20.05.1985
Efri deild: 78. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5382 í B-deild Alþingistíðinda. (4650)
505. mál, sjóðir atvinnuveganna
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi séð þetta frv. um tvöleytið þegar ég kom á þingfund og mig óraði satt að segja ekki fyrir því að það yrði tekið hér til 1. umr. nú í dag. Og ég heyrði það reyndar á máli hæstv. forsrh. að hann er orðinn býsna ruglaður í ríminu. Mér fannst engu líkara en hann væri að tala innanbúðar í stjórnarherbúðunum og að greina frá því sem þar væri að gerast og hefði verið að gerast í þessum efnum, væri að lofa okkur að heyra ýmislegt af því sem þar hefði komið fram og væri sem sagt farinn að rugla löggjafarsamkomunni hér illa saman við fundi í stjórnarflokkunum. Sem betur fer er ástandið ekki eins slæmt hér á löggjafarsamkundunni og innan stjórnarflokkanna þó að mörgum þyki það kannske ekki til fyrirmyndar. En greinilega liggur hæstv. forsrh. mikið á að knýja þetta mál í nefnd, svo þýðingarmikið sem það er að þeirra dómi, fulltrúa stjórnarflokkanna, sem þetta hafa samið, mál sem ég tel eitt stærsta mál sem við fjöllum um á þessu þingi. Það er tekið til umræðu áður en menn hafa hér fengið tækifæri til að lesa það yfir, hvað þá meir.
Mér þykir til heldur mikils mælst af hæstv. forsrh. að reikna með því að þessi umræða verði annað en gerviumræða á þessu stigi. Ég reikna reyndar með því að hæstv. ríkisstj. vilji láta umræður hér á Alþingi vera eins konar gerviumræður, eins konar afgreiðsluumræður fyrir það sem þegar hefur verið ákveðið innan stjórnarflokkanna. Ég sé það á þessu og kemur reyndar ekkert á óvart. Ég ætla þess vegna ekki að ræða þetta mál efnislega nú og tel það óviðeigandi með öllu eftir svo skamman tíma sem við höfum haft það hér á borðum okkar.
Hér er hins vegar um að ræða mál sem kann að skipta sköpum fyrir framtíð atvinnulífs okkar í öllum grunngreinunum þremur, landbúnaði, sjávarútvegi og iðnaði, hvernig lánastarfsemi til þessara atvinnugreina verði hagað í framtíðinni. Hér er bæði um kerfisbreytingu og eðlisbreytingu að ræða ef marka má orð hæstv. forsrh.
Um 1. gr. segir í athugasemdum, með leyfi virðulegs forseta:
„Gert er ráð fyrir að sömu lög taki til þriggja stærstu atvinnuvegasjóða landsins. Með því móti er lögð áhersla á að skipulag og starfsemi sjóðanna sé samræmd þótt einstök atriði séu frábrugðin frá einum sjóð til annars.“
Ég spyr nú bara: Hver segir að svo verði, þrátt fyrir það að þessu sé hnoðað í einn lagabálk, með hverjum sjóði sérstökum og sérlögum fyrir hann í raun og veru inni í þessum sama lagabálki? Hver sér um að þarna verði betri samræming? Ég stórefa að svo verði.
Ég hélt að það væri eiginlega lágmarks tillitssemi sem okkur yrði sýnd í stjórnarandstöðunni að við fengjum að lesa þetta frv. áður en það væri tekið hér til umr. Ég geri mér ljóst að um málið verður fjallað í nefnd og þar fá menn sjálfsagt tækifæri til að fara nánar ofan í þetta. Það er hins vegar greinilegt á þessum vinnubrögðum að hæstv. ríkisstj. er staðráðin í því að halda hér mikið og voldugt sumarþing fram eftir öllu, og þeir um það vitanlega. Ef þeir vilja haga sér þannig gagnvart stjórnarandstöðunni, þá stendur auðvitað ekki á okkur að taka þátt í þessum sumarleik þeirra. Ég ætla sem sagt ekki að gera efnislegar athugasemdir við þetta frv. sem ég hef ekki lesið. En ef hæstv. ríkisstj. ætlar að fara þannig að, þá sé ég ekki ástæðu til þess að við hana verði höfð samvinna um eitt eða neitt varðandi þinghaldið. Hér er greinilegum stríðshanska kastað og það af oddvita hæstv. ríkisstj. Hann gengur fram fyrir skjöldu, enda honum sæmst og út af fyrir sig karlmannlegast, eins og hann er reyndar vaxinn til, að taka það á sig að kasta þessum stríðshanska.
Ég gæti hér rætt ýmislegt varðandi þann sjóð sem ég þekki best til, sjóð landbúnaðarins, en ég sé ekki ástæðu til að gera það við þessa umræðu. En það skyldi þó ekki koma á daginn, þegar menn hefðu athugað þetta mál, sem svo lengi hefur verið að velkjast fyrir stjórnarflokkunum og togast hefur verið þar á um fram og til baka, að kannske væri ekki um svo mikla breytingu að ræða heldur verið að fullnægja einhverju ákvæði í stjórnarsáttmála, og að falleg orð og skrautlegar umbúðir utan um ekki neitt væri það sem kæmi í ljós.