14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5209 í B-deild Alþingistíðinda. (4500)

436. mál, framhald samningaviðræðna við Alusuisse

Steingrímur J. Sigfússon:

Herra forseti. Það vill nú svo til að hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson hefur verið og er alþm. Þess vegna er ekki hægt annað en taka orð hans alvarlega, hvort sem þau fjalla um mútur eða raforkuverð eða samninga við erlend stórfyrirtæki. Að öðru leyti sá ég svo sem ekki hvaða erindi hans innlegg átti í þessa umræðu. En varðandi leyndarmálið mikla um spilin á hendinni, þá veit ég að jafnvel hv. þm. veit hver er t. d. framleiðslukostnaður á raforku í landinu, það er ekkert leyndarmál. Það veit sennilega helftin af íslensku þjóðinni eða rúmlega það, eins mikið og það mál hefur verið í umræðum. Það eru því ósköp einfaldar spurningar sem hér eru bornar fram. Verður reynt t. d. að ná þessu framleiðslukostnaðarverði frá nýjum stórvirkjunum í væntanlegum samningum eða ekki? Og væntanlega vita viðsemjendurnir einnig hvað það kostar að framleiða raforku úr nýjum stórvirkjunum á Íslandi í dag. Þetta er ekkert leyndarmál, þetta er ekkert pókerspil, hv. þm. Þetta eru ósköp einfaldar staðreyndir. Ég hygg hins vegar að það sé ekki þessu máli til framdráttar né öðrum slíkum að vinna þannig að, eins og hæstv. núverandi iðnrh. hefur gert, að halda spilunum öllum að brjóstinu á sér. Svo reynist hann nú reyndar ekkert hafa nema lauffjarka á hendinni þegar hann er afvopnaður. Það er önnur saga.