13.05.1985
Neðri deild: 68. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5197 í B-deild Alþingistíðinda. (4484)
86. mál, áfengislög
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Pálma Jónssyni fyrir þau svör og skýringar sem hann hér veitti við mínum fsp. Það er hins vegar ekki svo að ég telji að þær séu fullnægjandi í þessu máli, sem ég tók hér upp við umr. og varðar einn þátt þessa bjórmáls, þ. e. dreifing á þessari vöru um landið ef samþykkt verður að opna fyrir framleiðslu og sölu hérlendis.
Hv. þm. sagði að hann teldi, og mér skildist að hann mælti þar fyrir hönd meiri hl. allshn., að póstleiðin væri í rauninni ekki nothæf til dreifingar á öll. Það er hins vegar leið sem hefur verið notuð í dreifingu á áfengi víða á landinu, þar sem langt er að sækja í áfengisútsölur og menn skreppa þar ekki bæjarleið, enda víða langt að leita. Ég bendi á í þessu sambandi sem dæmi að á leiðinni frá Selfossi austur um og norður til Akureyrar er aðeins ein einasta áfengisútsala, á Seyðisfirði. Það er spotti á milli eins og menn sjá og þeir sem í viðkomandi landshlutum búa þurfa að fá þessa vöru flutta um langan veg. Þarna er því um verulegt álag að ræða á áfengi keypt eftir póstleiðinni með póstkröfukostnaði og flutningskostnaði, hvað þá þegar kemur að meira magni sem sjálfgert er þar sem um bjórinn er að ræða.
Ég óttast það mjög, að ef ekki verður markaður einhver annar farvegur varðandi dreifingu á áfengu öll, sem ég hefði talið komið fyllilega til álita að gert yrði, þá með breytingu á áfengislöggjöfinni ef nauðsyn krefur, ég hef ekki sett mig inn í einstök atriði þar að lútandi, en ég óttast að heimild til sölu á bjór hérlendis, áfengum bjór, leiði til þess að þrýstingur á opnun á áfengisútsölum vaxi stórkostlega á öllum þéttbýlisstöðum. Og ég er ekkert viss um að það sé það sem menn vilja kalla yfir sig eða telja ákjósanlegt, að skapa slíkan þrýsting vegna tilkomu ölsins.
Menn tala um það í þessari umr., og hafa nokkuð til síns máls, að vilja draga skýr mörk í sambandi við styrkleika á þessu öll þannig að um áfengi sé að ræða. Það væri litið þannig á að þetta lúti ákvæðum áfengislöggjafarinnar. Það er vissulega sjónarmið fyrir sig, en ég er ekki viss um að reyndin verði endilega í samræmi við þetta eða það sé að öllu leyti réttmætt að líta á þetta sömu augum eins og í sambandi við dreifingu sterkra drykkja. Þetta er ekki aðeins spurning um verðjöfnun á ölinu og gífurlegan aukakostnað, sem þeir verða fyrir sem þurfa að sækja þessa vöru eða fá hana flutta um langan veg, og ekki aðeins spurning um plássleysi á pósthúsunum, sem er það sem fyrir liggur og allir sem þar starfa átta sig á, að þau geta ekki að óbreyttu tekið að sér þessa dreifingu svo að vel sé, heldur er það einmitt spurningin um þrýsting á opnun á áfengisútsölum mjög víða í landinu, og þar fyrir utan þrýstingur á að upp verði tekin sala á áfengu öll í almennum verslunum, sem einnig verður þrýst á af ýmsum aðilum, ekki síst þeim sem eiga þar hagnaðarvon. Og ég heyri að það er ekki vilji meiri hluta nefndarinnar að slík yrði þróun mála.
Þetta vildi ég að fram kæmi til viðbótar við það sem ég benti á hér í fyrri umr. um þetta mál.
Það er annað atriði, sem má segja að sé tæknilegs eðlis eða sérstaks eðlis, varðandi brtt. nefndarinnar og það er varðandi margnota umbúðir, krafan um það að ölið sé selt í margnota umbúðum. Ég hnaut ekkert um þetta orðalag þegar ég las yfir brtt. nefndarinnar. Ég hugsa að ég hefði í rauninni tekið undir slíka till. ef ég hefði um þetta fjallað, a. m. k. án mikillar umhugsunar, en athygli mín var vakin á því að þetta gæti verið tvírætt varðandi umhverfisáhrif. Við vitum hvílík glerbrotaalda, ef svo má orða það, gengur yfir í þessu landi, hjá ungu fólki alveg sérstaklega. Ég held að þurfi að yfirvega þetta mál með tilliti til þess og þá alveg sérstaklega að verðið á slíkum margnota umbúðum þurfi að vera þannig að það virkilega veki spurningu hjá þeim sem heldur á tómri ölflösku í hendi sér áður en hann kastar henni og brýtur hana. Það er skelfilegt um að litast sums staðar á samkomustöðum í landinu við núverandi aðstæður eftir útisamkomur, sem sums staðar eru haldnar á fögrum stöðum, og ótrúlegt verk að hreinsa þar upp glerið að slíku loknu. Mér er hins vegar ljóst að mengunin af einnota umbúðum er mikil og sú sóun sem í slíkri notkun felst. En það er bara spurningin: Verða flöskurnar margnota umbúðir? Það getur farið nokkuð eftir verðlagningu og þar með endursölu á slíkum umbúðum. Og ég vil inna eftir því, vænti að það komi fram ef ekki við þessa umr., þá síðar: Hefur verið um þetta rætt sérstaklega og farið yfir þennan þátt mála, m. a. í samráði við náttúruverndaryfirvöld í landinu?
Enn er einn þáttur máls sem ég vil nefna hér og það er spurningin um forskot fyrir innlenda framleiðendur áfengs öls ef heimilað verður. Ég tel að við eigum að íhuga það mjög alvarlega að ganga eins langt í þeim efnum og frekast er talið fært. Það hefur verið fært fram sem rök í þessu máli, ég tek þau út af fyrir sig ekki sem mikilvæg, að hér sé um iðnað að ræða, stuðning við innlendan iðnað. En við skulum ekkert horfa fram hjá því, þeir sem hugsanlega ætla að standa að því að gjalda þessu frv. efnislega atkvæði sitt, að þarna er um iðnað að ræða og þarna skiptir ekki litlu að innlend framleiðsla fái að njóta sín og ávinni sér markað. Ég held að það beri að íhuga það í sambandi við frekari meðferð þessa máls, af þeim sem ekki eru andvígir frv., hvort ekki er réttmætt að setja ákvæði inn í það um aðlögunartíma, t. d. fimm ár, fyrir innlenda framleiðendur og ekki verði heimilað að flytja inn áfengt öl á því tímabili. Ég tel ekkert fráleitt að slíkt fái staðist gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum okkar í þessum efnum, þar sem hér er um að ræða má segja nýja grein. Við höfum sett ákvæði um aðlögun í sambandi við einmitt nýjar greinar eða greinar sem geta átt undir högg að sækja. Að vísu erum við ekki alveg byrjendur í þessu, innlendir framleiðendur hafa framleitt sumir hverjir áfengt öl um alllangan tíma, en vafalaust eru fleiri sem hyggjast hasla sér völl á því sviði ef heimildir verða opnaðar fyrir þessu.
Ég ætla ekki að öðru leyti að ræða hér um þetta mál, svo margar hliðar sem það hefur. Ég lýsti mínum skoðunum hér fyrr við umr. Eftir talsverða umhugsun um þetta efni og án þess að hafa látið truflast af fortölum nokkurra, þá hef ég lesið það sem mér hefur verið sent um þetta efni og íhugað rök með og móti. En þá er það mín niðurstaða að að gefnum ákveðnum forsendum, og ég hef nefnt hér nokkrar spurningar sem mér eru í huga, þá sé það kannske skárri kostur, má orða það, að stíga skrefið og heimila sölu á áfengu öll nú heldur en búa við það ástand sem hér hefur skapast í þessum málum. Ég sé engin merki þess að uppi séu ráðagerðir eða vilji til þess að breyta til með þeim hætti eins og t. d. hv. 3. þm. Reykv. lýsti í sínu máli og er vissulega önnur leið í sambandi við þetta mál, sem væri þá að hreinsa til frá þeirri stefnu sem upp hefur verið tekin hin allra síðustu ár og mjög hefur aukið mismuninn í landinu að þessu leyti og aukið verulega þrýstinginn á að eitt verði látið yfir alla ganga í þessum efnum og sala og dreifing á áfengu öll heimiluð.
Ég er hins vegar ekki í hópi þeirra sem eru sannfærðir um það að slík heimild, sem veitt yrði skv. þessu frv., þýddi aukna áfengisneyslu í verulegum mæli til lengri tíma litið heldur en nú er. Og þaðan af síður er ég sannfærður um að það þýddi verri drykkjusiði í landinu til lengri tíma litið heldur en nú tíðkast, ég er ekki sannfærður um það. Ég er viss um það hins vegar að hér mun koma upp ákveðin alda í landinu þar sem getur skapast visst vandræðaástand, erfiðleikaástand, fyrst eftir að fyrir sölu á áfengu öli er opnað. En ég hef trú á því að með fræðslu og skynsamlegum ráðstöfunum geti slíkt leitað jafnvægis og þurfi ekki á heildina litið að teljast neikvætt frá því ástandi sem við höfum búið við lengi.
Ég fordæmdi hér í ræðu minni fyrr við þessa umr. það sem hv. þm. Pálmi Jónsson mun hafa nefnt yfirdrepsskap í sambandi við áfengismál, pukur og annað af því tagi, og nefndi t. d. ástandið í félagsheimilum okkar um áratatugi í þessum efnum, sem síst væri til fyrirmyndar og hefði áreiðanlega ekki verið til þess fallið að kenna mönnum skynsamlega umgegni við áfengi, síst af öllu æskufólki.
Svo vil ég aðeins snúa máli mínu aftur til hv. þm. Ólafs Þ. Þórðarsonar. Ég er ekki einn af þeim sem liggja undir ámæli hans um að veita frv. þessu stuðning út af persónulegri hagnaðarvon eða af því að ég hafi þegið mútur til að gjalda því stuðning minn. Ég varð afar undrandi þegar ég heyrði þm. mæla þau orð sem hér féllu af hans hálfu og vitnaði til í fyrri ræðu minni við þessa umr. Ég gat út af fyrir sig skilið að hann legði ekki í það að endurtaka þau utan Alþingis, jafnalvarleg og þung og þau voru. Þm. kvartaði mjög undan því, þegar hann flutti mál sitt, að fyrir rannsóknarréttinum væru ekki flm. og þeir sem hann beindi aðdróttunum sínum að, því að þá hefði hann getað lesið sundur sauðina og hafrana. Nú sýnist mér þannig ástatt að allmargir þeirra, sem hann vó að þarna í orðum sínum, séu viðstaddir og ég trúi ekki öðru en hæstv. forseti gefi hv. skrifara sínum tækifæri til þess nú að gera atrennu að viðkomandi þm. og helst að standa við orð sín og upplýsa þd. um þá vitneskju sem hann telur sig búa yfir í þessum efnum. Annað tel ég satt að segja ekki sæmandi.