20.05.1985
Efri deild: 77. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5373 í B-deild Alþingistíðinda. (4633)
99. mál, kirkjusóknir
Davíð Aðalsteinsson:
Hæstv. forseti. Það er rétt að það hafa orðið allverulegar umr. um þetta mál. Það vill svo til að ég á sæti ásamt með tveimur öðrum hv. þm. hv. Ed. í samstarfsnefnd Alþingis og þjóðkirkjunnar. Þar hefur þessi mál borið á góma. Þó rekur mig ekki minni til að þessi atriði, sem hér eru til umfjöllunar, hafi mjög verið til umræðu, en borið á góma þó.
Ég segi nú fyrir mitt leyti að mér finnst eðlilegt að lúta óskum kirkjunnar manna í þessu efni. Þó er skoðun mín sú og vil ég þá taka undir það sem hér hefur komið fram, að í mörgum atriðum mætti kirkjan vera sjálfstæðari í sínum gerðum. Ég sé þó ekkert því til fyrirstöðu að um þennan þátt, þ. e. um fjölda guðsþjónusta, sé einhver lágmarkslagarammi. Ég vil hins vegar benda á að til geta verið þau tilvik að það sé fullkominn réttur sóknarbarna að það verði ekki messað allt of oft í einstökum sóknum. Sem betur fer eru þó prestar landsins hinir bestu menn, a. m. k. þeir sem ég þekki til, og reyni ég ævinlega að fara til kirkju og geri það.
Eins og hér hefur verið bent á er hér um mjög misjafnan rétt að ræða á grundvelli 9. gr. eftir atvikum, eftir því hversu sóknirnar eru fjölmennar. Á hitt ber jafnframt að lita að aðstaða getur verið mjög misjöfn á milli hinna einstöku sókna sem hafa svipaðan fjölda sóknarbarna. Enda þótt svo geti verið og svo sé í raun er það mín niðurstaða, og ekki síst með tilliti til óska kirkjunnar manna sjálfra, að búa þessi atriði í lágmarkslagaramma og vil ég fylgja því.
Hér er getið um endurskoðun sem fram fari af hálfu prófasts. Auðvitað kemur prófasturinn mjög við sögu varðandi stjórn kirkjunnar málefna á hverju svæði. En það má vel vera, og ég geri fastlega ráð fyrir því, að tildrögin að þessari lagagrein séu e. t. v. ekki síst þau að prófastarnir sjálfir fyrst og fremst hafi að baki sér það sem eykur myndugleika þeirra í þessum efnum.
Því miður vantar hér í Ed. einn hv. þm. sem ritaði undir nál. með fyrirvara, hv. þm. Eið Guðnason. Hér deila menn um visst atriði í þessu frv. Hv. þm. hefur ritað undir með fyrirvara. Ég held að eðlilegt væri að hv. þm. væri gefinn kostur á því að taka þátt í þessari „merkilegu“ umræðu.