14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5211 í B-deild Alþingistíðinda. (4502)
442. mál, námaleyfi Kísiliðjunnar
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Afskipti menntmrn. af þessu máli hafa fyrst og fremst falist í því að leitast við að jafna þann ágreining sem upp hefur komið milli iðnrn. og Náttúruverndarráðs. Hér er fyrst og fremst um lagalegan ágreining að ræða sem snýst um það hvort leita eigi eftir leyfi Náttúruverndarráðs vegna náms kísilgúrs úr botni Mývatns, eins og raunar er boðið í lögum um verndun Mývatns og Laxár nr. 36 frá 1974.
Án þess að ætlunin sé að fara nákvæmlega út í þau lagalegu atriði sem nú eru til athugunar í iðnrn. og menntmrn., þá þykir mér rétt að gera í sem stystu máli grein fyrir þeim sjónarmiðum sem menntmrn. og Náttúruverndarráð hafa haldið fram í þessu máli.
Í lögum um verndun Mývatns og Laxár, sem samþykkt voru á Alþingi fyrir 11 árum, segir að tilgangur laganna sé að stuðla að verndun Mývatns- og Laxársvæðisins í Suður-Þingeyjarsýslu. Talið var að á þessu svæði þyrfti að hafa enn nánara eftirlit og enn ríkari rétt náttúruverndaraðila en á öðrum stöðum til þess að auðvelda náttúruverndaraðgerðir á svæðinu. Enn fremur segir í 3. gr. laganna um verndun Mývatns og Laxár að á verndunarsvæðinu séu hvers konar mannvirkjagerð og jarðrask óheimil nema leyfi Náttúruverndarráðs komi til.
Það er skilningur menntmrn. og Náttúruverndarráðs að nám kísilgúrs úr botni Mývatns sé jarðrask í skilningi laganna um verndun Mývatns og Laxár og því beri að leita eftir leyfi Náttúruverndarráðs áður en framkvæmdir hefjast til efnistöku úr botni Mývatns. Spurningin getur hins vegar verið um það: Á slíkt leyfi að liggja fyrir áður en námaleyfið er gefið? Það atriði er formsatriði hvort leyfi, sem iðnrn. hefur gefið út, stenst vegna þessa. Ég hygg að það atriði skipti ekki höfuðmáli heldur hitt að það er ljóst að leyfis Náttúruverndarráðs þarf að leita áður en kemur til slíks jarðrasks. Hinn 30. janúar s. l. veitti hæstv. iðnrh. Kísiliðjunni við Mývatn einkaleyfi til efnistöku kísilgúrs úr gjörvöllum botni Mývatns utan netlaga til 15 ára. Leyfi Náttúruverndarráðs lá ekki fyrir þá eins og kunnugt er. Samstarfsnefnd iðnrn. og Náttúruverndarráðs starfaði á þeim tíma að ýmsum atriðum sem tengdust sjálfri leyfisveitingunni. Þessi samstarfsnefnd hafði verið sammála um að brýn þörf væri á auknum rannsóknum á áhrifum kísilgúrnáms á botni Mývatns á lífríki þess.
Þess verður að geta í þessu sambandi að sú rannsóknarstöð sem Náttúruverndarráð hefur rekið við Mývatn hefur löngum verið í fjársvelti, að því að mér er tjáð, og þess vegna e. t. v. ekki getað sinnt eins miklum rannsóknum eins og skyldi, en þó nokkuð, og mikilvægum þeim sem þegar hefur verið unnið að.
Þegar mál stóðu svona og leyfið hafði verið gefið út þá sendi Náttúruverndarráð hæstv. iðnrh. formleg mótmæli gegn útgáfu námaleyfisins. Þau mótmæli voru byggð á því að þótt hæstv. iðnrh. hefði heimild til útgáfu námaleyfis á grundvelli námalaganna liti Náttúruverndarráð svo á að sú heimild takmarkaðist af ákvæðum laga um verndun Mývatns og Laxár. Jafnframt sendi Náttúruverndarráð menntmrh. bréf þar sem óskað var eftir því að rn. aðstoðaði ráðið við að leita réttar síns í samræmi við lögin um verndun Mývatns og Laxár. En rn. hafði ekki komið að þessu máli og undirbúningi þessa efnis á fyrri stigum, enda stóð það ekki til, þar sem það var á verksviði Náttúruverndarráðs sem sjálfstæðs stjórnvalds.
Á fundi sem menntmrh. hélt með fulltrúum Náttúruverndarráðs kom fram að ráðið væri tilbúið að reyna að ná samkomulagi við iðnrn. ef unnt væri að samræma hið umdeilda námuleyfi þeim sjónarmiðum sem Náttúruverndarráð hefur haldið fram í þessu máli. Ég hafði haft trú á því að þetta væri unnt, og hef það enn, að það sé unnt að samræma þessi sjónarmið.
Sá misskilningur hefur komið fram í opinberri umræðu um þetta mál að Náttúruverndarráð hafi farið fram á það að Kísiliðjunni hf. við Mývatn yrði lokað og starfsemi hennar hætt. Það er alrangt. Náttúruverndarráð hefur aldrei lýst sig mótfallið starfsemi Kísiliðjunnar við Mývatn en telur hins vegar að um starfsemi af þessu tagi á þessu einstaka landsvæði verði að fara að öllu með gát. Því verði að setja starfsemi, sem byggir á jarðraski á þessu svæði, ákveðnar skorður, f. d. með því að takmarka efnisvinnsluna við ákveðin landsvæði þar til niðurstöður frekari rannsókna liggja fyrir. Náttúruverndarráð hefur lýst þeirri skoðun sinni að ef veita eigi námuleyfi til 15 ára þá verði svæðið takmarkað við Ytri-Flóann, nánar tiltekið innan þess svæðis sem hefur þær viðmiðanir á landi sem eru að vesturmörkum — ja, hv. þm. hafa nú ekki landakort hér fyrir framan sig, en þeir sem eru kunnugir í þessari fögru sveit kannast kannske við staðina, og því nefni ég það að í vesturmörkum er lína úr Dauðanesi um Ölvershólma í Kvæk og að austurmörkum lína úr Dauðanesi í dælustöð við Helgavog. Þetta voru þau staðarmörk.
Jafnframt hefur Náttúruverndarráð lýst því yfir að bendi rannsóknir til þess að námureksturinn hafi ekki í för með sér slík áhrif að verulegar breytingar til hins verra verði á dýralífi og gróðri í Mývatni og við það þá mundi ráðið ekki leggjast gegn því að vinnslusvæðið yrði stækkað og vinnsla hafin á nýjum stöðum.
Á grundvelli þeirrar niðurstöðu sem varð á fundi mínum með náttúruverndarráðsmönnum voru hafnar viðræður við fulltrúa iðnrn. Í þessum viðræðum lagði fulltrúi menntmrn., Þórunn Hafstein lögfræðingur, fram hugmyndir sem gætu orðið eins konar viðbót við þetta leyfi, hvað sem það yrði kallað, eða yfirlýsingu af hálfu hæstv. iðnrh. Það voru efnisatriði sem hefðu getað orðið til þess að leysa málið þá, en samkomulag varð ekki á því stigi. Þessi drög voru unnin í samráði við Náttúruverndarráð.
Menntmrn. leitaði jafnframt til óháðs aðila í þessu máli, dr. Gauks Jörundssonar lagaprófessors, um að hann gæfi álit sitt á því hver réttarstaða Náttúruverndarráðs væri að þessu leyti til og hvaða þýðingu lögin um verndun Mývatns og Laxár hefðu í þessu máli. Niðurstaða dr. Gauks er í samræmi við þau sjónarmið sem áður hefur verið gerð grein fyrir og rn. hefur haldið fram. Og hún er í stystu máli sú að nám kísilgúrs úr botni Mývatns sé háð leyfi Náttúruverndarráðs og ákvæðum laga um verndun Mývatns og Laxár enda teljist nám kísilgúrs úr botni Mývatns til jarðrasks í skilningi þeirra laga. Dr. Gaukur lítur einnig svo á í álitsgerð sinni að starfsemi Kísiliðjunnar við Mývatn sé ekki undanþegin lögunum um verndun Mývatns og Laxár. Um það atriði, hvort nám kísilgúrs úr botni Mývatns teljist til jarðrasks í skilningi laganna, eru lögfræðingar ef til vill ekki algjörlega sammála. En í álitsgerð Hjartar Torfasonar hæstaréttarlögmanns, sem er lögmaður Kísiliðjunnar hf., telur hann að það sé ekki vafalaust að nám kísilgúrs teljist til jarðrasks í skilningi þeirra laga. Hann telur að jarðrask miðist við það sem sé á yfirborði lands og þá samkvæmt hans áliti á yfirborði hins þurra lands, en það sé ekki átt við það sem sé á vatnsbotni eins og þarna væri um að ræða.
Mér er engin launung á því að ég get ekki fallist á það sjónarmið. Ég tel að sjónarmið dr. Gauks um þetta atriði sé rétt. En þegar menn greinir á um þetta þá annaðhvort semja menn um niðurstöðuna eða fá úr henni skorið af óvilhöllum þar til bærum aðila.
Herra forseti. Ég er alveg að ljúka máli mínu. Alli frá því í febrúar hefur menntmrn. haft stöðugt samráð við Náttúruverndarráð vegna þessa máls og enn fremur átt viðræður við fulltrúa iðnrn. sem miðuðu að farsælli lausn á þessum málum. Það er unnið að hugmyndum um samkomulag milli Náttúruverndarráðs og iðnrn. Það er alveg ljóst að atvinnuhagsmunir, bæði á þessu svæði og annars staðar, eru engan veginn ósættanlegir þeim hagsmunum sem liggja til grundvallar náttúruvernd. Og það er stefna rn. og ríkisstj. í heild, er mér óhætt að segja, að náttúruvernd og atvinnuhagsmunir eigi að geta farið saman. Það sé farsælast þegar við lítum til framtíðarinnar og að því munum við vinna.