20.05.1985
Efri deild: 78. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5387 í B-deild Alþingistíðinda. (4656)

506. mál, Landflutningasjóður

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Virðulegi forseti. Frv. það sem nú er tekið til umr. er fylgifrv. frv. sem fjalla um Byggðastofnun, Þróunarfélag og Framkvæmdasjóð. Með þeim frv. er gert ráð fyrir að Framkvæmdastofnun verði lögð niður 1. sept. n. k. og þær stofnanir sem ég nefndi taki við verkefni hennar. Í lögum nú er gert ráð fyrir að stjórn Framkvæmdastofnunar tilnefni fulltrúa í Landflutningasjóð sem er jafnframt í vörslu Framkvæmdasjóðs. Með þessu frv. er gert ráð fyrir að flytja þessa vörslu yfir til Byggðastofnunar þannig að Landflutningasjóður verði staðsettur þar. Það þykir á allan máta vera eðlileg staðsetning fyrir Landflutningasjóð og sömuleiðis þá að Byggðastofnun tilnefni fulltrúa í stjórn Landflutningasjóðs.

Um þetta held ég að þurfi ekki að hafa langa ræðu og læt ég þetta nægja, en legg til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.