15.05.1985
Neðri deild: 70. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5354 í B-deild Alþingistíðinda. (4618)

430. mál, bankaráð ríkisbankanna

Kristín Halldórsdóttir:

Herra forseti. Það er einkennileg afstaða, finnst mér, að telja óeðlileg hlunnindi fullkomlega afsakanleg vegna þess eins að þau hafi viðgengist um árabil. Slíkt má nota sem skýringu á viðhaldi slíkra hlunninda, en ekki sem afsökun fyrir því. Spilling er spilling hversu gamalgróin sem hún er og ég er undrandi á þeim hv. þm. sem verja þessa fríðindaspillingu eins og hún væri þeirra brýnasta hjartans mál. Almenningi var alls ekki ljóst hve mikils virði bílakaupafríðindi ráðh. og bankastjóra ríkisbankanna voru í beinhörðum peningum fyrr en nú fyrir nokkrum vikum. Þegar það var upplýst að þessi fríðindi væru metin sem svarar hátt í þreföldum árslaunum láglaunafólks ofbauð fólki gjörsamlega, skiljanlega, og bankaráðsmenn fengu bágt fyrir að vonum.

Þessi mál hafa nú verið rædd hér allnokkuð og málsatvik kunn þótt þm. séu ekki á eitt sáttir um hvernig taka eigi á þessu máli né hversu alvarlegt það er. Ég var reyndar þeirrar trúar að meiri hluti þm. teldi að bankaráðsmenn hefðu farið rangt að í þessu máli þótt þeir litu það ekki allir jafnalvarlegum augum. En nú veit ég eiginlega ekki hvað skal halda. Almenningsálitið var greinilega andsnúið ráðslagi bankaráðsmannanna þegar uppvíst varð um það, taldi það greinilega siðlaust, ef ekki löglaust, og það hefur kannske valdið því að þeir hafa hingað til haft fremur hljótt um sig.

Reyndar finnst mér þetta ófrjó umræða, ómálefnaleg og til lítils gagns. Persónulegt skítkast og aulafyndni, sem heyrist því miður allt of oft héðan úr þessum ræðustól, er ekki hv. Alþingi sæmandi. Mér væri meira í mun að fá fréttir af því hvar á vegi þetta mál er statt. Það er nú liðið ár síðan við samþykktum einróma hér á Alþingi að fela hæstv. núv. ríkisstj. að fella niður bílakaupafríðindi bankastjóra ríkisbankanna. Það var mjög ótvíræður vilji Alþingis. Það hefur ekki verið gert. Og það er ríkisstj. sem hefur brugðist í þessu máli. Ég sakna þess að hér skuli ekki vera staddur hæstv. bankamálaráðherra til þess að skýra frá hvernig málið stendur nú, hvernig miðar störfum nefndarinnar sem í meira en ár hefur unnið að endurskoðun á bifreiðamálum ríkisstofnana, eins og það var orðað í svari viðskrh. við utandagskrárumræðuna sem hér hefur verið vitnað til. Það lítur sem sagt út fyrir að vera í meira lagi erfitt og flókið verk. Það staðfestu líka orð hv. 3. þm. Norðurl. e. hér áðan, en hann hafði auðheyrilega litast um í þeim frumskógi til réttlætingar á fríðindum bankastjóranna.

Þótt ég sé sammála hv. flm. þess frv. sem hér er til umr. um að bankaráðsmenn hafi farið illa að ráði sínu og eigi fyllilega skilið þá hneykslun og umræðu sem orðið hefur er ég þeim ósammála um að fella beri niður umboð núverandi bankaráða ríkisbankanna og kjósa ný bankaráð. Það er framkvæmdavaldið, ríkisstj., sem hefur brugðist í þessu máli. Það væri nær að svipta hana umboði og kjósa nýja ríkisstjórn.