12.10.1984
Sameinað þing: 4. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í B-deild Alþingistíðinda. (46)
Skýrsla ríkisstjórnarinnar um kjaradeilurnar
Fjmrh. (Albert Guðmundsson):
Virðulegi forseti. Ég var sérstaklega beðinn að koma í salinn og hlusta á virðulegan þm. Stefán Benediktsson, hv. 8. þm. Reykv., segja eitthvað af viti. Og ég gerði það að sjálfsögðu. Það fyrsta sem hann vildi að ég heyrði var það að ég eins og aðrir þm. hafi 44 þús. kr. á mánuði, svo að ég vinni líklega ekki fyrir því frekar en aðrir þm. Ef ég skildi rétt var það boðskapurinn sem mér fannst hann, sá virðulegi þm., vilja koma til mín. Ég hef meðtekið boðskapinn og vil þá upplýsa það að eini þm. sem við mig hefur talað og kvartað undan lágum launum þm. er þessi sami virðulegi þm. Hann talaði um hvað hann hefði tapað á því að koma til þings í staðinn fyrir að halda sig að sinni fyrri iðju, svo að ég er alveg reiðubúinn til þess, ef þm. er reiðubúinn til þess að koma með tillögu um það, að þm. fái kaup miðað við vinnuframlag. Og ég býð virðulegum þm. að vera meðflm. að tillögunni ef hann vill gera hana í þá veru.
(Gripið fram í: Er það bónuskerfi?) Það verður að finna það út hvaða kerfi það er. Það er oftast nær sem menn setjast niður og ræða það eftir hvaða kerfi menn vilja starfa. Ég vildi t.d. ekki starfa eftir kerfi Alþb. og ég efast ekkert um að Alþb.-menn væru í Sjálfstfl. ef þeir vildu starfa eftir því kerfi sem þar er, þar sem menn eru frjálsir og óháðir flokknum eins og Ellert, en hann er einmitt dæmi um það að menn geta verið í Sjálfstfl. með sjálfstæða skoðun.
Virðulegi forseti. Eigum við að halda samtölum áfram eða hef ég orðið? (Forseti: Hæstv. fjmrh. hefur orðið, ég held að það leiki enginn vafi á því.) Hv. þm. talaði um að októberbylting væri skollin á. Það má segja það. Það má segja að það sé skollin á októberbylting. Það er október og launafólkið er með harðar kröfugerðir og aðgerðir til að gera byltingu gegn lágum launum. Og við erum að reyna að mæta fólkinu við samningaborðið til að leysa þessa deilu, kveða niður þessa byltingu, þannig að allir geti verið sammála um það, þegar upp er staðið, að allt hafi verið gert til að mæta kröfum þess eftir að sjálfsögðu efnum og ástæðum.
Virðulegur þm. veit að fjárlögin eru afgreidd með miklum halla nú, halla sem er enn meiri en búist var við, vegna þess að okkar undirstöðuatvinnuvegur, sem allt byggist á, skilar minnu en búist var við. Það er alveg sama hvort stjórnin sem nú situr eða einhver önnur stjórn hefði verið við völd. Hafið hefði ekki gefið neitt meira. Það hefði ekki verið meira úr að spila. Verðið á afurðum okkar á Bandaríkjamarkaði hefði ekkert orðið hærra. Það er því ekki rétt að ríkisstj. sé að svelta þessa byltingarmenn, eins og hv. þm. orðaði það. Það eru ekki mín orð, það eru orð virðulegs 8. þm. Reykv. Það er mikið rangt. Að þm. hafi verið í verkfalli í sjö mánuði s.l. ár, ég hef aldrei heyrt um að þm. hafi verið í verkfalli. Kannske það sé draumur þm. að deilumál, vandamál þjóðarinnar séu leyst með því að þm. fari í verkfall í sjö mánuði. Ég ætla ekki að dæma um það. En þessi málflutningur er ekkert framlag í það alvarlega ástand sem við erum að glíma við í dag, ekkert.
Ég vil aðeins benda virðulegum 3. þm. Reykv. á það, það gleður mig alltaf að vita hann nálægt mér einhvers staðar, að það er ekki um að ræða neinar árásir fjmrh. á alþýðu þessa lands. Slík slagorð trekk í trekk ná ekki tilgangi. Ég er einfaldlega að gegna mínum skyldum sem fjmrh. En í umr. hér hef ég bent á þann óróa sem Alþb. hefur skapað í þjóðfélaginu, og ekki í fyrsta sinn, en sjaldan náð betri árangri en nú, og ég vitnaði í fyrirsögn sem flokksblað hans, Þjóðviljinn, gerði að undirfyrirsögn til að draga athygli fólks að því hvað er efst í huga þeirra Alþb.-manna í þeirra stefnuskrá.
Um kennarana ætla ég ekki að tala. En ég gat þess hér í gær að kennarar væru ekki hálaunað fólk og þyrftu að fá hærri laun, en þeir yrðu líka að þola það að gerðar yrðu auknar kröfur til þeirra. Og ég er reiðubúinn að ræða það og kem til með að ræða það við þá.
Ég get upplýst það til viðbótar við það sem ég gerði í gær, þegar ég las upp bókanir frá öllum þeim samningafundum sem samninganefnd ríkisins hefur tekið þátt í, hvað þar hefði skeð, atburðarás eftir atburðarás, dag eftir dag, að ekki hafi tekist að hefja þær umræður sem nauðsynlegar eru við samningaborðið til að leysa þá deilu sem við stöndum nú í, að í dag kom bréf frá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja til mín og til hæstv.forsrh., þar sem óskað var sérstaklega eftir því að við tækjum þátt í beinum umræðum við samningaborðið. Við höfum samþykkt þetta og ég reikna með að við getum þá sest í fyrsta sinn og rætt málin málefnalega til að leysa þessa deilu. Forustumenn BSRB gátu þess sérstaklega að þeir vildu leysa þessa deilu sem fyrst og það viljum við líka. Það höfum við alla tíð viljað og það munum við reyna að gera.
Ég vil taka það fram að ég er búinn að vera 14 ár borgarfulltrúi. Tvö kjörtímabil hef ég verið formaður launamálanefndar og staðið sem forustumaður í samningum við opinbera starfsmenn, og ég trúi því að þeir hafi ekkert undan mér að kvarta. Ég býð hverjum sem er, þó ekki væri nema að koma einn miðvikudag og vera viðstaddur viðtalstíma í rn. og sjá hvaða fólk kemur til mín. Þannig að það er ekkert grín að vera vinur hinna smáu. Það er ekkert grín og menn ættu að átta sig á því að það fólk sem þarf hvað mest á Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar að halda, það eru hinir smáu, það eru þeir sem við verðum að bera fyrst og fremst fyrir brjósti þegar við greiðum þá flækju sem er nú í þjóðfélaginu, ef við þá komumst að þeim í kjarasamningum nú frekar en vant er. Því það hefur aldrei staðið á stjórnvöldum að reyna að gera meira fyrir þá sem eru lægst launaðir en hina sem eru hátt launaðir eða hærra launaðir, eins og kom glögglega fram hjá virðulegum 4. þm. Reykn. Salome Þorkelsdóttur í mjög góðri ræðu sem hún flutti hér við þessar umr. En ég skora þá á þá sem geta haft áhrif á kjaradeiluna að opna okkur leið til þess að gera meira fyrir þá sem eru mest þurfandi en minna fyrir þá sem þurfa minna, þá sem hafa meira. Nú er komið að því eins og ég segi að ráðh. að ósk BSRB setjist við samningaborðið með nefndunum og ég bið ykkur um að létta okkur störfin og sýna þá virkilega hvað býr bak við þau orð sem hér hafa fallið í þessum umr. Hjálpið okkur en torveldið ekki leiðina.
Forsrh. (Steingrímur Hermannsson): Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessa umr. mjög en vil þó minna á örfá atriði sem komu fram í síðustu ræðum.
Hv. þm. Guðrún Helgadóttir taldi að ég þekkti lítið til þeirra sem lægstu launin hafa. Vel má vera að hún þekki það betur en ég. Ég vil taka undir það með henni að það fær enginn lifað á 13, 14 eða 15 þús. kr. launum á mánuði án þess að vera þá meira eða minna upp á aðra kominn. Ég vil einnig taka undir það með henni að mjög væri æskilegt að hækka þessi lægstu laun. Ég tel t.d. vel koma til greina að ákveða hækkanir í krónutölu. Þetta hefur reyndar verið gert áður en því miður hefur það alltaf runnið út í sandinn fyrr eða.síðar. Þessi hugmynd hefur verið nefnd í þessari deilu en hún hefur ekki fengið undirtektir, því miður, verð ég einnig að segja.
Ég vil vekja athygli á því að fyrir mitt tilstilli var fyrr á þessu ári gerð þó sú ítarlegasta könnun sem hefur verið gerð á því hvar láglaunafólkið væri. Sú könnun var gerð af Kjararannsóknarnefnd og undir leiðsögn forustumanna launþega. Þetta er ákaflega fróðleg könnun. Ég skoðaði niðurstöðurnar vel og mér heyrðist hv. þm. hafa eitthvað gert það líka. Sem betur fer kom í ljós að þeir voru færri en áður hafði verið talið sem höfðu svo lágar tekjur. Ég segi sem betur fer. Í ljós kom að kjörin voru lökust hjá takmörkuðum og ákveðnum hópum í þessu þjóðfélagi og samkomulag varð um við launþegahreyfingarnar að beina þeim 350 millj. kr., sem ráðstafað var í þessu skyni, að öllu leyti í samræmi við niðurstöður af þessari könnun. Og ég hef ekki ómerkari heimild en forseta ASÍ, Ásmund Stefánsson, fyrir því að í sumum tilfellum nam þessi hækkun 30% á sama tíma og ýmsir aðrir hópar, og reyndar þeir sem mest fengu að mati Kjararannsóknarnefndar, verkamenn, fengu 8% hækkun við undirskrift samnings. Mér þykir ákaflega leitt satt að segja ef þetta hefur ekki komið að einhverju liði. En það breytir ekki því að vitanlega er stór hópur manna enn sem býr við bág kjör og við þurfum að leggjast á eitt að lagfæra.
Hins vegar verð ég að segja að hv. þm. er ekki verulega jarðbundinn í heildarmynd sinni af möguleikum hins íslenska þjóðfélags. Síðan ég man hafa Íslendingar unnið langan vinnudag. Það gerði ég sem unglingur og það gerðu allir, í hvaða vinnu sem var. Og ég rakti það hér fyrr í dag að það er af mikilli vinnu, löngum vinnudegi sem við höfum byggt upp þau lífskjör sem við búum við nú. Ég tek um leið undir það með hv. þm. að ég tel mjög vafasamt að menn uni því til lengdar, og hvort rétt sé reyndar að una því til lengdar. Þess vegna nefndi ég það hér í dag að eitt af okkar stærstu verkefnum er að koma á þeirri nýsköpun í iðnaði sem leiði til meiri verðmætasköpunar en hefur verið í okkar atvinnugreinum til þessa. Ég er einnig sannfærður um að unnt er að gera stórátak í fiskvinnslunni til að auka þar framleiðni og þá um leið að geta hækkað launin, ég er sannfærður um það. Það var mikið átak gert með svokallaðri frystihúsaáætlun fyrir nokkrum árum og það urðu miklar framfarir þá í fiskvinnslunni. Ég hygg að gera ætti annað slíkt átak og ég veit að tæknimenn okkar eru með ýmsar hugmyndir, sem mundu auka mikið framleiðnina í fiskiðnaðinum. Það er einkum þar sem skórinn kreppir. Það er einkum þar sem lægstu launin eru og það er einkum þar sem erfitt er að hækka þessi laun vegna afkomu fiskvinnslunnar.
Hv. þm. Stefán Benediktsson vildi að ég væri viðstaddur til að hlusta á fyrirlestur hans um verðbólguna í Ísrael. (StB: Ég bað ekki um það.) Nú, ekki það, mér heyrðist hv. þm. ætla að tala nokkur orð til mín. (StB: Ég spurði bara hvað hefði gerst á fundinum.) Já, ég hlustaði einnig af athygli á það sem hann sagði um Ísrael og ég held að hann ætti að kynna sér þau mál töluvert betur. Það má margt af þeim læra. Þar er 400% verðbólga og þar er hið strangasta vísitölukerfi. Þar hækka laun eftir vísitölu mánaðarlega og verðið hækkar daglega í verslunum.
En hvað gerðist á fundinum í dag? Eins og hæstv. fjmrh. nefndi áðan þá áttum við ágætan fund með þremur forustumönnum BSRB. Það var farið fram á það að við fjmrh. tækjum virkan þátt í viðræðum, ef ég má orða það svo. Við tjáðum okkur fúsa til þess. Ég mun að sjálfsögðu gera það ef það getur orðið til þess að flýta fyrir lausn þessarar deilu. Ég vona að við eigum fyrr en seinna fund með samningamönnum, sem ég tel nokkuð öruggt um þessa helgi.
Hv. þm. Svavar Gestsson flutti nú stórum skárri ræðu en í gær, var bara nokkuð málefnalegur og vil ég óska honum til hamingju með það. Ég verð þó að leiðrétta tvö öfugmæli, ef ég má kalla það svo, sem hann fór hér með. Hann fullyrti að ég hefði sagt í viðtali við Dagblaðið að félagar mínir í ríkisstj. væru með rýtinginn í bakinu á mér. Þetta er náttúrlega rangt, það veit hv. þm. Ég sagði í viðtali við Dagblaðið að kannske væru einhverjir í öllum flokkum með rýtinginn á lofti. Ég held það hafi verið nokkurn veginn orðrétt þannig. Ég vil taka það skýrt fram að samstarfið við mína félaga í ríkisstj. er ágætt og ég hef ekki reynt þá menn að neinum ódrengskap. Ég vil einnig taka fram að í þeirri ríkisstj. sem við hv. 3. þm. Reykv. sátum saman í taldi ég að við ættum ágætt samstarf með þeim þremur Alþb.-mönnum sem þar voru. Ég varð aldrei var við það að þeir væru með rýtinginn á lofti. Þetta má gjarnan koma fram. Ég verð hins vegar að segja það að í ríkisstjórninni 1978–1979 voru því miður allt of miklar deilur og harðar, og það varð banamein þeirrar ríkisstjórnar. Hún entist stutt. Vitanlega verða menn, þegar þeir vinna saman, þó þeir hafi ólíkar skoðanir, að vera nógu miklir menn til þess að vera ekki með rýtinginn á lofti, vinna saman eins drengilega og þeir frekast geta þótt skoðanir kunni að vera ólíkar.
Hv. þm. ræddi nú enn um það að ég væri að skjóta mér frá ábyrgð með því að vísa til þess að ríkisstj. er ekki fjölskipað stjórnvald. Ég veit að hv. þm. man það mætavel að hann kom til mín oftar en einu sinni, ég gæti eiginlega sagt með grátstafinn í kverkunum og klagaði út af því að þáverandi utanrrh., Ólafur Jóhannesson, hafi tekið ýmsar ákvarðanir án þess meira að segja að tala um það við Alþb. Reyndar gæti ég rakið ýmsar ákvarðanir sem einstakir ráðh. í þeirri ríkisstjórn tóku í skjóli síns valds, t.d. fyrrv. iðnrh. sem tók ýmsar ákvarðanir sem hann hafði fullt vald til að taka og hann vissi mætavel að við vorum ekki á einu máli um þær allar.
Að sjálfsögðu tók hæstv. fjmrh. ákvörðun um greiðslu launa, eða réttara sagt að greiða ekki út laun nema í þrjá daga í skjóli síns valds. Það var ekki vefengt. Hins vegar hafði verið um það rætt í ríkisstj. og menn lýst sínum skoðunum.
Hv. þm. Svavar Gestsson kom svo að nokkrum atriðum sem hann óskaði að ég leiðrétti ef rangt væri með farið. Hann minntist m.a. töluvert á stöðu sjávarútvegsins. Ég vil aðeins fara um það fáeinum orðum. Staða sjávarútvegsins er erfið núna fyrst og fremst vegna lélegra aflabragða og erfiðra markaða. Vel má vera að það sé hægt að ná einhverjum árangri með því að lækka t.d. flutningskostnað. Ég trúi því og ég hef fyrir mitt leyti lagt á það áherslu við þá aðila í sjávarútvegi sem við mig hafa talað að þeir eigi að bjóða út flutningskostnaðinn. Ég sé enga ástæðu til annars. Ég er sannfærður um það, og reyndar kom það í ljós þegar flutningur til Japans var boðinn út. Þá fékkst töluverð lækkun á flutningskostnaði. Þetta á vitanlega að gera.
Hv. þm. ræddi einnig um svonefnd umboðslaun, sem eru núna 11% í Bandaríkjunum, og taldi þau ákveðin af ríkisstj. Það er ekki rétt. Þau eru ekki ákveðin af ríkisstj., enda minnist ég þess t.d. þegar við hv. þm. sátum saman í ríkisstjórn að þá hækkuðu fyrirtækin í Bandaríkjunum þessi svonefndu umboðslaun úr 10 í 11%. Við lögðum að vísu á það áherslu að þau yrðu lækkuð. Það tók töluverðan tíma en gerðist þó að lokum. Ég vil bara vekja athygli á því að þessi umboðslaun ákvarðast fyrst og fremst af því hverjir vextir eru í Bandaríkjunum. Þessi fyrirtæki eru þar með ákaflega miklar birgðir af sjávarafurðum, meiri núna en nokkru sinni fyrr. Þetta er allt fjármagnað með lánum þar í landi og þar eru vextir nú ákaflega háir eða 12–13%. Það er þess vegna sem þessi umboðslaun svokölluð voru hækkuð. Þau eru fyrst og fremst vaxtakostnaður af birgðahaldi þar. Ég er þess vegna ekki viss um að það takist, meðan vextir eru þar svo háir, að lækka þessi umboðslaun þótt æskilegt væri. Ég held hins vegar að það þurfi að gera stórátak í sölumálum sjávarútvegsins. Ég er ekki að segja að fyrirtækin í Bandaríkjunum hafi ekki gert margt gott, en mér finnst enn sem oft fyrr að þau hafi ekki lagt næga áherslu á ýmsa aðra markaði. Að vísu er það svo að fiskverð í Evrópu er lágt um þessar mundir, mjög lágt. T.d. í Bretlandi er verð á pundi af þorski nú 70 cent en í Bandaríkjunum 160. Það er því ekki mjög vænlegt að fara inn á þessa markaði eins og er. En engu að síður ber vitanlega að leita leiða hvar sem er.
Síðan sagði hv. þm. að ég hefði gert hér þrjú tilboð. Ég er búinn að fá mína ræðu vélritaða og fór yfir hana vandlega áðan. Þarna er um misskilning að ræða. Ég rakti fjölmörg dæmi, annars vegar um peningalaunahækkanir og hins vegar blandaða leið peningalaunahækkana og skattalækkana. Ég fór reyndar allt upp í það sem kalla mætti öfgarnar í hækkunum, þar sem voru mjög miklar hækkanir út allt næsta ár, og ég taldi, eins og hv. þm. getur lesið í minni ræðu, að verðbólga yrði þá um 30–35%. Meginniðurstaða mín varð sú, að það yrði að gæta sín mjög á peningalaunahækkunum vegna þess að þá væri líklegt að annað af tvennu gerðist: annaðhvort stöðvuðust þeir atvinnuvegir sem gætu því miður ekki greitt þessar hækkanir eða gengið léti undan. Og ég taldi að í einu þessara dæma, eins og hann t.d. nefndi, 6–4—2–2, væri áreiðanlega komið út á ystu mörk þess sem gengið þyldi eða atvinnuvegirnir og því væri æskilegra að fara aðra leið, þ.e. blandaða leið með skattalækkunum. Ég rakti síðan hvað ég teldi hugsanlega lausn á þessum málum og ég rakti það aftur í dag og sé því ekki ástæðu til að rekja það ítarlega enn einu sinni. Í örfáum orðum sagði ég að ég teldi að peningalauna- eða kostnaðarhækkun atvinnuveganna á bilinu 6–10% kæmi til greina, en þó ekki yfir 6% til að byrja með, og síðan skattalækkanir sem tryggðu kaupmátt frá síðasta ársfjórðungi 1983. Ég sagði einnig, með tilvísun til BSRB, að það hlytu að fara fram sérkjarasamningar, sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum, og það væri sjálfsagt að gera samanburð við launakerfið á hinum almenna markaði. Ég skal ekkert segja hvað út úr því kæmi. Eflaust kæmu út úr því einhverjar hækkanir eða leiðréttingar eða hvað menn vilja kalla það. Og ég endurtók að ég teldi að það ætti að leggja áherslu á að hækka lægstu launin. Þetta var það sem kannske mætti kalla tilboð.
Nú telur hv. þm. að hér sé um allt of lágt tilboð að ræða. Hann er að sjálfsögðu frjáls að þeirri skoðun. Og hann taldi að tvímælalaust væri nauðsynlegt að nota þann bata, sem menn vona og ætla að verði á næsta ári, til þess að hækka launin. Sá bati er talinn verða um 12% af þjóðarframleiðslu. Ég verð að segja það að eins og hér hefur verið lýst, hv. þm. lýsti m.a. stöðu sjávarútvegsins og þeim gífurlegu erfiðleikum sem þar eru, þá veitir svo sannarlega ekki af að þessi gífurlega mikilvæga atvinnugrein fái aðeins að rétta úr kútnum. Ég held að það sé það mikilvægasta ef á að takast, og sem verður vitanlega að takast, að endurheimta þau lífskjör sem hér voru, þá verður sjávarútvegurinn að fá tækifæri til að rétta úr kútnum. Og þetta er aðeins smávægilegur bati á næsta ári sem verið er að tala um.
Ég vil svo að lokum, herra forseti, ljúka þessari umræðu fyrir mitt leyti með því að segja að hér hafa margar ræður og miklar verið fluttar og mörg þung orð verið látin falla. Ég læt þau orð mér í léttu rúmi liggja sem til mín hafa fallið. Ég vil hins vegar leggja á það áherslu að mikilvægast er að takist að leysa þessa kjaradeilu. Og hún leysist ekki í stríði, það er öruggt mál. Stríð mun aðeins verða öllum til skaða, þeim sem eiga nú í kjaradeilu, ríkisvaldinu og þjóðinni. Sömuleiðis verður löng deila öllum til tjóns. Það er nú oft svo að jafnvel löng deila verður ekki bætt upp með launahækkunum. Því er mikilvægt að hún leysist sem fyrst. Ég er á þeirri skoðun að svona deila leysist vart á 60–70 manna fundum. Ég held að svona deilur leysist fyrst og fremst með persónulegu sambandi þeirra sem eru í forustu beggja vegna. Og það er einlæg von mín að sá fundur sem var haldinn seinni partinn í dag verði til þess að þetta samband styrkist og verði til þess að þessi deila leysist og það fljótt.
Svavar Gestsson: Herra forseti. Það er aðeins út af einu atriði í ræðu hæstv. forsrh. þar sem hann misskildi mig bersýnilega varðandi þær tölur sem ég fór hér með áðan. Ég sagði sem svo að varðandi þær kauphækkanir sem nú verður óhjákvæmilega að semja um dygði auðvitað ekki að einblína bara á fjórða ársfjórðung 1983, þar sem er um að ræða algeran botn í kaupmætti, heldur yrði líka að taka tillit til þess að spáð er nokkurri aukningu á árinu 1985 og þess að samdráttur þjóðarframleiðslu á þessu ári er um 3% minni en gengið var út frá þegar samningarnir í febrúar voru gerðir. Það er þessum mun, hvað sem öðru líður, meira svigrúm en menn töldu þá vera, auk þess sem eðlilegt er að sótt verði nokkuð inn á árið 1983 og ekki látið staðar numið við kaupmátt fjórða ársfjórðungs.
Hæstv. fjmrh. endurtók það hér, sem hann hefur oft sagt áður, að það er ekkert grín að vera vinur hinna smáu. Þegar hann heldur ræður sínar um hinn mikla vanda, sem er fólginn í því að vera vinur hinna smáu, þá á vel við í lok þessarar umræðu vísa sem allir kunna og er svona:
Mannúðin okkar manna
er mikil og dásamleg.
Við göngum svo langt í gæðum
að guð má vara sig.
.