21.05.1985
Sameinað þing: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5497 í B-deild Alþingistíðinda. (4739)
365. mál, vegáætlun 1985--1988
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég þakka kærlega fyrir að fá að koma hér upp og að ég skuli vera tekinn trúanlegur um að ég hafi beðið um orðið, en erindi mitt er að lýsa ánægju með þessa vegáætlun og ég vil vísa á bug nöldri, sem hér hefur heyrst frá einstaka stjórnarandstæðingi, um að þessi áætlun væri smá í sniðum. Mér finnst að þetta sé stórhuga vegáætlun og e. t. v. má kannske velta því fyrir sér hvort hún er ekki of stórhuga því að það þarf náttúrlega að gera ýmislegt fleira en að leggja vegi og það þýðir ekki að horfa eingöngu á prósentutölur af þjóðartekjum sem til vegamála er varið.
Við skulum horfa á hvernig vegakerfið batnar. Ég fullyrði það að á þessu ári verða meiri framkvæmdir en nokkurn tíma hafa verið áður. Það er vegna þess að útboðsstefnan hefur sannað gildi sitt.
Ég held að það sé mjög mikilvægt að halda sig við langtímaáætlun að því leyti að verkin gangi fyrir sig innan þess tímaramma sem þar er settur. Ef það tekst fyrir minna fé en gert var ráð fyrir er það bara gott. Við þurfum að fá sem flesta km lagða fyrir tiltækt fé.
Ég vil vekja athygli á þætti vegagerðar sem ekki hefur verið mikið ræddur hér í dag og vill oft gleymast. Með nýjum og bættum vegum og með bundnu slitlagi og auknum umferðarhraða er ríðandi mönnum gert nær ómögulegt að ferðast um landið. T. d. er orðið mjög torvelt að ferðast á hesti um Langadal í Austur-Húnavatnssýslu og er það illa farið. Umferð ríðandi manna þarf líka að hafa í huga við hönnun vega og girðingalagnir því að auðvitað eiga hestamenn sinn rétt til umferðar í landinu. Það er óhjákvæmilegt að gera umferð á hestum mögulega þó ekki væri nema af sögulegum rökum af því að hesturinn var einu sinni okkar eina samgöngutæki og fjöldi manna sækir í það heilsubót og yndi að ferðast á hestum. Það er sjálfsagt að koma til móts við það fólk. Sums staðar hagar þannig til að það kostar ekki nema ofurlitla fyrirhyggju að gera ríðandi umferð mögulega og þægilega. Sums staðar þar sem nýr vegur er byggður og vegurinn er fluttur gæti gamli vegurinn e. t. v. hentað vel fyrir umferð hestamanna ef honum væri ekki samstundis lokað með girðingu. Auðvitað kostar þetta eitthvað, en ég held að það séu smámunir í þessu sambandi. Ég er ekki að fara fram á að það verði varið stórfé til vegagerðar handa hestamönnum, en ég er að óska eftir því að þeim sé ekki gleymt.