10.05.1985
Neðri deild: 67. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5106 í B-deild Alþingistíðinda. (4370)
416. mál, þingsköp Alþingis
Ingvar Gíslason:
Mál það, sem hér er nú tekið til 1. umr., er hingað komið frá hv. Ed. og eins og menn sjá er um að ræða allmikinn lagabálk, ef að lögum verður. Greinar frv. eru samtals 70, skipt í sex kafla. Umræður í hv. Ed. urðu allnokkrar um frv. og fáeinar brtt. komu fram við það. Hins vegar voru sáralitlar breytingar gerðar á frv. í meðförum hv. Ed., þ. e. aðeins við 28. og 32. gr. sem naumast geta talist efnismiklar breytingar. Þær breyta í engu þeirri meginstefnu sem frv. felur í sér og eins og það var úr garði gert af hálfu þeirrar nefndar sem samdi frv.
Ég vil því leggja áherslu á í upphafi 1. umr. um málið að þótt þessar smábreytingar hafi verið gerðar er frv. að anda og efni óbreytt eins og þingskapalaganefnd gekk frá því. Ég verð því að álíta að mikil samstaða sé meðal þm. og þingflokka um þetta mál. Vona ég að þetta álit mitt standist dóm reynslunnar hér í hv. Nd.
Reyndar þarf engan að undra þótt þetta frv. eigi góðu fylgi að fagna á hv. Alþingi þar sem aðdragandi þess og undirbúningur hefur byggst á mjög breiðum pólitískum grundvelli. Frv. var samið af milliþinganefnd sem í áttu sæti fulltrúar allra þingflokka og allt starfandi alþm. sem í nefndinni sátu.
Eins og fram kemur í grg. fyrir þessu frv. varð samkomulag um það á síðasta reglulegu Alþingi milli forseta Alþingis og formanna þingflokka að leggja til að níu manna nefnd alþm. yrði falið að endurskoða gildandi lög um þingsköp. Var í því samkomulagi gert ráð fyrir að aðalforsetar þingsins, þrír, sætu í nefndinni ásamt einum fulltrúa frá hverjum þingflokki. Var flutt till. til þál. um þetta efni og var hún samþykkt í Alþingi 15. des. 1983. Samkvæmt þessari þál. kaus Alþingi sex alþm. í nefndina auk þingforsetanna þriggja. Skipuðu nefndina eftirtaldir alþm.:
Þorv. Garðar Kristjánsson, forseti Sþ.,
Salome Þorkelsdóttir, forseti Ed.,
Ingvar Gíslason, forseti Nd.,
Helgi Seljan, fulltrúi Alþb.,
Eiður Guðnason, fulltrúi Alþfl.,
Stefán Benediktsson, fulltrúi BJ,
Ólafur Jóhannesson, fulltrúi Framsfl.,
Kristín Halldórsdóttir, fulltrúi SK og
Friðjón Þórðarson frá Sjálfstfl.
Samtals níu nefndarmenn, fimm úr hópi fylgismanna ríkisstjórnar og fjórir stjórnarandstæðingar. Við andlát Ólafs Jóhannessonar tók Páll Pétursson sæti hans.
Formaður nefndarinnar var Þorv. Garðar Kristjánsson, varaformaður Ingvar Gíslason og ritari Helgi Seljan. Starfsmaður nefndarinnar var Friðrik Ólafsson skrifstofustjóri Alþingis. Alls hélt nefndin 21 eða 22 bókaða fundi að ég ætla. Árangurinn af starfi nefndarinnar var frv. það til þingskapalaga sem lagt var fyrir Ed. Alþingis í síðasta mánuði og hefur nú borist þessari hv. þd. til meðferðar. Flm. frv. eru þeir nm. úr þingskapanefnd sem sæti eiga í Ed., þ. e. Þorv. Garðar Kristjánsson, Salome Þorkelsdóttir, Helgi Seljan, Eiður Guðnason og Stefán Benediktsson. Að sjálfsögðu eiga þeir nm. sem sæti eiga í Nd. hlut að flutningi málsins þótt með óbeinum hætti sé af formsástæðum.
Ekki fer milli mála að þingskapanefndin starfaði vel undir góðri stjórn forseta Sþ. Framan af nefndarstarfinu var lögð áhersla á almennar umræður um þingsköpin þar sem nm. lýstu skoðunum sínum og viðhorfum. Voru þær umræður afar gagnlegar, enda komu fram flest þau sjónarmið sem ætla má að uppi séu um kosti og galla gildandi þingskapa. Ítarlegar umræður um almenn viðhorf í þingskapamálum, þ. e. á skipulagi þingsins, urðu strax til þess að fækka álitaefnum og ágreiningsatriðum sem að sjálfsögðu komu fyrir þótt ekki væri það í sérstaklega ríkum mæli. Og því meira sem álitaefnin voru rædd í sambandi við nákvæma yfirferð hverrar einustu greinar gildandi þingskapalaga fækkaði ágreiningsefnum og álitaefnum að sama skapi og lauk með því að nefndin stóð einhuga að samningu frv. og lagði sameiginlega til að það yrði lagt fyrir Alþingi í þeirri gerð sem nefndin hafði gengið frá því.
Nefndin varð snemma sammála um eitt atriði sem e. t. v. er fremur formsatriði en efnisatriði. en það var að flytja, ef svo má taka til orða, „sjálfstætt“ frv. til þingskapa, þ. e. að flytja ekki frv. til breytinga á gildandi þingskapalögum, þ. e. lögum nr. 15/1936, eins og alloft hefur verið gert. Þótt því fari fjarri að um einhvers konar gerbreytingu sé að ræða á gildandi þingskapalögum er víst að hér er um víðtækari endurskoðun á þingsköpum að ræða en átt hefur sér stað s. l. 48 ár. En leyfist mér, herra forseti, að leggja áherslu á að hér er um endurskoðun á þingsköpum að ræða en ekki grundvallarbreytingu á þeim. Það skýrir að vísu ekki málið að fullu, en sýnir þó að sínu leyti það, sem ég er að segja, að greinatala þessa frv. er hin sama og í gildandi lögum, þ. e. 70 greinar, og kaflaskipting og kaflaheiti eru hin sömu í lögunum og frv. Mér telst svo til að af þessum 70 greinum séu 35, eða helmingur greinanna, óbreyttar að efni miðað við lögin. En það merkir auðvitað, og skal það ekkert undan dregið, að 35 lagagreinum er breytt meira eða minna þannig að efni og orðalag er ekki hið sama og í gildandi lögum. En ástæðan til þessara mörgu breytinga og á það vil ég leggja mikla áherslu er það mat þingskapanefndarinnar að ýmis þróun í tímans rás geri slíkar breytingar ýmist eðlilegar ef ekki beinlínis nauðsynlegar.
Er óhætt að fullyrða að nefndin vann ekki eftir því óæskilega boðorði að breyta breytinganna vegna. Þvert á móti kom það skýrt fram í nefndarstarfinu að nefndarmenn vildu viðhalda þinghefðum og öllu því sem vel hefur reynst í starfi þingsins s. l. 140 ár frá því að Alþingi var endurreist og tók að starfa sem þjóðkjörið þing í nútímaskilningi að segja má. Alþingi voru að vísu ekki sett formleg þingskapalög fyrr en árið 1876, tveimur árum eftir að þinginu var breytt úr ráðgjafarþingi í löggjafarsamkomu. En það er fróðlegt að minnast þess að þingmenn þess tíma voru ekki í vandræðum með að finna nafn á starfsreglur þingsins og kalla þingsköp, en ekki einhverju öðru flatneskjulegra nafni. Starfsreglur og starfsskipulag hins forna Alþingis Íslendinga hétu þingsköp og í Grágás heitir einn kaflinn þingskapabálkur og þar er um að ræða þingskapalög þess tíma. Orðið sköp merkir hér skipulag og er skylt sögnunum að skapa og að skipa. Í forn-norskum lögum, en frá Norðmönnum höfðu Íslendingar þinghefðir, er að finna orðin þingskipan og þingskipunarbálkur, sem eru, næstum að segja, nútímalegri og gagnsærri orð en þingsköp þó við viljum síst skipti á þessum orðum og allra síst við sem sátum í þingskapanefnd og eigum það sameiginlegt að vera fastheldnir á hefðir og ekki breytingagjörn nema nauðsyn krefji.
Það er staðreynd að þrátt fyrir allvíðtækar breytingar sem gerðar voru á þingskapalögum 1915 og aftur 1936 eru þingskapalögin frá 1976 meginstofninn í gildandi þingsköpum og verða svo áfram eftir að þetta frv. tekur lagagildi, ef það tekur gildi sem lög.
Ég mun nú leitast við að gera nokkra grein fyrir hinum veigamestu breytingum eða nýmælum sem þetta frv. hefur að geyma. Geta breytingar þessar ýmist verið efnisbreytingar eða formbreytingar. Meðal þeirra breytinga, sem vert er að minnast sérstaklega á, nefni ég eftirfarandi:
„1. Stjórn þingsins er efld með skipulegum og markvissum vinnubrögðum. Að þessu lúta ákvæði um hlutverk forseta þingsins og ákvæði um verkefni fastanefnda þingsins, svo og ákvæði í 18. gr. og í 28. gr. sem stuðla að því að þingmálum sé útbýtt tímanlega svo að meðferð mála verði dreift sem jafnast á þingtímann.
2. Fjölgað er fastanefndum í Sþ. með því að gera þar ráð fyrir félagsmálanefnd og þau ákvæði er að finna í 15. gr. þessa frv.
3. Settar eru reglur um hnitmiðaðri meðferð þáltill. en verið hefur. Stuðlað er að því að till. til þál. verði aðeins bornar fram í Sþ. Tvær umræður þarf um allar þáltill. til þess að þær nái samþykki til fullnaðar. Tímalengd fyrri umr. er takmörkuð nema um sé að ræða tillögur um tiltekin mikilvæg mál. Reglur þessar miða að því að meira ráðrúm gefist til eiginlegra löggjafarstarfa í þingdeildum.
4. Breytt er reglum um fsp. þannig að umræðan er bundin má segja einungis við fyrirspyrjanda og viðkomandi ráðherra og ræðutími styttur. Með þessu er komið í veg fyrir að almenn umræða drepi á dreif sjálfri fsp. og tilgangi fyrirspyrjanda með henni. Jafnframt gefur þetta meira svigrúm til löggjafarstarfa þingsins með því að umfang fsp. í þingstörfum minnkar.
5. Sett eru ákvæði um umræður utan dagskrár, en um það efni hefur ekkert verið að finna í þingsköpum þótt umræður utan dagskrár eigi sér orðið mjög langa hefð, og mun ég koma nánar að þessu afriði hér á eftir.
Þær breytingar í frv. sem eru fólgnar í lögfestingu á venjum sem fylgt hefur verið í framkvæmd eru annars af ýmsum toga spunnar, t. d. það að varamaður sem gerist aðalmaður tekur sæti í þeirri þd. sem sá sat í sem hvarf af þingi. Fjvn. er heimilað að skipa undirnefnd til starfa í sérstökum verkefnum milli þinga. Þetta hefur verið svo í reynd nú um nokkuð mörg ár. Munnleg skýrsla ráðherra til Alþingis er heimiluð ef ekki verður komið við að prenta skýrslu eða ekki þykir ástæða til. Kveðið er á um málsmeðferð ef þm. forfallast svo að nauðsyn krefji að varamaður taki sæti hans á meðan. Fram er tekið að hvort heldur Sþ. eða þd. megi vísa máli til ríkisstjórnar eða einstakra ráðherra. Ef fram kemur ósk um nafnakall er ákveðið að við henni skuli orðið. Alli eru þetta eðlilegar breytingar, eins konar leiðréttingar eða úrbætur sem varla geta orðið deiluefni.
Þau ákvæði frv., sem fela í sér umorðun eða formbreytingu á gildandi þingsköpum án efnisbreytinga, er að finna á víð og dreif í frv. Þar er að nefna t. d. hlutverk forseta við framkvæmdastjórn Alþingis og skipan og verkefni skrifstofustjóra Alþingis. Því orðalagi sem var eða er nú í gildandi lögum er gerð tillaga um að breyta verulega, enda kom í ljós við yfirlestur þess kafla þingskapanna að flest af því sem þar stendur er ákaflega úrelt að orðalagi og erfitt að festa það öllu lengur í lögum. Og þá er kaflinn um útvarpsumræðu að miklu leyti umorðaður án þess að þar sé um eiginlegar efnisbreytingar að ræða.
Ákvæði gildandi þingskapa, sem felld eru niður í frv. þessu, varða ýmis efni. T. d. eru vinnunefndir svokallaðar lagðar niður, þær hafa aldrei verið virkar, en í vinnunefndum eru formenn nefnda og þessar vinnunefndir hafa í áranna rás ekki sýnt að þær hafi mikið praktískt gildi. Óhlutbundin kosning í nefndir er afnumin. Felld er niður 29. gr. gildandi þingskapa um ávarp þd. eða Sþ. til forseta lýðveldisins, en að sjálfsögðu standa ákvæði 38. gr. stjórnarskrárinnar um þetta efni óhögguð. Okkur þótti óþarfi að taka þetta ákvæði beint úr stjórnarskránni inn í þingsköpin eins og nú er. Slíkt er auðvitað alger óþarfi og varla viðeigandi. Felld eru niður ákvæði sem lúta að því að taka mál út af dagskrá og fá mál tekin á dagskrá.
Af þessari upptalningu má sjá að víða er komið við í breytingum frá gildandi lögum, en ég legg enn áherslu á að í engu tilfelli er ráðist í breytingar að ástæðulausu. Nefndin hefur að sjálfsögðu gild rök fyrir brtt. sínum og telur sig síst af öllu vera að breyta megingrundvelli gildandi þingskapa, hvað þá því meginmarkmiði sem þingsköp hafa, en það er:
1. Að búa þinginu almennt það skipulag og slík starfsskilyrði að það sé fært um að sinna hlutverki sínu sem löggjafarsamkoma.
2. Að tryggja þingmönnum málfrelsi og önnur lýðræðisleg réttindi, og eru þá ekki síst höfð í huga lýðræðisleg réttindi minni hluta þingsins eða stjórnarandstöðu og einstakra þm.
3. Að sjá til þess að meirihlutavilji þingsins sé virtur í samræmi við meginreglur lýðræðisins sem virks stjórnarforms.
4. Að treysta virðingu þingsins og góða reglu með skipulagsbundinni fundarstjórn.
Ekki er ég í vafa um að öllum þessum meginmarkmiðum þingskapa er fullnægt með ákvæðum þessa frv. sem hér er til umræðu. Þetta frv. miðar að því að treysta skipulag þingsins og stjórn þess. Það tryggir þm. málfrelsi og möguleika til þess að lýsa skoðunum sínum og fylgja þeim eftir með þingræðislegum hætti. Frv. virðir rétt minni hluta og tryggir meiri hlutanum það vald sem lýðræðislegt stjórnarform gerir ráð fyrir. Þetta frv. hefur að geyma ákvæði sem treysta virðingu þingsins og tryggja góða reglu á þingfundum. Og reyndar á ég ekki von á að neinn beri brigður á þessar skoðanir mínar og kannske óþarfi að telja það svo nákvæmlega upp.
Þó er ekki því að leyna að í Ed. kom sú skoðun fram hjá einum hv. þm. að með þessu frv. væri verið að skerða málfrelsi þm. Einn þm. af 20 hélt fram slíkri skoðun. Ekki hafði þessi hv. þm. mikinn hljómgrunn fyrir þessa skoðun sína, næstum engan held ég, og ég vona að hv. þm. Nd. átti sig á að hér er um mikinn misskilning að ræða. Satt er það að finna má í þessu frv. ákvæði um hraðari meðferð og afgreiðslu þáltill. og fsp. en nú tíðkast. Í því sambandi, þ. e. til þess að tryggja sem skjótasta afgreiðslu mála, er gert ráð fyrir að þm. temji sér knappan og hnitmiðaðan ræðustíl sem er sérstakt ræðuform og síst áhrifaminna né minna metið af smekkmönnum á mál og stíl en maraþonræður og linnulausar málskrafstölur þar sem kjarni máls týnist í endurtekningum og stagli um aukaatriði. Það er ekki eðlileg lýðræðisást sem knýr menn til að flytja langar ræður og þeir sem aðhyllast stutt og hnitmiðað ræðuform eru ekki fyrir þá sök andstæðingar lýðræðis. Síður en svo. Einar Þveræingur og Abraham Lincoln voru ekki minni ræðusnillingar en Adolf Hitler né að þeim skytist fremur í réttsýni en honum. Einar Þveræingur og Abraham Lincoln tömdu sér gagnorðan ræðustíl, en Adolf Hitler flutti langlokur. Ræður Einars Þveræings og Abrahams Lincolns skírskota til lýðræðissinna og þeirra, sem frelsi unna, og þær lesa menn upp aftur og aftur, kynslóð eftir kynslóð, en ræður Adolfs Hitlers ná einskis manns eyrum nú á dögum.
Það er því alls ekki sjálfgefið að verið sé að fara inn á braut takmörkunar á málfrelsi þegar settar eru reglur um sérstaka meðferð tiltekinna þingmála, í þessu tilfelli fsp. og sumra þáltill., því að þessar fyrirhuguðu breytingar eiga ekki að ná til allra þáltill., þ. e. ekki þeirra sem fjalla um stjórnskipun, utanríkis- og varnarmál eða staðfestingu framkvæmdaáætlana, alþjóðasamninga eða milliríkjasamninga. Hvað fsp. varðar tekur breytingin til þess, að umræðan yrði fyrst og fremst bundin við fyrirspyrjanda og þann ráðherra sem hlut á að máli, en ekki gert ráð fyrir almennum umræðum um fsp. og þó með þeim fyrirvara að hver þm. getur gert stutta athugasemd ef honum þykir ómaklega að sér vikið eða öðrum mönnum eða efnisatriðum málsins ekki gerð rétt skil. Hér er því ekkert tilefni til þess að tala um höft á málfrelsi og satt að segja undarlegt að slíkri ásökun skuli vera hreyft. Ég held þvert á móti að það mundi gefa fsp. og fyrirspurnatímum Alþingis aukið gildi ef þessar fyrirhuguðu breytingar næðu fram að ganga.
Ég vík þá aftur að þeim breytingum sem ráðgerðar eru varðandi lengd ræðutíma í sambandi við þáltill. Þar hlýt ég að leggja áherslu á að sú takmörkun ræðutíma sem tillaga er um á eingöngu við tilteknar þáltill. og auk þess er takmörkunin aðeins bundin við fyrri umr. um viðkomandi mál. Það eru engar tímatakmarkanir við síðari umr. mála. Og eins og ég var að enda við að segja ná þessar tímatakmarkanir ekki til tillagna sem fjalla um stjórnskipun, utanríkis- og varnarmál eða staðfestingu framkvæmdaáætlana, alþjóðasamninga og milliríkjasamninga.
Takmörkun ræðutímans í sambandi við þáltill. er sú að frsm. till. hefur skv. þessum ákvæðum í frv. 15 mínútur til framsögu við fyrri umr. og má tala tvisvar, þ. e. samtals 30 mínútur. Aðrir þm. hafa 8 mínútur til umráða í þessu tilfelli og mega þeir einnig tala tvisvar, samtals 16 mínútur. Ráðherrar hafa sama tíma og aðrir þm., þ. e. 2 x 8 mínútur. Ég vil geta þess til fróðleiks að það tók Abraham Lincoln um 3 mínútur að flytja Gettysborgarávarpið. Margir telja að ef hann hefði lengt það um helming mundu áhrif þess hafa minnkað um helming. Ég spyr hv. þdm.: Er ástæða til að tala um að verið sé að þrengja málfrelsi manna þótt nauðsyn nútímaþinghalds krefjist þess að menn temji sér gagnorðan ræðustíl í einstöku falli?
Og leyfist mér, herra forseti, að minna á og undirstrika sérstaklega að reglur um meðferð lagafrumvarpa eru með öllu óbreyttar frá því sem gildandi lög ákveða. Þar er ekki stafkrók breytt. Þar gildir enn sú almenna regla að ekki eru settar neinar hömlur á ræðutíma.
Ég vona því, herra forseti, að þó að einn hv. þm. í Ed. hafi hreyft athugasemdum um fyrirhugaðar tímatakmarkanir í sambandi við vissar þáltill. og fsp. átti menn sig á ástæðum þess að þessar tillögur eru gerðar og geri sér grein fyrir að hér er ekki um neina skerðingu á tjáningarfrelsi að ræða. Sá, sem slíku heldur fram, fer með ansi miklar öfgar að mínum dómi. Tilgangurinn með þessum breytingum er að gera þingstörfin skjótari og skilvirkari, að ekki sé beinlínis sagt að verið sé að lyfta þinginu, einkum umræðum í Sþ., upp úr þeirri lægð þreytu og leiðinda sem þingið er fallið í svo að afleiðingar þess liggja á mörgum þm. eins og mara. Málþófið í Sþ. er farið að orka lamandi á fjölda þm., þeir hafa hvorki sálar- né líkamsþrek til að sitja undir slíkum ósköpum og telja sér ekki skylt að þola þá nauð sem það er að hlusta endalaust á misjafnlega vel fluttar maraþonræður eða sviðsettar umræður um einhvern hégóma sem þeir vilja ekki hafa sérstök afskipti af og telja sig auk þess hafa rétt til að bregðast við með þögn og afskiptaleysi, jafnvel fjarvistum. Ég held að þingflokkar og einstakir þm. ættu að bregðast við þeirri hættu að Alþingi breytist í „málskrafssamkundu“, svo notað sé orð núverandi forseta sameinaðs Alþingis, með því að virða og skilja þær reglur sem þingskapanefnd hefur orðið ásátt um að leggja fyrir þingið sem endurbætur á gildandi þingskapalögum.
Áður en ég lýk máli mínu, herra forseti, þá ætla ég að víkja að eftirtektarverðu nýmæli sem boðað er í þessu frv. og aðeins hefur verið minnst á áður. Ég leyfi mér að nefna ákvæði 32. gr. um umræður utan dagskrár og ég leyfi mér að kalla það nýmæli vegna þess að þetta er í fyrsta skipti sem það er lagt til að lögfestur sé réttur þm. til þess að kveðja sér hljóðs utan dagskrár og taka upp mál fyrirvaralítið án þess að þau séu í venjulegum búningi þingmáls. Þessi réttur er nýmæli í lögum. Hitt er annað mál að umræður utan dagskrár hafa tíðkast um langa hríð og hafa öðlast sinn sess í starfsemi þingsins. Hér er því verið að lögfesta þingvenju og í því er nýmæli í 32. gr. 2. mgr. fólgið fyrst og fremst.
En nýmæli í 32. gr. eru þó ekki eingöngu formlegs eðlis, það er ekki aðeins verið að staðfesta viðtekna venju. Nýmælið snertir einnig efni þessa máls. Að mínum dómi er með 32. gr. verið að auka rétt þm. til að hreyfa máli utan dagskrár frá því sem nú er. Mér hefur verið sagt að einhver þm. í hv. Ed. hafi haldið því fram að í 32. gr. þessa frv. væru ákvæði sem skertu rétt þm. til að kveðja sér hljóðs utan dagskrár. Ef það er satt, sem ég naumast trúi, að einhver þm. hafi látið slíka skoðun í ljós, þá er mér óskiljanlegt út frá hvaða forsendum hann gengur. Ég fæ ekki séð að 32. gr. frv. gefi tilefni til að halda því fram að verið sé að skerða rétt þm. þegar bæði er verið að lögfesta reglur um þennan rétt þm. og útvíkka réttinn. Eins og ég skil 32. gr. er hinum venjuhelgaða rétti fundinn lagastafur í 2. mgr. 32. gr. Það er verið að lögfesta rétt sem venjan hefur helgað og skilyrðin til þess að þm. geti neytt þessa réttar eru hugsuð þau sömu og gilt hafa í samskiptum forseta og þm. um þetta efni í áratugi. Ég vil leyfa mér, herra forseti, að leggja mikla áherslu á þennan skilning minn, ekki síst vegna þess að ég þykist gera mér góða grein fyrir gildi umræðna utan dagskrár og ég tel mig ekki í hópi þeirra sem hafa stundum haft við orð að umræður utan dagskrár hafi vaxið svo að þær eigi hlut að töfum eða hægagangi í þingstörfum. Þetta er að mínum dómi misskilningur. Utandagskrárumræður tefja þingstörf miklu minna en margir vilja vera láta. Hins vegar væri illa farið ef þetta lýðræðislega form yrði misnotað. Ég vona að aldrei þurfi til þess að koma. En þm. vita nú rétt sinn í þessu. Og ég tel það ekki skaða veg og virðingu þingsins þótt viðkomandi forseta sé ætlað að hafa nokkurt tilsjónarvald um framkvæmd þessa réttar þm., enda hefur svo ætíð verið og ekki komið að sök. Ofríki forseta er enginn meginkvilli í starfsháttum Alþingis. Yfirleitt held ég að auðvelt sé að hræra þá menn til sanngirni sem veljast til að vera forsetar og reyndar vil ég ganga svo langt að halda því fram að í þingsköpum eigi beinlínis að ganga út frá því að forsetar þekki skyldur sínar sem vörslumenn lýðræðislegra réttinda og þinglegrar hegðunar.
Og nú vil ég, herra forseti, beina athygli hv. þm. sérstaklega að fyrri málsgr. 32. gr. frv. Ef það er svo að síðari málsgreinin sé aðeins lögfesting á viðtekinni þingvenju, þá er alveg víst að í fyrri málsgr. 32. gr. felst nýmæli sem ég tel að sé útvíkkun á rétti þm. til þess að taka upp mál utan dagskrár, eins konar viðbót við þann rétt sem þm. hafa haft samkvæmt venju í nokkra áratugi. Ef vel tekst til gæti þetta ákvæði hleypt fjöri í starfsemi sameinaðs Alþingis sem því miður liður fyrir langlokuræður og leiðindamas. Í þessari frvgr. er gert ráð fyrir því að á venjulegum fundartíma, þ. e. á dagtíma þingsins í Sþ., geti þm. tekið upp í örstuttu máli einhver þau málefni sem þeir vilja vekja sérstaka athygli á, hvort heldur í formi yfirlýsinga eða fyrirspurnar. Ræðutími er hugsaður mjög takmarkaður, 3 mínútur fyrir málshefjanda og 2 mínútur fyrir aðra þm. Þó má hver þm. tala tvisvar í slíkum umræðum. Þetta ákvæði er algert nýmæli og ætti að geta gefist vel, ef rétt er á haldið, og fjörga þingstörf.
Herra forseti. Ég mun nú láta þessu máli mínu lokið. Að sjálfsögðu legg ég til að málinu verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. En jafnframt legg ég til, enda er um það samkomulag og það er sami háttur og var í Ed., að það verði kosin sérstök nefnd, níu manna nefnd, til þess að fjalla um þetta mál. Og ég held að með því þá sé unnt að tryggja að allir þingflokkar eigi fulltrúa í nefnd sem fjallar um þetta mál, því að ef málinu væri vísað til allshn., sem auðvitað kæmi til greina, þá stendur svo á að a. m. k. einn þingflokkurinn á þar ekki fulltrúa.
Ég vænti þess svo, herra forseti, að þegar þessari umr. lýkur verði málinu vísað til 2. umr. og jafnframt verði tekið undir þá tillögu mína að kosin verði sérstök níu manna nefnd til að fjalla um frv.