13.05.1985
Efri deild: 71. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5126 í B-deild Alþingistíðinda. (4381)

470. mál, Þroskaþjálfaskóli Íslands

Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég vil aðeins koma hér og fagna því að verið er að koma þessari lögskipan á málefni þroskaþjálfamenntunar hér á landi. Ég á ekki sæti í hv. heilbr.- og trn. Ed., en við yfirlestur þessa frv. rak ég augun í eitt atriði sem mig langar til að vekja athygli á hér og biðja annaðhvort hv. formann nefndarinnar eða frsm. hennar að svara mér hér varðandi 5. gr. Þar er verið að ræða um inntökuskilyrði í skólann og í b-lið er kveðið á um stúdentspróf eða hliðstætt nám. Í athugasemdum við 5. gr. stendur hins vegar, með leyfi forseta: „Ekki er í reynd lögð til nein efnisbreyting varðandi það sem þegar hefur verið í gildi.“ Aðeins framar kemur í ljós að tveggja ára framhaldsskólanám hefur hingað til gilt.

Spurning mín er því sú: Hvernig ber að skilja þetta misræmi á milli hljóðan orða í greininni annars vegar og efni skýringa í athugasemdum við greinina hins vegar? Ef athugasemdir við greinina eru teknar gildar væri eðlilegra að b-liður 5. gr. hljóðaði svo: „Að minnsta kosti tveggja ára framhaldsskólanám eða annað hliðstætt nám.“ Ég vona, herra forseti, að formaður hv. heilbr.- og trn. eða frsm. nefndarinnar geti upplýst mig um þetta.