20.05.1985
Efri deild: 78. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5385 í B-deild Alþingistíðinda. (4652)
505. mál, sjóðir atvinnuveganna
Egill Jónsson:
Virðulegi forseti. Það er að sjálfsögðu eins með mig og aðra hv. þm. sem hér hafa talað að mér hefur ekki gefist kostur á að fara yfir þetta frv. En þar sem því er nú vísað til fjh.- og viðskn. gefst kostur væntanlega á að fjalla um það þar og get ég að sjálfsögðu af þeirri ástæðu beðið með mínar athugasemdir þangað til. Mér þykir þó rétt að benda hér á örfá atriði sem ég tel að þurfi að athuga sérstaklega og mjög nákvæmlega við frekari umfjöllun málsins hér í deild eða í þeirri nefnd sem fær það til meðferðar.
Þá er það sérstaklega 14. gr. sem þarf að minni hyggju mikillar athugunar við, í fyrsta lagi í sambandi við þá tekjustofna sem þar er um fjallað og eru orðnir ærið gamlir í hettunni, sumir hverjir alveg frá upphafi þess að þessi löggjöf var sett, þ. e. breytt var úr ræktunar- og byggingarsjóðum í sveitum yfir í Stofnlánadeild landbúnaðarins. Þarna er að sjálfsögðu um að ræða verulega mikla skattheimtu á landbúnaðinn. Ber að hafa í huga í því sambandi að hér er ekki um það að ræða að stofnlánadeildargjaldið komi til gjalda í búrekstri, heldur er þetta launatengt gjald á framleiðendur sjálfa. Ber mjög að athuga það í þessari umfjöllun allri að fullt samræmi sé á milli atvinnuveganna sem greiða hliðstæð gjöld, þannig að einum sé þar ekki íþyngt fram yfir það sem gerist með aðra.
Til viðbótar við þetta vil ég minna á að það getur tæpast dregist lengur að menn geri það upp við sig hvort það sé að öllu leyti samrýmanlegt að kalla inn fjármagn frá landbúnaðinum á sama tíma og nánast hver einasta króna þangað er lánuð fullverðtryggð og að sjálfsögðu þá með mjög svipuðum eða sambærilegum kjörum og sjóðurinn tekur að láni, þannig að þar á ekki að vera um halla að ræða. Þessi skipan mála hefur verið rökstudd með því að fyrr á árum hafi verið tekin mikil lán til Stofnlánadeildarinnar sem hafi þá verið verðtryggð en síðan lánuð út jafnvel óverðtryggð. Þetta gekk svo alveg fram undir árið 1976. Það er náttúrlega nauðsynlegt að fá um það mjög glöggar upplýsingar hvað miklar skuldbindingar hvíla á Stofnlánadeild landbúnaðarins af þessum sökum og hvort áfram sé hægt að forsvara þá gjaldtöku sem er til deildarinnar með sama hætti og gert hefur verið fram til þessa. Þetta tel ég að þurfi að fara mjög gaumgæfilega í gegnum og meta þær niðurstöður síðan.
Það sem ég hef þó einkum við 14. gr. að athuga er það sem segir í niðurlagi hennar sem með leyfi virðulegs forseta hljóðar svo:
„Eignir Framleiðnisjóðs landbúnaðarins og sérstök framlög, þ. á m. eftir atvikum hluti ráðstöfunarfjár Búnaðarsjóðs skv. ákvörðun ársfundar sjóðsins hverju sinni, skulu renna í sérstaka deild innan Búnaðarsjóðs, sbr. 11. gr. laga þessara. Fé þessu og fjármagnstekjum af því skal haldið aðgreindum í bókhaldi og reikningum sjóðsins.“
Hér er síðan vitnað til 11. gr., þar sem skilgreind eru nánar verkefni Framleiðnisjóðs.
Nú vill svo til að í öðru frv., sem hér er til umfjöllunar í landbn. Nd. Alþingis, eru mikilvæg ákvæði um búháttabreytingu í landbúnaði, sem lagt er til að verði unnin með skipulögðum hætti á næstu árum, t. d. næstu fimm árum. Ég hef miklar efasemdir um að því fjármagni sé sérlega vel borgið í Búnaðarsjóði. Fyrir þessu er í fyrsta lagi nokkur reynsla. Menn ætluðu sér stóra hluti í þessum efnum árið 1979, þegar framleiðsluráðslögunum var þá breytt og dálítið fjármagn, sem veitt var þá á fjárlögum sem hluti af jarðræktarframkvæmdum eða undir þeim lið, var ætlað til þessara verkefna.
Í fyrstu var t. d. hluta af því fjármagni veitt til Stofnlánadeildar landbúnaðarins sem framlagi er hún síðan lánaði út til þessara verkefna með fullum vöxtum og jafnvel verðtryggingu. Ég óttast það í þessum efnum að þeim sem kæmu til með að stjórna Búnaðarsjóði yrði vísað á það fjármagn sem m. a. kæmi inn í sjóðinn vegna búháttabreytingar eða áforma um þá breytingu. Og það sem segir hér í síðustu mgr. 14. gr. snýr á haus fyrir mér. Ég hef ekki trú á því að það komi fjármagn úr Stofnlánadeild landbúnaðarins til þessara verkefna, heldur verði þetta búháttabreytingafjármagn þvert á móti látið ganga á vegum Búnaðarsjóðs til almennra lánveitinga.
Þetta hvort tveggja vildi ég, virðulegi forseti, láta koma hér fram þegar við þessa umræðu. Ég tel að mjög þurfi að gaumgæfa þá skattheimtu sem felst í 14. gr. og athuga hvert samræmi er á milli atvinnuveganna í þeim efnum, og svo líka hitt, sem ég tel að sé í raun meginmál varðandi íslenskan landbúnað í dag og muni verða ráðandi um það hvort við höldum við byggðinni í landinu, a. m. k. nokkurn veginn í því horfi sem hún er nú, að séð verði um að því fjármagni sem til þess er ætlað í frv. til nýrra laga um Framleiðsluráð landbúnaðarins verði þannig ráðstafað að ekki verði í neinu hvikað frá þeim ásetningi sem þar kemur fram. Ég óttast að í þessu frv. sé ekki nægilega vel frá því gengið.