13.05.1985
Efri deild: 72. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5149 í B-deild Alþingistíðinda. (4428)

422. mál, launakjör bankastjóra og ráðherra

Valdimar Indriðason:

Virðulegi forseti. Ég ætlaði ekki að blanda mér í þessa umr. en hart er að sitja undir þessum umr. án þátttöku. Ég er víst einn af hinum seku, á sæti í einu bankaráðanna sem hefur verið mjög hart deilt á í öllum þessum umr. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál vegna ágætrar ræðu þess sem hér var á undan mér. hv. 2. þm. Austurl. En ég vil aðeins taka fram og undirstrika það sem þar var sagt, að bankaráðin hafa ekkert gert af sér í þessu máli sem hægt er að deila á þau fyrir. Þau voru aðeins að fara eftir þeim lögum og reglum sem eru í gildi í þessum efnum. Þess vegna þótti mér það ekki smekklegt áðan hjá frsm., hv. 4. þm. Vesturl., þegar hann talaði um hvað Nordal hefði verið sérstaklega duglegur við að þrýsta þessum launamálum sínum í gegn hjá Seðlabankanum fyrir áramót. Ég skal engan dóm á það leggja, ég hef ekki orðið var við slíkt. Hins vegar er það rétt að þetta var samþykki sama daginn, 28. des., hjá bæði Seðlabanka og Landsbanka. Hvor var á undan í þeim efnum skal ég ekki um segja. En hinir komu smátt og smátt á eftir í þessum efnum þannig að það hefur verið samræmi í launakjörum þessara manna.

Undanfarin ár hefur aldrei verið um þetta rætt nokkurn skapaðan hlut. Bankastjórarnir hafa fylgt launum hæstaréttardómara. Þannig hefur þetta verið í gegnum árin, ég veit ekki hvað mörg ár, og þetta hefur ekki verið sent til sérstakrar meðferðar, þetta hefur enginn gagnrýnt. Frá 1970, eins og síðasti ræðumaður sagði, að breytt er fyrirkomulagi í bílamálunum þannig að bankarnir sköffuðu ekki lengur bankastjórum bíla til afnota sem voru í eigu bankans. Sá ágæti fjmrh., sem þá var, Magnús heitinn Jónsson, taldi til mikilla bóta að breyta slíku í kerfinu. Ég hef séð bréf til Landsbankans, ég hef ekki séð fyrirmæli um þetta til okkar í Útvegsbankanum en þetta var sent öllum ríkisbönkunum. Þetta var svo gert á sama hátt í öllum bönkunum. Eins og hv. 2. þm. Austurl. sagði, þegar talan allt í einu kemur upp á borðið eins og hún raunverulega er, þá er ljóst hvað um er að ræða. Það eru 450 þús. kr.

Ég undirstrika það sem hann sagði hér áðan að fólkið á götunni heldur almennt að ríkisbankarnir hafi verið að færa sínum bankastjórum þetta á silfurbakka núna um þessi áramót, hreina launauppbót upp á 450 þús. kr. Fyrr má nú rota en dauðrota. Svo erum við kallaðir sekir sem að þessum málum stöndum en við erum bara að afgreiða mál skv. ákvæðum í reglugerðum í bankaráðunum. Þessum áróðri mótmæli ég harðlega. En það er rétt að benda á þetta og við höfum kannske verið of hæverskir, þessir bankaráðsmenn. að vera ekki að setja neitt í fjölmiðla í þessum efnum til að bera af okkur sakir. Við höfum alls ekki verið að því á nokkurn hátt. En ég veit að þeir sem kynna sér þessi mál eiga að vita hvernig þessi mál eru tilkomin og þarf það ekki að undirstrikast frekar.

En aðeins að lokum, ég er ekki sammála flm. um það að það muni bæta þessi mál að láta þetta fara í Kjaradóm. Það er ekki af því að ég óski eftir endilega að fá að fjalla um þessi mál í bankaráðunum, það er ekkert skemmtilegra en hvað annað. En ég ætla ekki að taka þann kaleik frá þeim því að í ljósi þess hvernig Kjaradómur vinnur og hefur sínar reglur til að vinna eftir er ég handviss um að þegar allt hefur verið metið inn í þau kjör sem hann á að dæma þessum mönnum, öll þau fríðindi og annað sem þar hefur verið í gegnum árin, þá hljóti þau laun að hækka verulega frá því sem er í dag. Því skulu menn vera algerlega viðbúnir að þau munu hækka. Það verður ekki skorið þar neitt niður frá því sem er núna. Þetta vil ég benda á. Þess vegna tel ég það ekki rétta leið til að fría sig vanda í augnablikinu eða ádeilu að hlaupa undir Kjaradóm. Eins og í pottinn er búið mun það ekki lækka launakjör þessara manna.