09.05.1985
Neðri deild: 66. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5069 í B-deild Alþingistíðinda. (4358)

480. mál, greiðslujöfnun fasteignaveðlána

Jón Baldvin Hannibalsson:

Herra forseti. Sjaldan ef nokkurn tíma í sögu íslenskra stjórnmála hafa jafnfáir logið jafnmiklu að jafnmörgum eins og talsmenn og forustumenn núv. stjórnarflokka í húsnæðismálum. Loforðin voru ómæld, stór, og vöktu upp mikil fyrirheit. Efndirnar eru svo gersamlega í skötulíki að það er dapurlegt til þess að hugsa.

Enn einu sinni er lagt fram mál sem vekur upp vonir, en á eftir að valda skelfilegum vonbrigðum. Hvaða vanda er verið að reyna að leysa? Vandinn, sem verið er að reyna að leysa, stafar einkum af þrennu: Greiðslugeta húsbyggjenda hefur verið skert svo hrikalega, í fyrsta lagi vegna þess að þeir hafa orðið fyrir kjaraskerðingu. Stærsti parturinn af því er vegna þess að verðtrygging launa var tekin úr sambandi en lánskjaravísitalan látin mæla áfram eftirstöðvar skulda. Í öðru lagi vegna þess að raunvextir umfram verðbólgu hafa hækkað gríðarlega og í þriðja lagi vegna þess að bilið milli kaupgjaldsvísitölu og lánskjaravísitölu fer sívaxandi.

Þessar niðurstöður mála hefur hæstv. forsrh. kallað mestu mistök stjórnarflokkanna og það er við þessi hroðalegu mistök sem hæstv. félmrh. er að reyna að glíma. Reyndar eru þetta engin mistök heldur er þetta sjálf stjórnarstefnan og það er ekki hægt að fallast á að þetta séu mistök fyrst og fremst vegna þess að vandinn er eldri en núv. ríkisstj. Tillögur voru lagðar fram hér á Alþingi til að leysa hann fyrir löngu síðan og þeir menn, sem standa að núv. stjórnarsamstarfi ásamt talsmönnum stjórnarandstöðuflokksins Alþb., stóðu að því í fyrrv. ríkisstj. að fella slíkar tillögur.

Hver er vandinn? Í samantekt sem Alþýðusamband Íslands gaf út fyrir 1. maí er honum lýst svona: Húsbyggjandi á Húsavík greiddi 406 þús. af lánum á síðasta ári. Hann byrjaði að byggja vorið 1983, reiknaði þá með að 2–3 mánaða laun dygðu til að standa undir afborgunum og vöxtum, situr nú uppi með þá staðreynd að 11 mánaða vinnulaun duga ekki, greiðir 406 þús. af lánum og fjarlægist með hverjum mánuði það markmið að auka eignarhlutdeild sína í þessari eign.

Fyrir nokkru síðan kom hópur þessa marghrjáða fólks á fund þingflokkanna og lagði fram reikning. Þau lögðu fram reikning sem hljóðaði upp á það að í tíð núv. stjórnarflokka hefði verið lagður aukaskattur á lántakendur og húsbyggjendur sem þeim reiknaðist til — og þeir reikningar hafa ekki verið vefengdir — að næmi 2.6 milljörðum kr., 2600 millj. kr., 1390 millj. kr. bara í ár. Greiðslubyrðin hefði aukist u. þ. b. um þriðjung vegna raunvaxtahækkunar umfram verðbólgu í tíð stjórnarinnar sem nemur um milljarði og nefndu dæmi um afborgun af láni frá árinu 1980 sem hefði hækkað vegna þessarar stjórnarstefnu, þ. e. vegna vaxtahækkunar umfram verðbólgu og vegna mismunar á lánskjaravísitölu og kaupgjaldsþróun, um 82% í tíð stjórnarinnar. Þeir vöktu athygli á því í sínum útreikningum að einungis vegna breytinga á raunvöxtum, sem ríkisstj. hefur heimilað frá því að hún tók við völdum, hafi húsnæðiskaupendur orðið að greiða aukalega umfram það sem þeir gerðu ráð fyrir þegar þeir tóku lánin 910 millj. kr. Þeir gerðu ráð fyrir því að miðað við óbreytta vaxtastefnu þyrftu þeir að greiða á þessu ári 580 millj. kr. umfram það sem þeir ráðgerðu þegar þeir tóku lánin.

Í einu af dæmum hópsins er tekið dæmi af 1 millj. kr. láni sem var tekið til 20 ára árið 1980. Hækkun raunvaxta úr 2.5% þegar lánið var tekið í það sem nú er hefur aukið greiðslubyrði lántakandans um rúmlega þriðjung.

Einfaldasta framsetning á vandanum er að reikna þetta í vinnustundum þar sem fólk með skerta kaupgetu stendur frammi fyrir hækkun raunvaxta umfram verðbólgu og misvísun kaupgjaldsþróunar og lánskjaravísitölu. Það þýðir ósköp einfaldlega að það sem áður var viðráðanlegt hlutfall launa til þess að standa undir þessum lánum er nú orðið að óbærilegum skuldaklafa, þ. e. launin duga ekki til. Það eru hvorki meira né minna en 18 þúsund uppboð á þessu ári, gætu orðið 20 þúsund og þetta fólk, sem í þessum hremmingum hefur lent, er ýmist á uppboði eða biðstofum ráðgjafarþjónustunnar eða á biðstofum geðlæknanna, eins og fram hefur komið.

Menn eru að karpa um það hvort þetta megi rekja til þeirrar ákvörðunar fyrri ríkisstj. að taka upp verðtryggingu á lánsskuldbindingum og Alþb. sem slíkt er sérstaklega öðru hverju að forheimska sig á slíkum málflutningi. Ég vek athygli á því að talsmenn Sigtúnshópsins hafa aldrei lýst sig andvíga verðtryggingu lána. Þeir hafa aldrei sett fram þá kröfu að þeir eigi ekki að borga það sem þeir fengu að láni að raungildi. Ég vek athygli á því að hópur hinna hrjáðu húsbyggjenda sem komið hefur á fund þingflokkanna, hefur aldrei sett fram þá kröfu.

Þeir skyldu hugsa sitt mál vandlega sem ætla að byggja sinn málflutning á nauðsyn þess að rífa niður verðtrygginguna. Þeir vita ekkert hvað þeir eru að tala um. Þeir vita í fyrsta lagi ekkert hvað þeir eru að tala um að því er varðar þessa þjóð sem sokkin er í skuldir. Þeir hafa aldrei sett fram þá kröfu að þeir eigi ekki að er það varðar til hvers slík pólitík leiðir, til hvers konar eignatilfærslu hún leiðir í þjóðfélaginu frá venjulegu fólki til atvinnurekenda. Í slíkri pólitík er ekki vitglóra. Ekkert af þessu fólki hefur sett fram þá kröfu að það eigi að afnema verðtryggingu. Ef menn velta fyrir sér hvernig eigi að fjármagna lánasjóðina, hvernig staða lífeyrissjóðanna yrði í slíku kerfi þegar lán eru ekki verðtryggð, skyldu menn bara hugsa það til enda. Það er vitlaus pólitík enda hefur hún engan stuðning nema hjá kreddumönnum og grilluföngurum.

Það sem er réttmætt umkvörtunarefni er þetta:

Í fyrsta lagi — og það er stærsti parturinn — er ránvaxtastefnan, ættuð úr Seðlabankanum, sú stefna í tíð núv. ríkisstj. að hækka vexti umfram verðbólgu upp úr öllu valdi og reka hér dýrustu raunvexti í heimi.

Í annan stað er það vísitölufúskið, vitleysisgangurinn í því og það er ekkert nýtt mál. Það er ástæða til þess að vekja sérstaklega athygli hv. þm. Steingríms Sigfússonar, 4. þm. Norðurl. e., á því. Þetta er mál sem hann þarf að kynna sér. Strax árið 1981 lá það fyrir að lánskjaravísitala var farin að mæla þyngri greiðslubyrði eftirstöðva lána en samsvaráði kaupgjaldsþróun. Hver var ástæðan? Ástæður voru annars vegar vísitölufalsanir þáv. ríkisstj. sem voru margar. Þrátt fyrir þær, sem þannig héldu niður kaupgjaldi, hélt framfærsluvísitalan áfram að mæla eftirstöðvar lána. Þetta misvægi var m. ö. o. þá strax komið á daginn.

Það var þess vegna sem þm. Alþfl. fluttu þá strax frv. til laga hér á hinu háa Alþingi um að taka á þessu vandamáli. Hvernig? Með því að sú fjárhæð, sem væri umfram raunverulega kaupgjaldsþróun skv. lánskjaravísitölu á tvöföldu vægi, færðist aftur fyrir höfuðstól þannig að greiðslubyrði yrði hin sama af raunverulegu kaupgjaldi. Hvaða viðtökur fékk þetta hjá hæstv. félmrh. þá sem var einn af stuðningsmönnum þessarar stjórnar? Þetta frv. var fellt. Hvaða viðtökur fékk það hjá þáv. hæstv. félmrh., formanni Alþb., 3. þm. Reykv.? Það fékk engar undirtektir — (SvG: Rugl. ) — það var fellt, það var svæft í ríkisstj. og það er ekkert rugl og það veit hv. 3. þm. Reykv. fullvel, þetta eru staðreyndirnar í málinu. Þetta frv. var á borðum þm. þá þegar og staðreyndin í málinu er þessi: Ef það hefði verið samþykkt þá væri þetta vandamál, sem hér er orðið svona stórbrotið og stórkostlegt, ekki til, það væri ekkert vandamál, það hefði verið leyst.

Þá er spurningin: Dugar það mál, sem hér er lagt fram, til að leysa vanda þessara manna? Þeir tala um að fram hafi verið lagður reikningur á þá umfram þau kjör sem þeim voru boðin þegar þeir tóku lánin upp á 2.6 milljarða. Hvað er þetta mál stórt upp í þá skuld? Hæstv. félmrh. veit það ekki. Hins vegar liggur ljóst fyrir í fyrsta lagi, að það er ekki miðað við raunverulega kauptaxta heldur við vegna vísitölu af atvinnutekjum og kauptöxtum. M. ö. o., þeir lántakendur sem verst eru settir fá ekki rétta viðmiðun, þ. e. það fólk sem stendur í þessum raunum en þiggur laun fyrir vinnu sína á lægstu töxtum. Við vitum ekki hversu margt það fólk er en við vitum að það er það fólk sem er á hungurmörkunum og getur ekki framfleytt fjölskyldu en verður samt sem áður að bera ærinn kostnað af þessum hlutum.

Í annan stað er ljóst að þetta mál tekur aðeins til húsnæðismálalána, lána úr byggingarsjóðum. En vandi hópsins sem búið er að gera að vanskilaliópi í þessu þjóðfélagi er mestur annars staðar. Hann er hjá lífeyrissjóðunum og hann er í bankakerfinu. Hvernig á að taka á því? (Gripið fram í: Með okurlánum.) Já, okurlánum, okurlánamarkaðinum. Hvernig á að taka á því? Um það segir ekkert hér.

Í þriðja lagi, forsendan fyrir þessum tillögum er sú að hér gerir ríkisstj. beinlínis ráð fyrir því — það er forsendan fyrir því að þetta eigi að koma að gagni fyrir lántakendur — að kaupgjaldsþróun haldi áfram að verða með þeim hætti sem hún er. Við vitum hver hún er. Það var samið í haust um 20% kauphækkun rúmlega. Sú kauphækkun er fyrir alllöngu síðan gersamlega orðin að engu. Að mati hagfræðinga ASÍ er í hverri viku og í hverjum mánuði hér eftir um raunverulega kjaraskerðingu, kaupmáttarskerðingu að ræða fyrirsjáanlega. En halda menn virkilega að sú þróun geti haldið áfram endalaust? Dettur nokkrum manni það í hug? Auðvitað ekki.

Hver er þá höfuðgallinn við þessar tillögur? Fyrir utan það að viðmiðunarskilgreiningin er allt of takmörkuð og að hún tekur alls ekki til vandans að því er varðar aðra en byggingarsjóðina, þá er hún sú að hér er gert ráð fyrir því að ef kaupgjald fer raunverulega upp á ný verði þessar ráðstafanir að engu. M. ö. o., þetta er frv. til l. um að frysta núverandi ástand, ef það þá er ekki sýndarmennska. Þannig tekur húsnæðisfáránleikinn, sem við stöndum frammi fyrir, á sig æ átakanlegri myndir. Viðleitni manna til þess að klóra í bakkann, leysa einhvern part af vandamálinu, eru öll með því marki brennd að þetta er eins og hestur sem er að brölta um í feni. Þeim mun meira sem hann bröltir, þeim mun dýpra sekkur hann.

Samúð mín er vissulega ærin með hæstv. félmrh. sem er greinilega að fást hér við verkefni sem hann virðist ekki ráða við. Og það er ekki að öllu leyti honum að kenna. Ég vefengi ekki góðan vilja hans. Að verulegu leyti er hér um það að ræða að húsnæðismálin eru um fjármál og fjármálastjórn þessarar ríkisstj. er öll í lamasessi. Það þarf verulega fjármuni, fjármuni upp á milljarða kr. á hverju einasta ári, ekki í nýjum lánum heldur í framlögum af fjárlögum til að leysa þessi mál og þau mál getur hæstv. félmrh. ekki samið um við hæstv. fjmrh. Hann getur ekki leyst þetta í samstarfi við Sjálfstfl., á það er búið að reyna hvað eftir annað. Þess vegna er hann alltaf að tilkynna að hann sé með hin og þessi mál í ríkisstj. sem síðan daga uppi og enginn hefur spurnir af meir. Hann er alltaf að gefa ný og ný fyrirheit og alltaf verður þetta að engu. Það er mjög alvarlegt mál að gera þetta frammi fyrir fólki sem er með húsin sín á uppboði, eins og sá sem hér stendur o. fl., vegna þess að þeim mun sárari verða vonbrigðin í hvert skipti þegar það kemur á daginn að þetta er allt saman orðagjálfur, orðakonfekt, innihaldið er allt annað.

Ég sagði: Samúð mín er ærin með hæstv. félmrh. en óneitanlega er samúð mín með því fólki, sem nú er undir hamrinum eða á biðstofum geðlæknanna, sýnu meiri. Þetta mál er dæmi um það að verið er að reyna að klóra í bakkann. En hver eru stærstu vandamálin hjá þessu fólki? Vandamálin eru ekki verðtrygging fjárskuldbindinga og sparifjár. Vandamálin eru þau að það er búið að leggja á þetta fólk umfram það sem það ráðgerði þegar það tók á sig þessar skuldbindingar, viðbótarskattlagningu í reynd upp á 2.6 milljarða kr. Hverjir eru fjármunirnir sem hér er um að ræða? Hæstv. félmrh. segist ekki vita það. Hins vegar hefur verið talið að hér sé verið að tala um 300 millj. Hvað eru 300 millj. í þessu dæmi, hæstv. félmrh.?

Við stöndum hér frammi fyrir því að ríkisstj. getur ekki einu sinni komið með lánsfjáráætlun. Hún er að bæta við erlendum skuldum, nettó 3 milljörðum ofan á allt annað. Þar af ætlar hún sér a. m. k. 400 millj. í húsnæðisfjármögnun sem er óhugnanlegt dæmi um fjárhagslegt ábyrgðarleysi. Það er vitað að gatið í lánsfjáráætlun húsnæðismála í ár er upp á 700 millj., 300 millj. í viðbót. Það munar nú ekki mikið um einn kepp í sláturtíðinni.

En hverju eru hinir bættari sem hafa þegar borgað umfram það sem þeim bar 2.6 milljarða? Lausnin fyrir þetta fólk er í því fólgin í fyrsta lagi að framfylgja þeim hugmyndum sem Alþfl. setur fram strax 1981, um að misvægið milli vísitölu kaupgjalds og lánskjaravísitölu færist aftur fyrir höfuðstól, þannig að greiðslubyrðin verði sama hlutfall af launum og bætt launakjör komi ekki til með að hafa áhrif til hins verra fyrir þetta fólk.

Í annan stað er hún fólgin í því að lækka raunvexti á lánum til húsnæðismála verulega.

Í þriðja lagi er hún í því fólgin-og það er forsendan fyrir því öllu saman — að veita til húsnæðismála miklu meiri fjármunum beint af fjárlögum en ekki í formi lána sem eru til miklu skemmri tíma og á miklu hærri vöxtum en þú ætlar að lána út. Vaxtamunurinn einn er t. d. þegar búinn að ríða Byggingarsjóð verkamanna á slig af því að þar er vaxtamunurinn mestur og hann hefur leikið Byggingarsjóð ríkisins mjög grátt líka. Þetta er milljarða dæmi. Okkur telst svo til að ef menn ætla að setja sér þó ekki væri nema það hóflega mark að standa fyrir byggingum u. þ. b. 1600–1700 íbúða á ári, sem er kannske neðan við þau mörk sem ætla mætti að ætti að gera, þá dugar ekki minna en bein fjárframlög úr ríkissjóði hér eftir á ári hverju upp á 3.5 milljarða. Hvert á að sækja þessa peninga? Ríkisstj. segir alltaf: Það eru engir peningar til. Hvert á að sækja þá?

Við leggjum til að byggingarsjóðum ríkisins verði skilað aftur launaskattinum sem lögum samkvæmt á að renna til byggingarsjóðanna, ríkisins og verkamanna, sem óafturkræf framlög. Við teljum nauðsynlegt að hækka launaskattinn um a. m. k. 1% og verja því líka í þessu skyni. Ef 1% í launaskatti gefur um 330 millj. er þar um að ræða tæpan milljarð.

Í annan stað höfum við lagt til að lagður verði eignarskattsauki á skattsvikinn verðbólgugróða stóreignafélaga og stóreignaaðila í þessu þjóðfélagi sem skili ekki minna en milljarði á ári í þessu skyni.

Í þriðja lagi er sjálfsagður hlutur að taka hagnað Seðlabankans í ríkissjóð og verja honum í þessu sama skyni. Það þarf jafnvel annars konar fjárútvegun. Til greina getur komið að taka hluta af bundnu fé Seðlabankans í þessu skyni. Það er ekki verri fjárfesting en að henda því í birgðahald eða í útflutningsbætur á kjöti og smjöri.

Í fjórða lagi eða fimmta lagi verður ósköp einfaldlega að líta á þetta fjárlagadæmi þannig að færa til innan fjárlagarammans frá hlutum, þar sem verið er að eyða peningum í tóma vitleysu, til þessara hluta vegna þess að þetta er eitt af algerum forgangsverkefnum. Þetta kostar m. ö. o. svo mikið fé að þetta mál, sem hér er verið að flytja, er eins og hver annar smákeppur í þeirri sláturtíð, með gat upp á einn milljarð, a. m. k. í lánsfjármögnun húsnæðisfjármála, með byggingarsjóðina sokkna í skuldir a. m. k. upp á 3.3 milljarða og þeir eru reknir með yfirdrætti hjá Seðlabanka, þeir eru reknir með erlendum lánum. Gengistapið á erlenda láninu, sem hæstv. félmrh. neyddist til að taka í fyrra, varð 60 millj. á einni nóttu. Það er ógnvekjandi dæmi fyrir hvern þann, sem á að taka við þessari súpu, að taka við henni. Það kostar óheyrilega fjármuni.

Herra forseti. Það alvarlegasta við þetta mál er það að alltaf er verið að vekja upp vonir hjá þessu fólki. Þetta mál er ekki af því taginu að það rísi undir þeim vonum sem hafa verið vaktar úti í þjóðfélaginu. Vonbrigðin verða þeim mun sárari. Það dugar ekki, hæstv. félmrh., að reyna að klóra svona í bakkann. Það verður að líta á þessi húsnæðismál í heild sinni og það kostar óheyrilega mikla fjármuni. Ef það á að gera þetta kostar það allt annars konar pólitík í efnahagsmálum og fjármálum ríkisins en núv. ríkisstj. hefur grun um og nokkra getu til að fá fram. Þið ráðið ekkert við þetta verkefni. Þið eigið ekki að vera að vekja upp vonir fólks, falsvonir sem eru sviknar jafnóðum.

Ég tek undir það með hv. 3. þm. Reykv. og legg eindregið til að þetta mál fari til umfjöllunar hjá fjh.- og viðskn. Það er þess eðlis. Þar er líka það frv. sem Alþfl. hefur flutt um þetta mál og ég tel vera betri leið út úr þessum ógöngum, þ. e. þessum hluta þeirra, og það eigi að líta á þessi mál þannig í heild sinni.

Ég slæ því föstu að við munum flytja brtt. í líkingu við það sem við höfum verið að lýsa. En ég legg á það áherslu að þó að þetta mál sé af þessu taginu, að þarna sé aðeins verið að klóra í bakkann, er enn von til þess, ef samstaða yrði innan fjh.- og viðskn. og hér í þinginu. ef menn skynjuðu alvöru þessa máls, um stuðning við brtt. að því er varðar viðmiðunina, að því er varðar það að þetta nái til fleiri lána en byggingarsjóðanna einna, að þetta mál sé hægt að leysa. Annað er ósamboðið virðingu og skyldum Alþingis. Auðvitað verður að leysa þetta mál áður en þingi verður lokið. Ég tek undir það með hv. 3. þm. Reykv., við munum leggja okkur alla fram um það, ekki aðeins í þessu máli heldur yfirleitt, að þingið láti það ekki um sig spyrjast að því verði slitið í vor án þess að gert verði stórátak í því að bjarga því sem bjargað verður í þessum húsnæðisfáránleika og þeirri kynslóð, þeim fjölmörgu árgöngum sem nú eru bókstaflega undir hamrinum, verði rétt sú hjálparhönd sem dugar til þess að bjarga eignum þeirra, heimilisfriði og sálarfriði.