01.11.1984
Sameinað þing: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 672 í B-deild Alþingistíðinda. (453)

54. mál, endurmat á störfum kennara

Helgi Seljan:

Herra forseti. Um þetta mál er nú rætt á býsna viðkvæmu stigi. En það er þarft til íhugunar öllum hér inni og í þjóðfélaginu því að hér er um einn veigamesta uppeldis- og menntunarþáttinn að ræða. Við verðum fyrr en síðar að gera verulegt átak til að hefja veg þessa fólks svo sem vera ber.

Ég vildi aðeins segja nokkur orð um þessa þörfu till. Kennarastéttin hefur að vísu núna á undanförnum dögum eða vikum verið á nokkuð undarlegan hátt í sviðsljósinu. Ég ætla ekki að tíunda hér þau ómaklegu ummæli í hennar garð sem fallið hafa dauð og ómerk í eyrum allra þeirra sem bera minnsta skynbragð á starf og þýðingu stéttarinnar. Þar er um að ræða óráðshjal sem sprottið er af mikilli vanþekkingu eða af öðrum ástæðum.

Það er hins vegar mála sannast að kennarastarfið hefur ævinlega verið vanmetið og hvergi skipað þann sess sem því ber í siðuðu þjóðfélagi. Þetta herfilega vanmat hefur hvergi birst skýrar en í launakjörum. Ég tala að vísu ekki sem hlutlaus aðili, hafandi kennt í 18 ár og haft margvísleg afskipti af málum stéttarinnar, m.a. í kjaramálum, en nokkur reynsla og þekking á eðli og umfangi starfsins mun þó af þessu hafa hlotist. Ég man t.d. glögglega eftir þingi Sambands ísl. barnakennara þar sem menntunarmálin voru aðalmálið og spurningin um að færa menntunina á háskólastigið var mest rædd. Þar var mikill einhugur um að sjálfsagt væri að gera miklar og auknar menntunarkröfur til stéttarinnar, m.a. í ljósi nýrra tíma, nýrrar tækni og hinnar miklu og sívaxandi uppeldisþátttöku skólanna. En ég man einnig vel að menn töldu að samfélagið mundi í sama mæli meta starfið til viðunandi launakjara sakir ábyrgðarinnar og þess hversu vandasamt það er í innsta eðli sínu sakir ómældra vinnustunda sem hvergi voru né eru skráðar og ekki síður sakir lengra og meira náms og um leið þekkingarinnar sem þá lægi að baki.

Ég man að við, tveir kennarar að austan sem þarna töluðum, vorum nokkuð hjáróma í þessum kór þegar við létum í ljós miklar efasemdir um að samfélagið mundi meta það svo nokkru næmi þó að menntunin væri færð upp á háskólastigið. Við héldum því fram að allt of margir litu á þetta sem auðvelda og erfiðislausa vinnu. Mætti mikið vera ef slík viðhorf næðu ekki upp í æðstu stofnanir þjóðfélagsins. Ekki óraði mig þá fyrir þeim ósköpum sem nú hafa dunið yfir þingheim og hefðu gefið orðum okkar þá meira vægi en er um leið dapurlegra en orð fá lýst.

Launakjör kennara í dag og aðstaða öll hefur verið tíunduð svo rækilega að ekki skal það frekar gert. Þessi till. sem hér er til umr. hefur að megininntaki endurmat á störfum kennara og í kjölfarið réttmætara og verðugra mat á þeim störfum og er vissulega ekki tilkomin að ástæðulausu. Hugmyndin og framkvæmd hennar er því sjálfsagðari en svo að um þurfi mjög að ræða. Spurningar vakna hins vegar í ljósi ýmislegs af því sem hefur verið að gerast, alveg sér í lagi þess að þolinmæði kennara er eðlilega loks á þrotum. Það hefur m.a. birst í væntanlegum uppsögnum þeirra sem eina tiltæka ráðinu sem kennarar hafa séð til að vekja athygli á ófremdarástandinu. Það hefur einnig birst í hinum alvarlega flótta úr stéttinni, þar sem ég fullyrði að fólk hefur undantekningarlítið gengið í vandaminni og ábyrgðarminni störf með hins vegar miklu betri launakjörum. Meira alvörumál er þetta en svo að unnt sé að afgreiða það með axlaypptingum einum, að ekki sé minnst á það orðfæri sem jafnvel hefur verið viðhaft úr þessum ræðustól um þessa stétt.

Nú vitum við það að í kjölfar hinna almennu samninga við BSRB koma sérkjarasamningar sem ráða mestu um það hversu fer um kennarastéttina og af þeim m.a. ræðst einnig hvað gerist í uppsagnamálum þeirra. Uppsagnamálið á sér aðdraganda, sem rakinn er í félagsblaði Kennarafélags Íslands frá sept. s.l., en þar segir svo, með leyfi virðulegs forseta:

„Á fundi fulltrúaráðs Kennarafélags Íslands í ágústlok var tekin ákvörðun um að safna viljayfirlýsingum frá kennurum fyrir 1. okt. n.k. um að þeir séu reiðubúnir að segja upp stöðum sínum ef Kennarasambandið telji þess þörf til að knýja á um endurmat á kennarastarfinu og bætt kjör.“ Síðan eru aðstæður raktar og ber að vitna til nokkurs af því. Þar er sagt, með leyfi forseta:

„Kennaranámið hefur aukist og lengst. Kennsluhættir hafa breyst og vinnuálag á kennara aukist. Æ meiri tíma þarf til að fylgjast með nýjungum í starfi og nýju námsefni. Kröfur til skólanna aukast sífellt og verkefnum kennara fjölgar. Fyrir sérhæfð ábyrgðarstörf á almennum vinnumarkaði eru greidd a.m.k. helmingi hærri laun en þau sem ríkið greiðir fyrir kennslu.“

Þessum orðum öllum og þessum yfirlýsingum sem hefur verið safnað um uppsagnir kennara, fylgir mikil alvara. Ég vitna til ummæla þeirrar kunnu og virtu sjálfstæðiskonu, Svanhildar Björgvinsdóttur, sem segir í þessu sama félagsblaði Kennarafélags Íslands, með leyfi virðulegs forseta, um kennaraþingið:

„Það vakti athygli mína sú einurð og eindrægni sem kom fram í stefnunni í kjaramálum þar sem lögð er áhersla á að fá þegar í stað endurmat á kennarastarfinu og lögverndun starfsheitisins. Það er greinilegt að kennarar skynja vel ábyrgð sína sem uppalendur. Þess vegna vilja þeir ekki atgervisflótta úr stéttinni. Þess vegna samþykktu þeir einróma að segja upp launaliðum samninganna 1. sept. n.k. og þess vegna hyggjast þeir fylgja kröfum sínum fast eftir.“

Það eru einmitt þessi orð ásamt ýmsum fleirum sem hér væri hægt að rekja úr félagsblöðum Kennarafélags Íslands, sem fá mig til þess að staldra við efnismeðferð þessarar till. Þar er lagt til að skipuð verði nefnd sem inna á af hendi þetta endurmat á störfum kennara og á að skila áliti eigi síðar en sex mánuðum eftir samþykki þál. sem að venju hér yrði í fyrsta lagi í desember.

Ég hef a.m.k. heyrt það á ýmsum í forustuliði kennara að þetta endurmat eigi að fara fram, svo sem Svanhildur Björgvinsdóttir bendir á, án tafar og sérkjarasamningar nú eigi að taka mið af því. Nú vitum við vel hvernig þar hefur verið gengið frá málum og hvernig þar verður mjög sennilega að unnið. Í kjölfar þess er kannske ekki mikils að vænta til viðbótar fyrir kennarastéttina eina miðað við þann grundvöll sem gengið er út frá í aðalkjarasamningum. Ég veit líka að það er síst af öllu vilji hv. flm. að draga þetta starf fram yfir næstu sérkjarasamninga. En það er spurning hversu starf af þessu tagi þarf að taka langan tíma, hversu vel þarf að vinna það. En aðalatriðið er vitanlega, eins og fram kom í máli hv. 1. flm., að vekja Alþingi til umhugsunar um alvöru þessa máls og undirstrika skjóta nauðsyn endurmats, sem færði kennurum betri stöðu í launakerfinu svo sem þeim ber. Ég vil ekki að þetta sé tekin sem nein bein aths. við tillöguflutninginn sem slíkan heldur aðeins spurning um það hversu langan tíma þetta kynni að taka og hvenær þeim árangri yrði skilað.

Ég vil einnig að gefnu tilefni taka undir þau orð, sem höfð voru eltir hv. 1. flm. þessarar till. í hljóðvarpi í gærkvöldi, að eitt af því, sem er vonbrigðaefni nýgerðra aðalkjarasamninga milli BSRB og ríkisins, er það hversu hlutur kennara batnar lítið. Ég viðurkenni að sérkjarasamningar geta ráðið þar einhverju, en það hlýtur að vakna spurning um það hvort það skipti ekki máli að gera það sem þarf til þess að við getum tryggt áfram hæfa og góða kennara í skólum landsins og þyrftum ekki áfram að horfa á flótta úr stéttinni yfir í önnur störf þar sem betri kjör eru í boði. Mín spurning er aðallega um það hverju við getum hér áorkað um réttmætt mat á þýðingu starfsins, þess óhjákvæmilega endurmats sem þyrfti að tengjast næstu sérkjarasamningum kennara, hvernig við gætum haft áhrif sem fyrst og best í sjálfstæðri réttindabaráttu kennara og um leið og ekki síður stuðlað að framtíðarvelferð þeirrar æsku, sem kennarar taka sífellt meiri þátt í að móta, fræða og ala upp á ýmsan veg.

Það er ekki úr vegi að við hugleiðum í ljósi þessarar þýðingar hversu alvarlegt það er ef virkilegur atgervisflótti verður úr þessari stétt uppalenda æskunnar. Um það mætti hafa langt mál, en e.t.v. er einhver besta og hollasta lesning fyrir fólk um kennara og þýðingu kennarastarfsins grein sem Heimir Pálsson ritaði í Helgarpóstinn 27. sept. og heitir „Lágmenntastefna eða láglaunastefna eða bréfkorn til íslenskra foreldra“, þar sem spurt er m.a.: Hvaða kröfur gerir þú til kennara barna þinna? Þar segir Heimir, með leyfi hæstv. forseta:

„Í 1.–6. bekk grunnskólans eða barnaskólanum eru líkur til að börnin þín hafi einhvern einn kennara. Þá er nokkuð ljóst að hann er í flestum tilvikum sú fullorðin manneskja sem börnin hafa mest af að segja. Þau eru lengur samvistum við hann en þig í vöku. Þá sýnist mér fyrsta krafan hljóti að vera nokkuð augljós. Þú ætlast til þess að kennarinn sé prúðmenni og umgangist börn þín eins og mikilvæga einstaklinga, sýni þeim með fordæmi sínu hvernig ábyrg og ljúf manneskja hagar sér.

Í annan stað ætlast þú áreiðanlega til að kennari barnanna þinna kunni skilgóð svör við hverju því sem upp kann að koma í kennslustofunni. Hann hefur axlað megnið af frumfræðslunni, þeirri sem bændasamfélagið gamla dreifði á a.m.k. tvær kynslóðir og stundum allmarga einstaklinga af hverri kynslóð.

Í þriðja lagi verður kennarinn að sjálfsögðu að vera þeim vanda vaxinn að gerast huggari barnanna þinna í hverri þraut. Þú ert ekki í kallfæri því að þú ert væntanlega að sinna framfærsluskyldu þinni.

Í fjórða lagi verður kennarinn vitanlega að búa yfir og geta miðlað þeirri þekkingu sem nauðsynleg er hverjum einstaklingi í nútíma samfélagi. Þarna taka grunnskólalögin kröftuglega undir við þig.

Í fimmta lagi verður kennarinn vitaskuld að ábyrgjast að sú þekking sem hann er að miðla sé í samræmi við nútíðina, ekki liðinn tíma. Úrelt þekking kemur börnunum þínum að litlu haldi.

Í sjötta lagi — og er það reyndar fólgið í því sem áður er sagt — verður bekkjarkennarinn að kunna skil á hinum sex námsgreinum skólans auk frumgreinanna þriggja, lesturs, skriftar og reiknings og koma þar fög eins og átthagafræði, þ.e. a.m.k. saga, landafræði og náttúrufræði og biblíusögur, það er undirstaða allrar hugmyndafræði okkar.

Í sjöunda lagi kann náttúrlega að vera að börnin þín eigi við einhvern smávægilegan vanda að stríða í hegðun eða líkamsbyggingu og þá verður kennarinn vitanlega að vera starfi sínu vaxinn og geta veitt hverjum einstaklingi þjónustu.“

Síðan rekur Heimir hvernig að kennaranum er búið og er það ófögur lýsing vægast sagt, sem hér hefur verið tíunduð áður og ég ætla ekki að fara nánar út í. En síðan endar hann á samviskuspurningu, sem er eins gott að vitna til hér ef hv. þm. hefðu ekki lesið þessa grein, að ég tala nú ekki um, ef þeir hefðu ekki hugleitt þetta mjög grannt. En í lokin spyr Heimir Pálsson, með leyfi hæstv. forseta:

„Hefurðu hugsað út í að þú greiðir kennara barnanna þinna miklu lægri laun en þú mundir greiða manni sem passaði tölvuna þína? Hefurðu gert þér grein fyrir að kennarakaupið á Íslandi er orðið þannig að tala má um vitsmunaflótta úr stéttinni? Hefurðu gert þér grein fyrir hvaða máli menntun þessarar þjóðar skiptir fyrir afkomu fólks í þessu landi? Hlustaðirðu kannske á Ingjald Hannibalsson í sjónvarpinu hér um daginn? Hefurðu velt fyrir þér hvaða framtíð þú ætlar börnunum þínum? Væri ráð að hugsa um það næst þegar þér gefst stund frá brauðstritinu til að horfa í augu þeirra? Geturðu þá sagt með góðri samvisku að þú viljir þeim aðeins hið besta?“

Þetta geta verið mín lokaorð einnig því að hægt er að taka undir hvert orð sem Heimir segir þarna.