13.05.1985
Neðri deild: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5169 í B-deild Alþingistíðinda. (4472)

86. mál, áfengislög

Stefán Valgeirsson (frh.):

Herra forseti. Ég var búinn að segja það í ræðu minni um daginn að það eina sem hv. allshn. hefði verið sammála um hefði verið það að það frv. sem hv. flm. lögðu fram í þessu máli væri ónothæft. Um annað komu þeir sér ekki saman. Ég gat um það að nefndin hefði kallað til sín ýmsa menn og fengið umsagnir annarra og allir þeir læknar sem rætt var við og þeir sem best þekkja til þessara mála lögðust á móti frv. Ég gat um það að aukning á neyslu áfengis hefði sums staðar verið upp í sex sinnum meiri en aukningin hér á landi og það skar sig alveg úr þar sem frjáls aðgangur var að áfengi og sérstaklega þar sem bjór var seldur.

Ég gat um það líka að í ljós hefði komið í Hamborg við athugun á því hvað ylli vinnuslysum á árunum 1976–1983 að 82.5% þeirra sem lentu í slíkum slysum voru með í blóði sínu meira en 1.5% áfengis en aðeins 5.8% voru með minna en 0.5% áfengis í blóði.

Ég gat um það líka að ég mundi taka til meðferðar ræðu formanns nefndarinnar, hv. þm. Gunnars G. Schram, sem er doktor og prófessor í lögfræði, en þar sem hann er ekki viðstaddur mun ég geyma mér það til 3. umr.

Ég var í ræðu minni þar staddur að ég var kominn að því að lesa hér úr skýrslu um þessi mál. Félmrh. Breta gerði í ræðu á árinu 1977 harða hríð að drykkjusiðum þar í landi og bjórkrám. Kvað hann krárnar oft sveipaðar rómantískum ljóma fyrir sjónum þeirra sem litt þekktu til. Hann benti á að á s. l. tuttugu árum hefði ölneysla aukist um 50%. Neysla sterkra drykkja hefði hins vegar þrefaldast á sama tíma og neysla léttra vína fjórfaldast. Á sama tíma og neysla sterkra drykkja eykst um 54% á Íslandi eykst hún um 300% eða sex sinnum meira í Englandi og búa þeir þó síður en svo við skort á bjórkrám eða áfengu öll.

21. Hætta er á því að auðveldur aðgangur að áfengu öll leiði til aukinnar drykkju á vinnustöðum og þar með meiri hættu á vinnuslysum, lélegum vinnubrögðum og til tíðari fjarvista.

22. Nýjar rannsóknir sýna að því fleiri áfengistegundir sem eru á boðstólum og því víðar þeim mun meira er drukkið. Drykkjusjúklingum fer fjölgandi ef drykkja eykst.

23. Jafnslæmt er fyrir drykkjusjúkling að drekka eina ölkrús og viskístaup. Á þennan sannleika ber að leggja megináherslu. En það er líka jafnhættulegt fyrir barnið eða unglinginn, og börn eiga áreiðanlega greiðari aðgang að öli en viskí, eða sú er a. m. k. raunin meðal nágrannaþjóða okkar.

24. Eina raunhæfa leiðin til þess að koma í veg fyrir fjölgun drykkjusjúkra er að draga úr neyslunni. Til þess eru ýmis ráð. Og þótt góðra gjalda sé vert að lækna drykkjusjúka og gefa þeim að nýju þrek og sjálfstraust er hitt þó mikilvægara að leitast við að koma í veg fyrir að menn verði áfengi að bráð.

26. Færeyingar leyfa sölu áfengs öls um mitt ár 1980. Ölið er aðeins selt á tveimur stöðum á eyjunum. Árið 1979 drukku þeir að meðaltali 5.3 lítra af hreinum vínanda á mann 15 ára og eldri. Árið 1983 drukku þeir 6.2 lítra að meðaltali. Sambærilegar tölur á Íslandi eru 4.5 árið 1979 og 4.4 árið 1982.

27. Þegar byrjað var að flytja inn öl og hraðvíngerðarefni benti áfengisvarnaráð á að með slíkum innflutningi væri í raun og veru stuðlað að lögbrotum. Þá vakti ráðið einnig athygli stjórnvalda á því að síðar mundu þau öfl sem hagnast á sölu og dreifingu áfengs öls nota innflutning þennan sem skálkaskjól í hagsmunabaráttu sinni, viðleitninni til þess að koma framleiðslu sinni sem víðast á markað. Á það sama benti áfengisvarnaráð þegar sett var reglugerð um heimildir ferðamanna til þess að flytja áfengt öl inn í landið. Um þessar mundir kemur greinilega og óþyrmilega í ljós að mat áfengisvarnaráðs hefur í báðum tilvikum reynst rétt.

Þegar gefin var út reglugerð um heimildir ferðamanna til þess að flytja áfengt öl inn í landið rannsakaði Sigurður Líndal lögmæti slíkra heimilda. Niðurstaða hans var sú að innflutningur öls væri brot á íslenskum lögum. Að sömu niðurstöðu komst Ólafur Walter Stefánsson sem málið kannaði fyrir dóms- og kirkjumálaráðherra.

29. Óheft frelsi áfengisauðmagnsins til framleiðslu, dreifingar og sölu þessa fíkniefnis mun óþekkt nú á dögum þó að ýmsir gerist til þess að halda slíkri stefnu fram. Meira að segja Frakkar hafa komið á ýmsum hömlum og hefur tekist með þeim, en ekki fræðslunni einni, að minnka drykkju verulega.

30. Ekki þarf að fara mörgum orðum um hina dönsku drykkjusiði Grænlendinga. Flestir hafa heyrt um afleiðingar þeirra.

31. Ölgerðir eyða hundruðum milljóna króna í áróður, beinan og óbeinan. Óafvitandi gerast ýmsir sakleysingjar áróðursmenn þeirra afla sem hafa hag af því að sem flestir verði háðir því fíkniefni sem lögleitt er á Vesturlöndum, þ. e. áfengi. Því má bæta við að samtök bruggara greiða hinum lakari blöðum stórfé fyrir að birta staðleysur um áfengismál, oft undir yfirskini vísindamennsku. Slæðast slíkar ritsmíðar stundum inn í blöð hérlendis.

32. Ef enginn hefði fjárhagslegan ábata af drykkju annarra og þar með þeim hörmungum sem af henni hljótast væri áfengismálastefna þjóðarinnar raunsærri og heiðarlegri, sbr. baráttu gegn öðrum vágestum, svo sem holdsveiki, lús og berklum.

33. Þjóðaratkvæðagreiðsla um mál þar sem jafnmiklir hagsmunir eru í húfi og varðandi sölu áfengs öls er enn vafasamari nú en var fyrr á öldinni. Skv. rannsóknum sérfræðinga Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar WHO vörðu framleiðendur öls og annarra áfengra drykkja árið 1981 jafnvirði 60 milljarða íslenskra króna til auglýsinga og áróðurs. Mikinn barnaskap þarf til að ætla að ekkert af því fé sé notað hérlendis og verði óspart notað í hagsmunabaráttu þessara afla ef til þjóðaratkvæðagreiðslu kemur.

34. Nú er að störfum nefnd sem skipuð var af heilbr.og trmrh. í samræmi við þál. sem samþykki var samhljóða á Alþingi 7. maí 1981. Sú nefnd vinnur að undirbúningi tillagna um mörkun opinberrar stefnu í áfengismálum. Vart er svo brýnt að bæta fleiri tegundum áfengis á sölulista ÁTVR og vínsöluhúsa í landinu að ekki megi bíða þess að nefndinni gefist kostur á að ljúka störfum og leggja tillögurnar fyrir ríkisstj.

Mér þykir rétt að í þingtíðindi komist sú bráðabirgðaskýrsla sem umrædd nefnd skilaði frá sér 1. nóv. 1983. Eftir því sem fram hefur komið er von á lokaskýrslu frá þessari nefnd nú á næstunni. Eins og fram kom í ræðu formanns nefndarinnar, dr. Gunnars Schram, þá lagði hann fram þá tillögu í nefndinni að málinu yrði vísað til ríkisstj. vegna þess að þessi nefnd, sem var sett á stofn, eins og fram hefur komið, 19. maí 1981, hefði ekki enn lokið störfum. Það væru eðlileg vinnubrögð hér á hv. Alþingi.

Hér koma frá nefnd um könnun opinberrar stefnu í áfengismálum tillögur um sérstakt átak í áfengismálum: Kostir:

1. Torveldað verði aðgengi að áfengi með eftirtöldum ráðum:

a) Áfengisútsölum og vínveitingastöðum verði ekki fjölgað næstu tvö árin, eða á meðan nefndin starfar.

b) Sett verði hnitmiðuð ákvæði um framkvæmd skoðanakannana um opnun og lokun áfengisútsala þannig að þær skuli auglýstar með minnst eins mánaðar fyrirvara.

c) Standi til að opna nýja áfengisútsölu í Reykjavík eða á öðrum stöðum þar sem áfengisútsala er þegar leyfð skal meiri hluti kjósenda vera því samþykkur.

d) Skoðanakannanir, sbr. b.- og c.-lið, fari eingöngu fram um leið og sveitarstjórnarkosningar.

e) Endurskoðaður verði opnunartími áfengisútsala með styttingu fyrir augum og tilliti til hátíðisdaga (t. d. aðfangadags og gamlársdags).

f) Undir engum kringumstæðum verði heimilað að veita sterkt áfengi á vínveitingastöðum fyrir kl. 18.

g) Á vegum hins opinbera (ríkis, sveitarfélaga og opinberra stofnana) verði einvörðungu veitt létt vín.

h) Innflutningur á bjór til ferðamanna verði stöðvaður og bjórsala á Keflavíkurflugvelli verði aflögð.

2. Stórhert viðurlög gegn ólöglegri áfengissölu:

a) Þyngri refsiákvæði en nú eru gegn leynivínsölu.

b) Strangari ákvæði verði sett um sölu til ófullveðja fólks en um leynivínsölu.

3. Verðlagning áfengis:

a) Hækkun útsöluverðs til samræmis við verðlagsþróun fimm síðustu ára og síðan fylgi verð á áfengi verðlagshækkunum, auk þess sem sterkt áfengi verði hækkað tvöfalt meira en verðlag á næstu tveimur árum.

b) Ofan á útsöluverð áfengis verði bætt 2% er renni til heilsugæslu, fræðslu og annars forvarnarstarfs eftir nánari tillögum nefndarinnar.

c) Sérstakur áfengisskattur verði settur á vínveitingahús til þess að draga úr neyslu sterks áfengis. Skattur þessi skal vera 10% af útsöluverði áfengis, þ. e. 21% og yfir að vínandamagni, og skal hann renna til þjálfunar starfsmanna heilsugæslunnar til að sinna lögboðinni heilsuvernd á þessu sviði, sbr. nánar 19. gr. laga nr. 59/1983, um heilbrigðisþjónustu. Ágóði vínveitingahúsa hækki ekki.

4. Bannaður verði innflutningur á efnum og tækjum sem bersýnilega eru ætluð til öl- og víngerðar.

5. Umboðsmannakerfið.

Kerfið verði lagt niður og unnið að umboðsöflun fyrir ríkið þannig að umboðslaun rynnu í gæsluvistarsjóð óskert.

Verði ofangreindu ekki viðkomið er eftirfarandi lagt til:

a) Sérstakt skráningargjald á áfengistegundir.

b) Árlegt leyfisgjald af umboðsleyfi.

c) 20% umboðslauna renni í gæsluvistarsjóð.

6. Fræðsla um áfengi og önnur vímuefni:

a) Ráðinn verði sérstakur fræðslufulltrúi í menntmrn. til þess að skipuleggja og fylgja eftir fræðslustarfi í skólum, þ. á m. við þjálfun kennara til að geta sinnt þeirri lögbundnu fræðslu. Skal hann starfa í nánu sambandi við áfengisvarnaráð og heilbrigðisyfirvöld.

b) Komið verði á mjög aukinni fræðslu fyrir ökumenn og þá sem hyggjast endurheimta ökuskírteini sín.

f) Mjög er misráðið að leyfa það sem nefnt er „hádegisbar“ á vínveitingastöðum.

Auðveldar þetta fólki að halda áfram áfengisdrykkju gærdagsins og ýtir undir vítahring ofneyslunnar. Því er lagt til að sterki áfengi verði aldrei veitt á vínveitingastöðum fyrr en kl. 18.

Reglur um veitingar á léttu áfengi yrðu óbreyttar og mætti því bera það á borð á vínveitingastöðum frá og með hádegi.

g) Opinberir aðilar verða að gera sér grein fyrir þeirri ábyrgð sem á þeim hvílir og þeirri skyldu að ganga á undan og gefa þjóðinni gott fordæmi.

h) Það sem hér er lagt til er sjálfsagður hlutur, þar sem þessi innflutningur á bjór og bjórsala á Keflavíkurflugvelli er brot á ákvæðum áfengislaga um innflutning og dreifingu áfengis. Þessu til staðfestingar skal bent á álitsgerðir lögfræðinganna Sigurðar Líndals prófessors annars vegar og Finns Torfa Stefánssonar þá umboðsfulltrúa og Ólafs W. Stefánssonar skrifstofustjóra í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu hins vegar.

Um 2. tölulið.

Reynslan hefur sýnt að viðurlög við ólöglegri sölu áfengis eru allt of væg. Lítið samræmi er t. d. milli viðurlaga við þessum brotum og tilsvarandi brotum gegn ávana- og fíkniefnalöggjöfinni.

Nefndin telur enn fremur að þyngri refsingar beri að leggja við sölu áfengis til ófullveðja fólks en við leynivínsölu eingöngu. Nú er þessu öfugt farið.

Um 3. tölulið.

a) Það liggur ljóst fyrir að verðlag á áfengi hefur engan veginn fylgt öðru verðlagi síðasta áratug.

Telst nefndarmönnum til að hér muni allt að 40%. Samtímis hefur heildarneysla áfengis aukist. Sama hefur komið í ljós annars staðar, þar sem hækkun áfengisverðs hefur ekki fylgt almennum verðlagshækkunum.

Til þess að draga úr áfengissölu er því vænlegt að hækka útsöluverð áfengis þegar til jafns við aðrar neysluvörur. Til að beina neyslu að veiku áfengi er lagt til að á næstu tveimur árum hækki sterkt áfengi helmingi meira en almennt verðlag.

Eins og í tölul. 1. staflið a, er hér miðað við tveggja ára tímabil, sem nefndin telur nauðsynlegt að nota til að skoða samhengi söluminnkunar á sterku áfengi við tíðni slysa og lögbrota í landinu.

b) Fræðsla og forvarnarstarf er lögboðið á vegum fræðsluyfirvalda og heilbrigðisþjónustunnar. Fjármuni hefur skort til þessa starfs. Nái þessi tillaga fram ætti að vera hægt að veita fé til skipulagningar þessa starfs og fylgja því eftir.

Nefndin bendir á að hið opinbera rækir vel lögbundið söluhlutverk en síður hið lögboðna fræðslu- og forvarnarstarf.

c) Nefndinni þykir ástæða til að reyna að beina áfengisneyslu hérlendis frá sterku til veiks áfengis með því að selja létt áfengi ódýrar en sterkt.

Áfengisskattur á sterki áfengi, selt á vínveitingahúsum, ætti að nokkru leyfi að geta staðið undir menntun, þjálfun og launum starfsfólks er annast forvarnarstarf. Um 4. tölulið.

Innflutningur á efnum og tækjum til öl- og víngerðar hefur leitt til umtalsverðrar einkaframleiðslu á áfengi hér á landi. Ekki verður litið fram hjá þeirri staðreynd að þessar vörur eru bersýnilega ætlaðar til ólöglegra athafna og auka á áfengisneyslu landsmanna. Höft á þennan innflutning væri skref í þá átt að eyða tvískinnungi í stjórnun áfengismála í landinu.

Um 5. tölulið.

Það væri óæskilegt að hérlendir aðilar hafi mikilla hagsmuna að gæta sem umboðsmenn einstakra áfengistegunda. Hið opinbera hefur með höndum einkasölu á áfengi en ber einnig lögum samkvæmt kostnað af illum afleiðingum áfengisneyslunnar. svo sem heilsutjóni af slysum og sjúkdómum, lögbrotum o. s. frv. Umboðsmenn fleyta einungis rjómann af sölunni en leggja ekkert til heilbrigðisþjónustunnar eða forvarnarstarfs.

Nefndin telur skynsamlegast að þær fjárhæðir, sem umboðsmenn nú fá, renni í gæsluvistarsjóð og stæðu þannig undir stofnkostnaði og rekstri stofnana fyrir þá sem hlotið hafa heilsutjón af völdum áfengis.

Ef ekki reynist framkvæmanlegt að koma þessari skipan á, þá fylgir hér varatillaga sem ætti að verða auðveld í framkvæmd. Tillaga þessi tekur mið af þeim reglum sem gilda um lyfjainnflutning, þar sem gert er ráð fyrir ákveðnu skrásetningargjaldi og árlegu leyfisgjaldi. Nefndinni þykir eðlilegt að þeir aðilar sem hagnast fjárhagslega á innflutningi áfengis standi að hluta til undir stofnkostnaði og rekstri stofnana fyrir áfengissjúka. Því er lagt til að 20% umboðslauna renni í gæsluvistarsjóð.

Um 6. tölulið.

a) Til þess að lögboðinni fræðslu um áfengi og vímuefni verði sinnt þarf skipulag og framkvæmd. Það er undrunarefni að ekki hefur enn verið ráðinn sérstakur fulltrúi í menntmrn. til að annast þessi verkefni. Þjálfun kennaraefna á þessu sviði er fáskrúðug. Besti vettvangur raunhæfrar fræðslu er í skólum landsins. Að vel athuguðu máli hefur Menningarstofnun Sameinuðu þjóðanna nú mælt með því að fastir kennarar barna og unglinga annist sjálfir fræðslu um áfengi, tóbak og vímuefni, síður utanaðkomandi aðilar. Fræðslunni skal fléttað sem víðast inn í námsefnið. Þessa fræðslu verður a. m. k. í byrjun að skipuleggja í menntmrn. og því er tillaga um fastráðinn fulltrúa þar lögð fram. Hér er um mjög brýnt mál að ræða.

b) Ökunemar þurfa ítarlega fræðslu um áhrif áfengis á líkamsstarfsemi, viðbrögð og einbeitingu með það fyrir augum að innræta þeim skilning á og tilfinningu fyrir ábyrgð þeirra í umferðinni.

Um 7. tölulið.

Það er staðreynd, þótt furðu sæti, að verð á óáfengum drykkjum getur jafnvel verið hærra en verð á áfengi á veitingastöðum, enda álagningin frjáls. Fer hún í sumum tilvikum upp í 400%. Með slíkri verðlagningu er beinlínis verið að hvetja fólk til að drekka áfengi fremur en óáfenga drykki. Tryggja þarf að verð á óáfengum drykkjum verði hóflegt, eins og reyndar er kveðið á um í áfengislögum, og álagning bundin við hámark, eins og gildir um áfengi. Hámarksálagning yrði þó, þrátt fyrir þetta, enn nokkuð hærri en á áfengi.

b) Það er álit þeirra sem til þekkja að áfengislausir dansleikir séu of fátíðir, ekki síst þeir sem eru ætlaðir ungmennum. Því telur nefndin rétt að binda vínveitingaleyfi því skilyrði að halda reglulega áfengislausa dansleiki skv. nánari reglum.

Um 8. tölulið.

a) Reynslan hefur sýnt að viðurlög við ölvunarakstri hafa ekki dregið úr tíðni hans. Langflestir eru þó þeirrar skoðunar að ölvunarakstur sé vítaverður og taka beri af alvöru á þessu vandamáli. Fjölda alvarlegra slysa má rekja beint til ölvunaraksturs. Það hlýtur því að vera siðferðileg skylda hins opinbera að hamla gegn ölvunarakstri eftir því sem hægt er. Þess vegna er lagt til að stórhert verði viðurlög við ölvunarakstri, sérstaklega við ítrekuðum brotum. Við fyrsta brot skal hinn brotlegi í öllum tilvikum missa ökuskírteinið í eitt ár og skiptir þá ekki máli hversu mikið áfengi er í blóðinu fari það á annað borð yfir leyfileg mörk. Hér verður að hafa í huga þá grundvallarreglu að menn neyti aldrei áfengis ætli þeir sér að stjórna ökutæki. Við fyrsta brot kæmi einnig til sekt sem dómari tæki ákvörðun um og færi eftir áfengismagni í blóði. Til varðhalds fyrir fyrsta brot kæmi eingöngu færi áfengismagn yfir 0.80/100%. Um varðhald skal setja nánari reglur hvað þetta snertir.

Enn fremur er lagt til að þeir sem misst hafa ökuleyfi á þennan hátt skuli skilyrðislaust ganga í ökuskóla þar sem áfengisfræðsla sé fyrir hendi. Að öðrum kosti fengju þeir ekki ökuleyfi aftur.

b) Við ítrekuð brot skal auk sektar og ökuleyfissviptingar ævilangt skilyrðislaust dæma í varðhald, en varðhald getur skv. almennum hegningarlögum verið frá 5 dögum upp í 2 ár.

Ákvæði um tvo valinkunna menn, sem votta skulu um hæfni umsækjanda, hafa þótt óraunhæf og er því lagt til að í þess stað verði það gert að skilyrði að hlutaðeigandi hafi ekki gerst sekur um brot á áfengislöggjöfinni á sviptingartíma.

Sé varðhaldi beitt við ítrekuðum brotum skal undir engum kringumstæðum heimilt að breyta því í sekt með náðun. Það er álit nefndarinnar að mjög sé brýnt að koma á heildstæðum reglum varðandi ökuleyfissviptingar vegna ölvunaraksturs, ekki síst með það í huga að ekki komi til mismunandi dómar eftir því hvaða dómari heldur á málum.

Um 9. tölulið.

Þær reglur sem hér um ræðir mismuna þjóðfélagsþegnunum og verða því að teljast óeðlilegar. Sumir eru þeirrar skoðunar að þessum reglum sé beitt sem kjarabót, sem eitt út af fyrir sig er ærið umhugsunarefni, eigi það við rök að styðjast. Að bjóða áfengissýkingu heim í kjarasamningum hefði einhvern tíma þótt ótækt.

Um 10. tölulið.

Hvað snertir sérstakar viðvaranir í áfengisverslunum og vínveitingahúsum eru lögð til þau tvö grundvallaratriði sem þykja skipta hvað mestu máli í byrjun. Aldrei verður t. d. fullhamrað á því að áfengi er miklu lengur í blóðinu en fólk flest gerir sér grein fyrir.

Um 11. tölulið.

Töluverð brögð hafa verið að því að menn reyndu að komast fram hjá ákvæðum í lögum um auglýsingabann, t. d. í búningi svonefndra „óbeinna auglýsinga“. Má sem dæmi nefna hér margs konar myndir í blöðum og tímaritum, sem sýna áfengi innan um aðrar vörur, t. d. matvörur. Það sem einkum veldur erfiðleikum varðandi framkvæmd auglýsingabanns er að nákvæma skilgreiningu á orðinu „auglýsing“ vantar og enn fremur hvernig framfylgja skuli slíku banni.

Nái tillaga þessi fram að ganga mun nefndin gera tillögur um þessa tvo þætti, þ. e. skilgreiningu á orðinu „auglýsing“ og um það hvernig framfylgja skuli slíku banni.

Greinargerð með tillögum um sérstakt átak í áfengismálum.

Um 1. tölulið.

Nefndarmenn telja að eitt áhrifaríkasta ráð til að draga úr áfengisneyslu sé að torvelda fólki að ná í áfengi. Reynsla annarra þjóða sýnir þetta ótvírætt og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur þetta grundvallaratriði í baráttunni gegn ofneyslu áfengis. Telur stofnunin í raun og veru aðrar leiðir lítt færar. Þau ráð sem nefndin leggur til í þessu skyni eru:

a) Áfengis- og vínveitingastöðum verði ekki fjölgað frá því sem nú er.

Nú hafa hv. alþm. heyrt hvað þessi nefnd, sem var sett á stofn eftir að samþykkt var samhljóða till. hér í hv. Alþingi, leggur til. Ég vil spyrja: Er það í samræmi við það sem meiri hl. allshn. leggur til í þessu máli?

Það hljóta að koma margar spurningar í hugann í sambandi við þessi mál. Ég gat um það í fyrri hluta ræðu minnar, sem ég flutti fyrir helgi, að það væri engu líkara en meiri hl. nefndarinnar hefði verið undir einhverjum áhrifum. Eða hvernig getur það verið, miðað við stöðu mála, miðað við það sem fram hefur komið hjá nefndinni, miðað við það að þessi nefnd sérfróðra manna í þessum málum hefur verið að vinna og er reiknað með að hún skili heildarniðurstöðum á næstu vikum, að hún komist að þvílíkri niðurstöðu? Þessi niðurstaða meiri hl. nefndarinnar er með algerum ólíkindum og ég vil enn og aftur segja: Það er ekki undarlegt þó að okkur alþm., þó að þjóðinni finnist að þessi meiri hl. allshn. hafi verið undir einhvers konar áhrifum, kannske áhrifum frá bjórnum. (Gripið fram í.) Ég vil ekkert segja um það. En ég segi bara einhvers konar áhrifum, því að niðurstaðan, miðað við allt sem liggur fyrir, er alveg með ólíkindum.

Ég er hér með merkilega ræðu sem flutt var 1932 af Vilmundi Jónssyni fyrrv. landlækni. Það var sagt að sú ræða hefði orðið til þess að drepa þá tillögu að leyfa á þeim tíma bruggun áfengs öls. Þessi ræða er því stórmerk. Ég ætla ekki að lesa hana í þetta sinn. En það kann að vera að ég geri það við 3. umr. ef aðrir hafa ekki orðið fyrri til þess í þessari umr.