15.05.1985
Efri deild: 74. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5281 í B-deild Alþingistíðinda. (4562)
Umræður utan dagskrár
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Það voru ýmsar athyglisverðar yfirlýsingar sem hæstv. forsrh. gaf í lok sinnar ræðu. Þó að hér sé fyrst og fremst verið að ræða vanda húsbyggjenda vil ég leyfa mér að víkja aðeins að sumu af því sem hann sagði undir lokin.
Hann sagði: Við höfum engin efni á því að vera að hugsa um frjálsar útvarpsstöðvar núna. Í ræðu minni hér í gær, þegar verið var að ræða útvarpslagafrv., vakti ég athygli á þeirri hugmynd, sem ég hef áður sett fram, að við ættum að nýta það dreifikerfi Ríkisútvarpsins sem þegar er fyrir hendi þannig að við þyrftum ekki að stofna til nýrrar fjárfestingar- dreifikerfi sjónvarpsins sem er notað aðeins í sjö klukkustundir af þeim 24 sem eru í sólarhringnum. Er forsrh. reiðubúinn til að vinna að slíkri lausn á þessari útvarpsmáladeilu allri að hægt sé að afnema einkarétt Ríkisútvarpsins. en nýta dreifikerfi þess til að auka frelsið í þessum málum? Ég heyrði ekki betur en orð hans hnigju mjög í þá átt. Ég leyfi mér að óska eftir því að hann hugsi það mál. hvort ekki er hægt að leita einhverra samkomulagsleiða í þeim efnum og spara um leið þjóðinni allri fé.
En hæstv. forsrh. dró upp afar dökka mynd með ýmsum hætti af okkar þjóðarbúskap. Það er tvöfalt meiri viðskiptahalli en á sama tíma í fyrra. Fleira nefndi hann til. Dökk mynd blasir við í sjávarútvegi, m. a. vegna dollaralána. Útgerðarmaður, sem hann nefndi til sögunnar, hefði tekið svo til orða að bankastjórar hefðu sagt sér að taka dollaralán, en þeir vildu ekki við það kannast nú. Nú er þetta auðvitað það vandamál sem víða hefur verið rætt og víðs vegar er. Stór hluti okkar erlendu lána hefur verið í dollurum eða hefur verið breytt í dollara, en þá spyr ég hæstv. forsrh.: Ef það voru ekki bankastjórar Landsbankans eða viðskiptabankanna, voru það þá bankastjórar Seðlabankans eða var það ríkisstj. sem markaði þá stefnu að breyta öllum okkar erlendu lánum eða í svo ríkum mæli sem gert var í dollaralán? Þetta hefur oft verið rætt hér áður og aldrei hafa fengist við þessu skýr svör. Ekki dettur mér í hug að væna bankastjóra Landsbankans um að þeir segi ósatt, en einhver hlýtur að bera ábyrgð á þessari stefnumörkun.
Hér hefur verið rætt um vanda húsbyggjenda og um það fallið stór orð og þung réttilega. Ég tek undir það með hæstv. forsrh. að það er fleira vandamál í þessu þjóðfélagi en það. Hins vegar blasir nú meiri og hrikalegri vandi við íslenskum húsbyggjendum en gert hefur nokkru sinni fyrr í sögu lýðveldisins, að ég hygg. og jafnvel þó farið væri lengra aftur í tímann. Það er auðvitað þess vegna sem þau mál ber svo mikið á góma nú sem raun ber vitni.
Ég veit ekki hvort hv. þm. og hæstv. forsrh. hlýddu á þátt sem var í Ríkisútvarpinu að kveldi mánudagsins þar sem fjallað var um vandamál húsbyggjenda. Þar kom afar margt athyglisvert fram. Það sem var kannske ekki athyglisverðast en var þó næsta eftirminnilegt var það þegar aðstoðarmaður hæstv. félmrh. sagði: Já, auðvitað fer Alþingi heim. En hann Alexander hættir sko ekkert í félmrn. Það verður allt með fullum þunga og krafti þar. — Nú veit ég að ýmsir hugsa sem svo: Væri ekki betra að Alþingi héldi áfram, en hæstv. félmrh. héldi heim eða kannske ríkisstj. eins og hún leggur sig.?
Þm. eru á fullu kaupi í allt sumar. sagði hæstv. forsrh. Ég veit ekki hvað honum gekk til með þeirri sinni aths. Hún kom mér á óvart. Þetta er staðreynd. Ráðherrar hafa líka þingfararkaup allt sumarið, ef ég veit rétt, og þetta er engin nýlunda. Ég held að það standi ekki á stjórnarandstöðunni að sitja hér fram eftir sumri til að fjalla um þennan vanda húsbyggjenda. Ég lýsi því a. m. k. fyrir mína hönd og míns flokks að það skal ekki standa á okkur að sitja hér í allt sumar til að ræða þessi mál. En ætli það sé ekki eins og venjulega að þeim mun fyrr fer ríkisstj. að liða skár sem hún getur losað sig við þingið og þm. Það er venjulega svo. Það er hin gamla reynsla.
Það kom líka fram í ræðu hæstv. forsrh. að hann viðurkenndi að þeir bæru nokkra ábyrgð á því hvernig komið væri sem sátu í ríkisstjórn á miðju ári 1982. þ. e. hann. hæstv. forsrh., og hv. 3. þm. Norðurl. v. sem gegndi embætti fjmrh. í þeirri ríkisstjórn, — og bar nú Alþb. nokkra ábyrgð á húsnæðismálum í þeirri stjórn og ber auðvitað heilmikla ábyrgð á því hvernig komið er í þeim efnum núna — en ég ætla ekki að gera það að neinu sérstöku umtalsefni hér. til þess gefst tími síðar.
Hæstv. forsrh. lýsti eftir tillögum stjórnarandstöðunnar í þessu efni. Þær liggja fyrir, a. m. k. frá Alþfl. Alþfl. hefur lagt hér fram tillögur um tímabundinn eignarskattsauka, sem kæmi á stóreignamenn og eignir stórfyrirtækja. og þessum tímabundna eignarskattsauka yrði varið til húsnæðislánakerfisins. Þessi till. liggur fyrir, hæstv. forsrh. Ég veit þó að hún skilar ekki peningum strax. Ég veit að til þess þarf nokkurn tíma. En þarna er till. sem ég held að við ættum að ræða. Og ég geri fastlega ráð fyrir því að í flokki forsrh. sé meiri áhugi á þeirri till. en í hinum stjórnarflokknum. Það þarf enginn að fara í grafgötur um það.
Ég ætla ekki heldur að halda því hér fram að ekkert hafi verið gert fyrir húsbyggjendur. Mér dettur það ekki í hug. Það hefur ýmislegt verið reynt. En vandinn sem búið er að koma sér upp í þessum efnum er svo hrikalegur að þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið til þessa duga hvergi nærri. Svo að ég vitni aftur til þessa útvarpsþáttar á mánudagskvöldið, seint um kvöldið, nær miðnætti, þá var talað þar við ungan rithöfund sem hafði fyrir þremur til fjórum árum keypt fjögurra herbergja íbúð fyrir sex manna fjölskyldu í gömlu húsi. Það getur ekki talist nein ofrausn í húsnæði fyrir sex manns. Hann lýsti því mjög ítarlega hvernig hans fjármálum væri háttað, hreinskilnislega og ítarlega. Það var engin gamansaga. Þó sagði hann, og áreiðanlega réttilega, að margir væru langtum lakar settir.
Það er staðreynd að undanfarin ár í tíð tveggja ríkisstjórna er búið að brjóta húsnæðiskerfið niður. Það á sér ýmsar skýringar. En meginskýringin og kannske sú sem mestan vandann hefur skapað er þegar kaupgreiðsluvísitalan var tekin úr sambandi en aðrar vísitölur látnar halda sér. Þetta hefur hæstv. forsrh. raunar viðurkennt að hafi verið stórfelld mistök. Það er alveg rétt. Það er seint séð, en samt séð.
Ég held að við eigum ekki að ganga að því gruflandi að við reisum ekki húsnæðislánakerfið við öðruvísi en afla til þess nýrra tekna. Við gerum það ekki, eins og hæstv. forsrh. sagði, með því að taka ný erlend lán. Ég er honum hjartanlega sammála um það. Við höfum ekki nokkra aðstöðu til þess. Þeir sem stjórnað hafa þessu landi undanfarin ár hafa séð til þess að við erum sokknir a. m. k. upp að hnjám í skuldafen erlendra skulda og eigum þess vegna ekki hægt með að hreyfa okkur þar. Hvað er þá til ráða? Það er ekkert til ráða annað en einhvers konar ný skattlagning ef við viljum viðhalda því velferðarkerfi sem húsnæðislánakerfið er. Það er ekki fullkomið og því þarf að breyta á ýmsan veg og skoða nýjar hugmyndir sem fram hafa komið á síðustu árum, en við verðum líka að gera okkur grein fyrir því að við öflum þessu kerfi ekki fjár nema með tvennum hætti: með því að taka erlend lán, og þann möguleika hef ég þegar útilokað í mínum huga, eða með því að afla fjár innanlands og þá með einhvers konar skattheimtu. Þetta er nákvæmlega það sem verður að gerast.
Virðulegi forseti. Það var ekki gert ráð fyrir að þessi umræða stæði mjög lengi. Ég veit að það eru ýmsir fleiri hér á mælendaskrá og ég skal ekki lengja þetta mikið frekar. Ég hef þegar sagt flest af því sem mér býr í brjósti þó að auðvelt væri að tala um þetta lengur. Frv. til l. um greiðslujöfnun fasteignaveðlána til einstaklinga liggur fyrir í Nd. Af hálfu Alþfl. hafa þegar verið fluttar brtt. við það sem gerð verður grein fyrir í þeirri hv. deild þar sem málið er nú til umr. Ég tef því ekki tímann hér með því að fara að rekja þær í smáatriðum. En eitt er alveg víst: Á fundi sem samtök húsbyggjenda héldu talaði einn af þm. Alþb. Það hefur verið hermt frá því í fréttum að hann hafi jafnan sagt: Þið verðið að gera þetta og þið verðið að gera hitt. Fyrir þetta mun þm. réttilega hafa fengið harðar ákúrur, réttmætar.
Ég er þeirrar skoðunar að ríkisstj., sem nú hefur safnað glóðum elds að höfði sér í hverju stórmálinu á fætur öðru, geti ekki skilist við þetta mál með þeim hætti sem nú horfir að hún muni ætla að gera. Eitthvað fleira verður að koma í þessu máli áður en Alþingi lýkur störfum á þessu vori, hvenær sem það verður. Ég trúi því og treysti að það verði gert. Stjórnarandstaðan mun þar ekki liggja á sínu liði og beita þeim ráðum sem hún hefur tiltæk til þess að „hjálpa“ ríkisstj. til þess að taka einhverja ákvörðun í þessum málum. — Ég segi „hjálpa“. Það eru ýmsar leiðir til þess.
En að lokum þetta: Alþingi á ekki og má ekki og ég vil bæta við skal ekki fara heim fyrr en einhver betri lausn hefur fundist á þeim málum sem hér hafa verið til umræðu.