21.05.1985
Sameinað þing: 84. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5462 í B-deild Alþingistíðinda. (4711)

462. mál, lán Fiskveiðasjóðs Íslands

Fyrirspyrjandi (Guðmundur Einarsson):

Herra forseti. Það er ýmislegt ljóst af upplýsingum ráðh. Það er í fyrsta lagi ljóst að lög um Fiskveiðasjóð hafa verið brotin. Við getum haft mismunandi skoðanir á því af hverju það gerist. Það eru augljósar ástæður fyrir því að fjármálastaða skipanna versnar. En það er augljóst að lög hafa verið brotin. Skv. lögum sjóðsins hefur það verið hlutverk stjórnar að sjá um að til séu nægar tryggingar hverju sinni. Ein af ástæðunum fyrir því að þessi mál fengu að dankast svona lengi, að þessar skuldir fengu að safnast upp svona lengi og að menn hugðu ekki að þessu máli fyrr, var kannske sú að þeir sem áttu að hafa eftirlit með þessu sinntu því ekki.

Nú vil ég enn taka fram að ég er ekki í neinni nornabrennu. Ég er einungis að velta fyrir mér tilteknu vandamáli sem hefur komið upp í sambandi við lánasjóði og tryggingar fyrir lánum. Mér sýnist augljóst að ef lög eiga að standa og ef lög eru einhvers virði og ef eftir þeim á að fara hafa þau þarna verið brotin og það kemur fram í lögunum hverjir eru ábyrgir fyrir því að framfylgja þeim. Ráðh. lauk ræðu sinni á þann hátt að við skyldum læra af mistökum. Það er alveg rétt. Ég held að þarna sé komin enn ein ástæðan fyrir okkur til að læra það af mistökum sem eru gerð að menn eiga í fyrsta lagi að vinna skv. lögum og menn hljóta í öðru lagi að standa ábyrgir gerða sinna.

Nú vil ég aftur víkja hugsun minni að því sem við ræddum hérna áðan þar sem ég spurði hæstv. viðskrh. um það almennt hvort hann teldi að hliðstæð vandamál gætu verið víðar í sjóðakerfi eða í bankakerfi. Mér sýnist full ástæða til að ætla að svo sé. Mér sýnist full ástæða fyrir stjórnvöld að láta fara fram gagngera rannsókn á því hvernig gætt sé trygginga fyrir opinberum lánveitingum.