20.05.1985
Neðri deild: 71. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5450 í B-deild Alþingistíðinda. (4694)
501. mál, stjórn efnahagsmála
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess nú, þegar kvöldfundur hefur staðið hér nokkuð á þriðja tíma, að vekja athygli á því að við þessa umræðu um þetta stjfrv., sem hæstv. forsrh. mælti hér fyrir á fyrri fundi í dag, hafa stjórnarliðar verið langfyrirferðarmestir. Hér hefur staðið yfir málfundur mjög í menntaskólastíl það sem ég hef á hlýtt og hér hefur farið fram umræða um víðan völl á milli hv. stjórnarliða um það frv. sem hér er til umræðu en þó öðru fremur um óskyld málefni. Þátttakendur í þessum umræðum hafa verið fyrirferðarmiklir stjórnarliðar úr Vestfjarðakjördæmi og eru sennilega með ræðum sínum að aðstoða hæstv. forsrh., sem er þm. sama kjördæmis, við það að þoka fram málum ríkisstj. sem sögð eru vera ástæða þess að ekki sér enn fyrir lyktir á fundum Alþingis þess sem nú situr þótt kominn sé sá tími árs sem þingi að jafnaði er lokið eða er að ljúka.
Þar eð hæstv. forsrh. er hér í þingsal finnst mér ástæða til þess að inna hann eftir því við þetta tækifæri hvað hann hafi ætlað sér og hæstv. ríkisstj. um þinghaldið, hvernig hann sjái fyrir sér lyktir á störfum Alþingis og framgang þeirra fjölmörgu mála sem ríkisstj. hefur sett á lista, milli 70 og 80 sem hún óskar að fram nái að ganga. Nú er það ekki svo að ég sem stjórnarandstæðingur telji það eftir mér að sitja hér á þingi daga og fram á nætur, en óneitanlega væri æskilegt að við fengjum einhverja vitneskju um það hvenær hæstv. forsrh. og ríkisstj. hans hyggst ljúka fundum Alþingis og einnig hvað hæstv. forsrh. og ríkisstj. ættist fyrir í sambandi við mál sem ýmist eru ekki fram komin en á óskalista ríkisstj. eða hafa verið að koma hér inn í þingið á allra síðustu dögum. Við fengum hér í dag á borð okkar frv., sem að vísu er lagt fram í hv. Ed., til laga um sjóði atvinnuveganna, grundvallarbreytingu á sjóðakerfi atvinnustarfsemi í landinu og ég hygg að þetta mál hafi verið eitt af nokkrum óframkomnum stjfrv. sem ríkisstj. óskar eftir að fá afgreidd á yfirstandandi þingi. Við skulum reikna með að orðræður hv. stjórnarsinna verði í hverju máli með svipuðum hætti og fram hefur farið í umræðu um þetta mál sem hér er til umræðu og þá er mér nokkuð til efs að sumarið endist til þinghaldsins. Ég efast um að það verði ástæða fyrir menn að skreppa heim til sín áður en næsta þing verður sett að hausti samkvæmt hefð 10. október ef fram fer sem horfir, ef hv. skrifari, 5. þm. Vestf., þarf að leggja jafnmargt og skilmerkilegt til mála eins og hann hefur gert í ræðum sínum hér við þessa umræðu og hv. 1. þm. Vestf., sem er hér næstur á mælendaskrá, þarf að eiga orðastað við hann um mjög svo fróðleg efni.
Hér hafa þegar fjórir stjórnarliðar flutt sex ítarlegar ræður og einn úr þessum hópi hefur kvatt sér hljóðs öðru sinni, hv. 1. þm. Vestf. Ég vil inna hæstv. forsrh. eftir því hvernig hann sjái fyrir sér þinghaldið, framgang þeirra mála sem ýmist eru stödd miðja vegu í meðferð þingsins eins og frv. til lánsfjárlaga, sem enn er óafgreitt 20. maí, frv. til laga um framleiðslu, verðlagningu og sölu á landbúnaðarafurðum, sem var að fara til nefndar í fyrri deild nú mjög fyrir skömmu, og svo svona smálagabálkur eins og frv. um sjóði atvinnuveganna sem var verið að leggja fram í dag og sjálfsagt eru ýmis ókomin. Ég efast ekki um að hæstv. forsrh. metur mikils þau hollu ráð sem liðsmenn hans hafa verið að veita honum hér í ræðum sínum í dag og þann stuðning, en ég spyr sem sagt: Hver er hugur hæstv. ráðh. um framhald þingstarfa og framgang mála ríkisstj.? Það væri æskilegt að hæstv. forsrh. vildi tjá sig um það hér á þessu stigi umræðunnar.