13.05.1985
Efri deild: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5134 í B-deild Alþingistíðinda. (4414)

488. mál, orkulög

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Ég verð að játa að ég ber ekki alveg sömu trú til stofnana og hæstv. iðnrh. og hv. 5. landsk. þm. Ég hef alltaf litið á Orkustofnun sem hálfgerðan óskapnað. Þar er blandað saman þremur kannske ekki óskyldum en þremur verkþáttum sem alls ekki eiga þó heima undir einu og sama þaki. Orkustofnun er að hluta til verktakafyrirtæki þar sem voru Jarðboranirnar sem nú er reyndar verið að aðskilja. Að hluta til er það ráðgjafarfyrirtæki. Sú deild gæti í sjálfu sér alveg eins verið innan Landsvirkjunar. Og að hluta til er Orkustofnun hreint og beint rannsóknafyrirtæki sem á heima innan Háskóla Íslands. Það þýðir ekki að fyrirtæki eins og hér er um rætt geti ekki fyllilega lifað einhvers staðar í okkar þjóðfélagi, en ég sé ekki hvers vegna þetta þarf endilega að vera enn eitt æxlið á Orkustofnun og áskil mér allan rétt til þess að hafa margar aths. við þetta frv. fram að færa sem kannske ganga eilítið lengra viðvíkjandi þeim greinum sem þetta frv. fjallar um.