20.05.1985
Neðri deild: 71. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5390 í B-deild Alþingistíðinda. (4663)
503. mál, getraunir Öryrkjabandalags Íslands
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vil með örfáum orðum lýsa stuðningi mínum við þetta mál sem hér er til umfjöllunar. Ég tel að eins og nú er háttað möguleikum Öryrkjabandalagsins til reksturs sinnar starfsemi og til fjárfestingar á því sviði sé óhjákvæmilegt að leita nýrra leiða til að afla þessum samtökum tekna. Eins og nú er komið fjárhag Framkvæmdasjóðs fatlaðra og Erfðafjársjóðs, sem einkum hefur verið sótt til í þessu efni, þá er það ljóst að starfsemin hlýtur að dragast mjög saman og nánast leggjast af miðað við það sem áður var ef ekki kemur eitthvað nýtt til. Það þarf væntanlega ekki að fjölyrða hér um það gífurlega mikilvæga hlutverk sem þessi samtök inna af höndum og þann mikilvæga rekstur sem þau standa fyrir og allir hljóta að geta verið sammála um að það beri að hlúa að honum.
Ég vil í sambandi við orð hv. síðasta ræðumanns benda á að þó að hér sé mikið um happdrætti og vissulega sýnist sá markaður að verulegu leyti mettaður benda þó ýmsar kannanir — að vísu ekki hérlendar því að litið fer fyrir þeim — sem hægt er að líta til erlendis frá til þess að þegar upp er tekin ný starfsemi af þessum toga afli hún gjarnan að verulegu leyti nýrra markaða jafnvel þó að þétt sé setinn bekkurinn fyrir. Ég held að það beri þá einnig að líta til þessa vegna þess að þegar um svona starfsemi er að ræða þá er það ekki ágóðavonin ein og vinningslíkurnar einar sem laða menn til þátttöku heldur ekki síður hitt að styðja gott málefni. Ég er viss um að það er um fátt að ræða sem er líklegt til að mæta meiri velvilja en einmitt starfsemi Öryrkjabandalagsins.
Ég vil leggja þessu máli lið, herra forseti. Ég tek undir það að það er ýmislegt sem þarf að athuga og bera þetta saman við lög um önnur happdrætti o. s. frv. en við þann megintilgang þessara laga, að afla nýrra tekjustofna til starfsemi Öryrkjabandalagsins, vil ég lýsa stuðningi mínum.