14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5202 í B-deild Alþingistíðinda. (4489)
389. mál, Rafmagnseftirlit ríkisins
Fyrirspyrjandi (Helgi Seljan):
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðh. svör hans. Það er ljóst að í Hagvangskönnuninni hafa verið athugaðir þessir tveir möguleikar, annars vegar að auka starfsemi Rafmagnseftirlits ríkisins, svo sem full þörf er á, eða fá þetta verkefni þeim sem þegar eru til staðar, eins og sagði í svari hæstv. ráðh., og geta sinnt því.
Það er alveg rétt að það munu vera til staðar aðilar sem geta sinnt þessu verkefni. Spurningin er aðeins í mínum huga hvort þeir muni gera það, hvort þeir muni gera það á sama hátt og Rafmagnseftirlit ríkisins sem óháður aðili gerir þó í dag. Ég ætla það að sú nefnd sem um þetta fjallar á vegum rn. muni komast að þeirri niðurstöðu, ef hún hefur engin annarleg sjónarmið fyrir sér, að þessi starfsemi öll sé best komin hjá hlutlausum, óháðum aðila sem Rafmagnseftirlitinu og um leið verði séð til þess að Rafmagnseftirlitið fái aukna möguleika og aukið valdsvið til þess að geta gripið inn í, enn frekar frá því sem nú er, því að vitanlega er eftirlitið eitt og framkvæmdin á því sem lagfæra þarf annað, eins og ég kom hér inn á áðan.
Ég legg áherslu á það að vissulega er það rétt að raffangaprófunin þarf að vera sem best. Ég er ekki dómbær á það hvort hún sé betur komin hjá Iðntæknistofnun eða hjá Rafmagnseftirliti ríkisins þar sem fyrir er veruleg þekking á þessum málum. En ég vænti þess a. m. k. að ekki verði rasað um ráð fram varðandi þá prófun, svo mikilvæg sem hún er varðandi hin ýmsu raftæki sem sífellt eru að berast til landsins og þau sem eru framleidd hér.
Ég skildi hæstv. ráðh. svo að hann væri mér sammála um að efla þurfi þennan öryggisþátt að miklum mun, með hvaða ráðum svo sem hann framkvæmir það. Ég held að það verði best gert með öflugu rafmagnseftirliti, með gæðaprófun raffanga sem fullkomnastri, með virkri úttekt á nýlögnum og á nýjum raforkuvirkjum og ekki hvað síst með rækilegri skoðun á eldra kerfi og búnaði öllum, og þá um leið, eins og ég vék að áðan, möguleikum til að framfylgja í raun öllum þessum þáttum.
Ég bendi á að eitt stórtjón, sem verður vegna vanrækslu, getur verið margfalt þyngri baggi fjárhagslega séð en margra ára kostnaður af góðu og virku eftirliti hjá Rafmagnseftirliti ríkisins, svo að ekki sé nú minnst á þær afleiðingar tjóna sem enginn fær bætt.
Virkni eftirlits af þessu tagi og aðhald sem unnt er að tryggja nægilega vel eru aðalatriðin. Það er rétt að þetta kostar sitt. Það má vel hugsa sér að tengja þetta starf við aðra þætti öryggiseftirlits, án þess að þeim þætti sem hér er um fjallað verði gerð lakari skil, en ég held, og vona að við hæstv. ráðh. séum sammála um það, að fyrst og fremst þurfi að nýta þá reynslu og þekkingu sem rafmagnseftirlitsmenn hafa nú í dag, þá ríku samviskusemi sem þeir sannarlega sýna í sínu starfi, gera þeim kleift að virkja þekkingu sína og samviskusemi í þágu þessa eftirlits, þessa brýna öryggisþáttar okkar.