01.11.1984
Sameinað þing: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 702 í B-deild Alþingistíðinda. (466)
100. mál, þingnefnd vegna rekstrarvanda í sjávarútvegi
Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):
Herra forseti. Það hefur komið fram sérstaklega hjá hv. 3. þm. Reykv. að hann undrast það að ég skuli ekki vera sammála því að ástæða sé til að kjósa sérstaka þingnefnd vegna rekstrarvanda íslenska sjávarútvegsins. Það væri köld gusa til þeirra sem eru að missa atvinnuna, eins og ég held að hv. þm. hafi orðað það. Nú er það að svo margvísleg mál koma hér fyrir Alþingi sem varða sjávarútveginn. Eitt af þeim málum sem við höfum unnið að undirbúningi að er fiskveiðistefna næsta árs. Það er afar mikilvægt mál að því er varðar skilyrði sjávarútvegsins og afkomu hans. Mikilvægast fyrir sjávarútveginn í heild er að sjálfsögðu hvað mikið er hægt að afla og með hvaða hætti þessi afli er sóttur. Það hafa verið fundir um þau mál með sjávarútvegsnefndum þingsins og sjútvn.mönnum voru áður en þing hófst afhentar þær upplýsingar sem lágu þá fyrir um afkomu sjávarútvegsins. Nauðsynlegt er að hafa sem besta samvinnu við þingið og eiga samstarf við þá menn sem sérstaklega starfa í sjávarútvegsmálum um öll þessi mál. Og ég tek undir það að að sjálfsögðu er nauðsynlegt að hafa slíka samvinnu einnig við fulltrúa stjórnarandstöðu.
Eitt af því sem er nauðsynlegt að gera og ég hef rætt við sjútvn. þingsins er að skipa nefnd til að endurskoða sjóðakerfi sjávarútvegsins. Ég hef farið þess á leit við sjútvn. þingsins að þaðan verði tilnefndir menn til að starfa með hagsmunaaðilum og fleirum að því máli. Það er því útúrsnúningur hjá hv. þm. að ég sé með þessum hætti að hafa á móti því að þm. starfi í þessum málum. Hann gerði að vísu mikið úr því að ég hefði talið að aðskilja ætti framkvæmdavald og löggjafarvald. Það vill nú svo til að það eru orðin mjög mörg ár síðan ég flutti um það frv. hér á Alþingi hvernig best væri að styrkja löggjafarvaldið gagnvart framkvæmdavaldinu. Ég taldi að það yrði best gert með því að auka eftirlitshlutverk þingsins og sú stofnun sem nú er undir fjmrh., Ríkisendurskoðun, yrði tæki þingsins til eftirlits með löggjafarvaldinu. Ég taldi það hina einu leið til þess að löggjafarvaldið gæti öðlast styrk gagnvart framkvæmdavaldinu. Það væri ekki rétt að fara þá leið, sem mér hefur oft sýnst að farin væri, að þm. yrðu beinir þátttakendur í framkvæmd mála. Að sjálfsögðu er þarna erfitt að skilja á milli og þarna er ekkert eitt endilega rétt. En ég setti fram þessar skoðanir mínar löngu áður en Bandalag jafnaðarmanna var stofnað og þær koma mjög skýrt fram í grg. með þessu frv. og málflutningi þeim sem ég hafði þar uppi. Ég hef ekki breytt um skoðun og mér hefur fundist þessi skoðun eiga vaxandi fylgi að fagna hér á Alþingi.
Ég vil því mótmæla því að ég sé andvígur því að þm. taki þátt í þessum málum og vinni að þeim. Ég tel það reyndar mjög eðlilegt og nauðsynlegt að sjávarútvegsnefndir þingsins, eins og ýmsar aðrar nefndir, geri miklu meira af því að kalla fyrir sig aðila í sjávarútvegi og vinna að athugun á ýmsum málum, ekki aðeins í tengslum við þingmál heldur í þessum málum almennt. Ég er hins vegar efins um að það beri að koma á föstum þingmannanefndum í einstökum málaflokkum í miklum mæli. Þar ræður nokkru um að nefndir þingsins eru oft á tíðum illa búnar til að takast á við slík verkefni vegna þess að þær hafa engan starfsmann. Ég er sannfærður um að það væri mjög til bóta að nefndirnar hefðu á að skipa starfskröftum til aðstoðar í hinum ýmsu málum. Skortur á starfsliði er áreiðanlega ástæðan fyrir því að þingnefndir hafa oft og einatt ekki geta sinnt málum eins og skyldi.
Hins vegar get ég ekki fallist á að mæla með till. sem er flutt á þeirri forsendu eins og hér segir að „gert sé ráð fyrir sérstöku átaki vegna togaraútgerðarinnar þar sem stjórnvöld hafa ekki bent á leiðir í þeim efnum. Því er eðlilegt að Alþingi taki það mál sérstaklega í sínar hendur“. Það er e.t.v. eðlilegt að stjórnarandstaða og stjórnarandstöðuþm. hafi þær skoðanir að ekkert hafi í þessum málum verið gert og þess vegna sé það eina rétta að þeir taki það sérstaklega í sínar hendur. Ég skil þessa setningu þannig. Og mönnum finnst það afar undarlegt að ég skuli ekki taka undir þetta. Ég er ekki þeirrar skoðunar að ekkert hafi verið í þessum málum gert. Og ég get ekki séð að meiri skipulagsbreytingar hafi verið gerðar á styttri tíma í íslenskum sjávarútvegi við afar erfiðar aðstæður. Ég hef aldrei haldið því fram að þar sé allt í lagi. Það er eitt af því sem hv. þm. Svavar Gestsson hafði rangt eftir mér. Ég hef aldrei haldið því fram. Ég hef alltaf sagt að sjávarútvegurinn eigi við mjög mikla erfiðleika að etja og muni eiga við þessa erfiðleika að etja næstu árin.
Svo að vikið sé að einstökum fyrirspurnum, sem hér hafa komið fram, þá sagði hv. þm. að menn héldu því fram að þeir kjarasamningar sem nú væri verið að gera yrðu tilefni ráðstafana. Það er nú svo að sjávarútvegurinn er sú atvinnugrein sem stendur undir gjaldeyrisöflun þjóðarinnar og tekjur sjávarútvegsins eru undir því komnar hvaða söluverð fæst fyrir afurðir okkar á erlendum mörkuðum. Og þær hækkanir sem verða í þjóðfélaginu lenda í verulegum mæli á lokastigi á sjávarútvegi. Þess vegna hefur það verið mín skoðun mjög lengi að það væri grundvallaratriðið til að rétta sjávarútveginn við að komast út úr þeirri verðbólgu sem við höfum búið við. Ég veit að hv. 3. þm. Reykv. er mér ekki sammála í þessum efnum. Hann telur það mikilvægara að halda við verðtryggingarkerfi sem viðheldur verðbólgunni. Ég man það vel að við ræddum þessi mál mjög ítarlega um áramótin 1980–1981 og komumst að þeirri niðurstöðu þegar við störfuðum saman, ég sem stuðningsmaður þeirrar ríkisstj. sem hann sat í, að rétt væri að rjúfa þennan vítahring. Og við gerðum það í nokkrum mæli veturinn 1982. Við héldum því fram að þessu bæri að halda áfram. Hv. þm. Svavar Gestsson faldi að það ætti ekki að gera. Ég man ekki betur en hann teldi það raunverulega miklu mikilvægara að halda við þessu kerfi og síðan væri nauðsynlegt að fiskverð hækkaði ekki til samræmis við það, þannig að sjávarútvegurinn gæti rétt sinn hlut gagnvart öðrum atvinnugreinum og öðrum þáttum í þjóðfélaginu. En þennan tekjuskiptingarvanda hafa menn alltaf verið að glíma við og hann hefur orðið til þess ásamt mörgu öðru að vegur sjávarútvegsins hefur ekki verið nægilega mikill og ég taldi það algert grundvallaratriði að út úr þessari verðbólguþróun verði komist. Ég taldi það svo mikilvægt að betra væri að sjávarútvegurinn byggi við einhvern hallarekstur um tíma, þrátt fyrir afar erfið skilyrði, ef það mætti verða til þess að við kæmumst út úr verðbólgunni í von um það að við ættum betri tíð í vændum á næstu árum. Mér eru það því afar mikil vonbrigði að sú niðurstaða skuli nú liggja fyrir að menn vilji hækka laun langt umfram getu þessa atvinnuvegar eins og hún er í dag. Það er mikið áhyggjuefni og mun ekki færa þjóðinni kjarabætur. Við vitum það af langri og biturri reynslu að slíkar prósentuhækkanir færa okkur ekki aukna velsæld.
Það tekur hins vegar áreiðanlega alilangan tíma að við komumst út úr þeim miklu erfiðleikum sem við höfum átt við að glíma á undanförnum árum, þ. á m. þeim hugsunarhætti sem hefur verið ríkjandi meðal þjóðarinnar. Sjálfsagt þurfa menn að sætta sig við að það taki alllangan tíma. Ég hef að vísu alltaf verið þeirrar skoðunar að menn yrðu að gera það.
Varðandi vextina vil ég svara fyrirspurn hv. þm. þannig, að þær ráðstafanir sem gerðar voru í sumar voru m.a. gerðar til að tryggja sjávarútveginum fjármagn til þess að hann gæti breytt skuldum sínum í lengri lán. Bankarnir töldu ekkert slíkt fjármagn vera fyrir hendi. Það þyrfti að taka að láni erlendis. Ráðstafanir voru gerðar sem áttu að tryggja það að meira fjármagn kæmi inn í bankana til að þessi nýju lán ykju ekki þenslu í þjóðfélaginu. Þetta er að sjálfsögðu allt saman umdeilanlegt. Þeir háu vextir sem nú eru við lýði eru að mínu mati komnir úr böndum. Sá aðili sem á að hafa eftirlit með því að slíkt gerist ekki, Seðlabanki Íslands, hefur ekki sinnt þessari eftirlitsskyldu í nægilegum mæli. Það er hins vegar ljóst að vextir sjávarútvegsins, t.d. í Fiskveiðasjóði, eru mun lægri en þessir vextir. Afurðalánavextir eru núna bundnir við erlend lán, sem eru mun lægri en oft hefur áður verið. En að sjálfsögðu ber þá sjávarútvegurinn þá gengisáhættu sem því fylgir. Einnig var það skuldbreytingalán sem tekið var í japönskum jenum fremur hagstætt.
Vegna þess hvað við erum háðir erlendu fjármagni verðum við að sætta okkur við að borga þessa vexti. Ríkisstjórn, hvort sem hv. þm. Svavar Gestsson situr í henni eða einhver annar, getur ekki ráðið vöxtunum á alþjóðapeningamarkaðnum. Þó að hann vilji gjarnan stjórna ýmsu með fyrirskipunum, eins og hann orðaði það hér, að best væri að stjórna þjóðfélaginu með margvíslegum fyrirskipunum úr ráðherrastólunum, og sýnir það hvernig hann vill gjarnan beita sínu valdi, þá getur hann ekki gefið alþjóðapeningamarkaðnum fyrirskipanir. Ég trúi því vart að þeir auðjöfrar sem þar stjórna muni hlýða honum í einu og öllu. Það er ekki eins einfalt og hv. þm. vill vera láta að koma þessum málum í höfn með fyrirskipunum.
Hv. þm. sagði hér að þessi ríkisstjórn gerði sér sérstaklega far um að hlaða undir verslunina. Það eru hans orð. Hann hefur verið viðskrh. Ég hef að vísu aldrei heyrt mjög hástemmdar þakkarræður af hálfu kaupmanna fyrir frammistöðu hans þar. En það er mér minnisstætt frá þeim dögum þegar ég var nýlega kominn á þing og fór í ferð hér um borgina, ég held í boði Kaupmannasamtakanna og Verslunarráðs, við fórum allir nm. í fjh.- og viðskn., að þá sagði sá sem þar var í forsvari að hann þakkaði fyrrverandi viðskrh., alveg sérstaklega viðskrh. Alþb. sem var, hvað hann hefði staðið sig vel fyrir þeirra hönd og það væri nú einhver munur ef hann væri í forsvari í dag.
Ég tel að oft hafi verið of mikið hlaðið undir verslunina og ég veit að margur í þeirri stétt hefur of mikið milli handanna í dag. En ekki ætla ég að dæma um það hver staðið hefur sig best í að hlaða þar undir.
Að því er varðar t.d. skipafélögin þá voru í gildi verðlagsákvæði um þau í tíð síðustu ríkisstjórnar. Skipafélögin voru undir verðlagseftirliti. Samt hækkuðu fragtir skipafélaganna, bæði þá og í tíð ríkisstjórnarinnar þar á undan, afar mikið. Þannig að þótt í valdastólum sitji ráðherrar sem geta beitt fyrirskipunum leiðir það ekki alltaf til þess að verðlag og kostnaður lækki mikið í landinu.
Herra forseti. Ég skal ekki hafa um þessa till. fleiri orð. Þó að ég sé ekki sammála till. vil ég á engan hátt draga úr því að þm. beri að leggja alúð við þessi mál. Og ég tel mig hafa, a.m.k. að sumu leyti, sýnt að ég vilji hafa við þingið góða samvinnu í þeim efnum. Mörg mál munu áreiðanlega koma fyrir þingið sem verða þess valdandi að nauðsynlegt er að kafa ofan í margt af því sem hér er nefnt. Það mun þá verða gert í viðkomandi n. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að ekki sé ástæða til að skipa sérstaka þingmannanefnd í þessi mál með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir. (Gripið fram í: Hvernig er með olíulækkunina?) Já, það er sama spurningin og hv. þm. Svavar Gestsson spurði hér um. (Gripið fram í.) Ég skal reyna að svara þessum spurningum báðum.
Í fyrsta lagi varðandi olíuna, þá er það alveg rétt að ákveðið var í sumar að greiða úr ríkissjóði sérstaka greiðslu til að lækka reksturskostnað skipanna. Þessi greiðsla var hlutfall af aflaverðmæti. Deila má um hvort það skuli gert með þessum hætti eða sem beina niðurgreiðslu á olíu. Það var gert til þriggja mánaða og þá gert ráð fyrir því, eins og hér kom fram réttilega hjá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni, að það mundi liggja fyrir endurskoðun á olíuverðlagi. Sú endurskoðun liggur ekki fyrir og fyrir því eru þær ástæður að hún hefur reynst mikið verk eins og oft vill verða í slíkum endurskoðunum. Þar á meðal er um það að ræða að breyta verðjöfnunarkerfinu. Það liggur fyrir að olían sem fer á fiskiskipin ber að miklu leyti aðra verðjöfnun í landinu og aðilum finnst það ekki sanngjarnt að það leggist sérstaklega á fiskiskipaflotann. Þá eru inni í olíuverðlagningunni þættir eins og landsútsvar, hafnar- og uppskipunargjöld, án þess að mikill kostnaður sé þar á móti, sem þykir óeðlilegt að lagt sé á olíuna.
Ég vænti þess að þessar tillögur liggi fyrir hið fyrsta. En þessi dráttur verður til þess að sú ákvörðun að greiða þessa uppbót í þrjá mánuði kemur til endurskoðunar, þ.e. hvort hún skuli framlengd. Ég vil taka það fram að ekkert fjármagn hefur verið tryggt til þess og engin ákvörðun um það tekin. Þetta mál verður óhjákvæmilega að útkljá núna alveg á næstunni. En þetta er greitt með uppbót af afla eftir á, þannig að það er ekki orðið alveg brýnt þessa dagana þó að auðvitað hefði verið æskilegt að það hefði legið fyrir nú þegar. Þessi endurskoðun hefur seinkað og það ber að harma, en fyrir því eru fullgildar ástæður.
Í öðru lagi varðandi Ríkismat sjávarafurða, þá hef ég ekki á takteinum tölur um kostnað þar. Það er verið að vinna að því að fækka þar starfsliði. Maður frá fjárlaga- og hagsýslustofnun hefur unnið að þeim málum nú um langt skeið og m.a. þess vegna lágu fjárlagatillögur þessarar stofnunar ekki fyrir þegar fjárlög voru sett fram. En mér hefur verið sagt að þetta starf sé nú á lokastigi og þá mun það að sjálfsögðu koma fram við afgreiðslu og meðferð fjárlaganna. Ég vænti þess að þær upplýsingar verði þá sem gleggstar. En ég hef því miður ekki tölur á takteinum nú sem stendur.