölu og lánskjaravísitölu er færður á sérstakan jöfnunarreikning. Skuld á jöfnunarreikningi telst hluti af höfuðstól lánsins og um hana gilda því sömu kjör og um ræðir í lánssamningi. Þessi skuld er síðan endurgreidd hlutfallslega þegar launavísitalan hækkar umfram lánskjaravísitölu, eða eftir upphaflegan lánstíma, ef skuld er þá á jöfnunarreikningi.
Með þessum hætti á að vera tryggt að greiðslubyrði húsbyggjenda og kaupenda vegna lána hjá byggingarsjóðum ríkisins þyngist ekki þó að kaupmáttur launa rýrni vegna sveifina í efnahagsstarfseminni.
Frv. nær einungis beint til lána byggingarsjóða ríkisins, en gert er ráð fyrir að sama tilhögun geti gilt um húsnæðislán annarra sjóða og stofnana eftir því sem um semst milli lántaka og lánveitenda. Það er því hins vegar ákvörðun viðkomandi lífeyrissjóða, banka og annarra sjóða og stofnana hvort greiðslujöfnun í samræmi við þetta frv. verður tekin upp þar, en lögð er áhersla á að slíkt samkomulag verði um lán til húsnæðismála.
Meginatriði frv. snúa að tilhögun verðtryggingar húsnæðislána í framtíðinni. Gerð er tilraun til að móta sanngjarnara og þægilegra lánakerfi fyrir húsbyggjandann og kaupandann. En einnig eru í frv. ákvæði sem lúta að vanda þeirra sem byggt hafa eða keypt í efnahagskreppu síðustu ára. Frv. er því liður í ráðstöfunum ríkisstj. til að aðstoða þá sem lent hafa í alvarlegum greiðsluerfiðleikum við að afla sér húsnæðis á undanförnum árum.
Þetta er gert með þeim hætti að gefa greiðendum fullverðtryggðra lána hjá byggingarsjóðunum, sem eiga í umtalsverðum greiðsluerfiðleikum að mati Húsnæðisstofnunar, kost á því að fresta greiðslum af þessum lánum allt að því marki sem frv. segir til um, ef ákvæðin um greiðslujöfnun hefðu gilt frá lántöku. Þeim greiðendum lána sem nú eiga í mestum erfiðleikum stendur því til boða að greiðslujöfnunin gildi um lán þeirra aftur í tímann og hluti næstu greiðslu af þessum lánum frestist í samræmi við ákvæði frv. Þeir sem óska eftir að greiðslujöfnunin nái til þegar tekinna lána geta sótt um það til Húsnæðisstofnunarinnar. Umsóknum eru sett tiltölulega þröng tímamörk 1. sept. n. k., til að sem fyrst liggi ljóst fyrir með hvaða hætti verður unnt að ganga frá einstökum atriðum málsins.
Með þessu frv. og fskj. þess er gerð tilraun til að meta áhrif frv. á endurgreiðslu lána til byggingarsjóðanna. Hins vegar er ákaflega erfitt að meta þessi áhrif, bæði vegna þess að óljóst er hvað margir muni sækja um greiðslujöfnunina og einnig er fjöldi þeirra sem á í umtalsverðum erfiðleikum óþekktur. Talnaefnið á fskj. ætti þó að gefa vísbendingu um hvað hér getur verið um að ræða í þessu efni.
Herra forseti. Ég ætla ekki að hafa langt mál að þessu leyti um þetta frv., það á að skýra sig sjálft. Ég vil bæta því við að það er enginn vafi á því og það er mat þeirra sem best þekkja þessi mál og ekki síst í sambandi við þá úttekt sem ég nefndi áður á fasteignamarkaðinum hér á landi, að þetta greiðslujöfnunarform á fasteignaveðlánum til einstaklinga geti haft mjög mikil áhrif á fasteignamarkaðinn til hagsbóta fyrir kaupendur. Ég vænti þess að það sýni sig fljótlega að þó að skrefið sé ekki stærra en þetta með beinni lagasetningu á opinbera sjóði, þ. e. byggingarsjóði ríkisins muni fljótlega koma í ljós að þetta er lánakerfi eða greiðslukerfi sem mun verða talið heppilegt í fasteignaviðskiptum almennt og það muni þróast inn á þá braut.
Í sambandi við það sem er fram undan um þessi mál almennt vil ég geta þess að þessi samstarfshópur sem ég nefndi hér fyrr með aðild Alþýðusambands Íslands er enn að störfum og verður það vonandi fyrst um sinn. Hann er núna að fást við ýmsar hugmyndir um breytingar á lánskjaravísitölu og það mun fljótlega liggja fyrir hvaða tillögur hann mun gera um það mál sérstaklega. Einnig er verkefni hans að fjalla um hugmyndir sem fram hafa komið bæði frá Alþýðusambandinu og áhugamannahópi um húsnæðismál og einnig tillögur frá félmrh. um sérstaka meðhöndlun í skattamálum, þ. e. vaxtaafslátt eða vaxtafrádrátt. Þessi starfshópur mun einnig fjalla um það mál sérstaklega og skila um það tillögum til ríkisstj.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa lengri framsögu fyrir þessu máli. Ég vil hins vegar leggja á það mikla áherslu að jafnvel þó að mönnum finnist vera skammt gengið í þessu frv. hefur það mikla þýðingu fyrir húsbyggjendur í landinu og kaupendur húsnæðis. Þess vegna legg ég mikla áherslu á að frv. fái greiða afgreiðslu í gegnum þingið svo að það verði að lögum fyrir þinglok.
Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. félmn.