14.05.1985
Sameinað þing: 82. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5223 í B-deild Alþingistíðinda. (4517)
453. mál, lögverndun á starfsheiti og starfsréttindum kennara
Guðrún Agnarsdóttir:
Herra forseti. Fyrr á þessu þingi bar ég fram svipaða fsp. og ég giska á að það hafi verið svar hæstv. menntmrh. við henni sem fyrirspyrjandi vitnaði til nú áðan. Hv. þm. Halldór Blöndal talaði um sagnfræði, um liðna tíð. Hins vegar eru vandamál nútímans þau sem á okkur brenna nú. Ástand í skólum landsins, eftir þau átök í kjaramálum kennara sem urðu s. l. vetur, er vægast sagt til þess fallið að vekja miklar áhyggjur bæði nemenda og foreldra.
Hv. 3. þm. Reykn. Kristín Tryggvadóttir minntist á atriði í sínu máli um réttindanám þeirra 15% kennara sem nú væru réttindalausir. Væri ekki hægt að leysa þetta mál með því að hafa einhvers konar millibilsástand eitthvert tímabil þar sem þessir kennarar væru enn í starfi með þau réttindi sem þeir hafa haft meðan þeir væru að afla sér réttinda með námi? Væri ekki hægt að gera einhverja málamiðlun þannig að tillit væri tekið til réttinda þessara aðila sem enginn er, held ég, að kasta rýrð á og jafnframt til nemenda og annarra kennara?