20.05.1985
Efri deild: 77. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5374 í B-deild Alþingistíðinda. (4635)
99. mál, kirkjusóknir
Forseti (Salome Þorkelsdóttir):
Vegna orða hv. 5. þm. Vesturl. um að hv. 5. landsk. þm. hefði átt að fá tækifæri til að tjá sig um þessa brtt. er rétt að geta þess að hv. 5. landsk. þm. var hér á þingdeildarfundi þegar málið var tekið til 2. umr., en hins vegar ekki hv. 3. þm. Norðurl. v. sem einnig undirritaði nál. með fyrirvara svo að það er held ég ástæðulaust að fresta þessu máli af þeim ástæðum.