21.05.1985
Sameinað þing: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5503 í B-deild Alþingistíðinda. (4746)
449. mál, fiskiræktarmál
Flm. (Kjartan Jóhannsson):
Herra forseti. Sú till. til þál. sem ég mæli hér fyrir fjallar um það að skora á ríkisstj. að láta gera breytingu á reglugerð um Stjórnarráð Íslands og sú breyting feli það í sér að fiskeldi, klak og skyld starfsemi í fiskiræktarstöðvum verði á verksviði sjútvrn. Í gildandi reglugerð um Stjórnarráð Íslands er ekkert tiltekið um hvar þessi starfsemi eigi heima, undir hvaða stjórnarskrifstofu hún heyri. Í reglugerðinni er tiltekið að „veiði í ám og vötnum svo og önnur veiðimál er eigi ber undir annað rn.“ séu á verksviði landbrn.
Það er ekki ætlunin með þessari till. að breyta því að veiði í ám og vötnum verði áfram á verksviði landbrn. En hér er hins vegar á ferðinni ný og vaxandi atvinnugrein sem er fiskeldi í sérstökum fiskiræktarstöðvum. Því verður ekki haldið fram að sú atvinnugrein falli undir þá skilgreiningu sem nú er að því er varðar þessa starfsemi og hún sé staðsett í landbrn. Þess vegna skortir í reglugerðina um Stjórnarráð Íslands skilgreiningu á því hvar þessi starfsemi eigi heima í stjórnkerfinu.
Með þeirri þáltill. sem ég hér flyt er gert ráð fyrir að bæta úr því þannig að það sé afdráttarlaust hvar þessi starfsemi eigi heima og enn fremur að hún skuli heyra undir sjútvrn. Ég tel að nauðsynlegt sé að kveðið sé á um hvar þessi atvinnugrein eigi heima. Í annan stað er það skoðun mín og annarra flm. að eðlilegast sé að sjútvrn. fari með þessi mál enda er það vafalaust að fiskeldi í fiskeldisstöðvum á samleið með sjávarútvegi í mörgum atriðum, þ. á m. í markaðsmálum.
Ég held að flestum sé ljóst að það hafi verið uppi einhver reipdráttur í stjórnarskrifstofunum um það hvar þessi mál ættu að eiga heima og sá reipdráttur hafi verið milli landbrn. og sjútvn. Nauðsynlegt er að hér verði úr skorið þannig að það verði afdráttarlaust. Það hafa líka heyrst tillögur um það að skipta fiskeldinu milli landbrn. og sjútvrn. Það hafa heyrst hugmyndir um að sú skipting gæti gerst með þeim hætti að fiskeldi í sjó heyrði undir sjútvrn. en fiskeldi á landi eða í fersku vatni — það hefur ekki verið tiltekið — heyrði þá undir landbrn. Ég held að slík skipting væri ákaflega vafasöm af þeirri einföldu ástæðu að í sömu fiskeldisstöð og allavega innan sömu atvinnugreinar mundi verða um að ræða fiskeldi annars vegar í sjó og hins vegar í fersku vatni eða á landi eftir því hvora skilgreininguna menn velja. Þá mundi sama stöð heyra undir tvö rn. eftir því hvort um væri að ræða uppeldi á klaki eða uppeldi á fiski til slátrunar. Eitt herbergi í stöðinni heyrði undir landbrn., annað herbergið heyrði þá undir sjútvrn. Það tel ég afleita skipan. Þess vegna er till. mín og þeirra flm. sem flytja þessa till. með mér sú að skilgreiningin verði sú að þegar um fiskeldisstöð er að ræða skuli hún heyra undir sjútvrn. en hins vegar sé því í engu breytt að veiði í ám og vötnum, sem við höfum tíðkað hér árum og öldum saman, heyri áfram undir landbrn.
Að þessari till. standa ásamt mér hv. þm. Eiður Guðnason, Kristín Halldórsdóttir, Ellert B. Schram og Geir Gunnarsson.
Í pósti mínum í dag var bréf frá Landssambandi fiskeldis- og hafbeitarstöðva. Þar er einmitt lýst áhyggjum út af þessu máli og ég ætla að leyfa mér, herra forseti, að lesa og vitna til þess hluta bréfsins sem fjallar um þetta mál. Í fyrsta lagi er um að ræða samantekt varðandi fund með forsrh. þar sem skýrt er frá helstu atriðum í viðhorfum landssambandsins. Þetta er dags. 6. maí 1985. Þar segir að því er þetta mál varðar sérstaklega, með leyfi herra forseta:
„Fiskeldi á fleira sameiginlegt með sjávarútvegi og fiskvinnslu en landbúnaði. Í Noregi fellur fiskeldi undir sjútvrn. og er það mál manna þar að sú skipan hafi reynst norsku fiskeldi heilladrjúg. Sú frumvarpssmíð, sem landbrn. hér hefur staðið fyrir nú í tvígang, 1984 og aftur í febrúar 1985, ber það augljóslega með sér að þar sé ekki að finna þann jarðveg sem þessi atvinnugrein þarf á að halda.“
Þetta er meginefnið sem fram kemur í þessu bréfi dags. 6. maí 1985 varðandi þetta atriði. Það verður ekki annað séð en það fari saman við þau sjónarmið sem liggja að baki þessari till.
Annað bréf frá sömu aðilum, dags. 9. maí 1985, þremur dögum síðar, var einnig í pósti mínum, og ég vil leyfa mér, herra forseti, að vitna aðeins til þess. Við lestur þess bréfs kemur greinilega í ljós að þeir menn, sem í greininni starfa, hafa áhyggjur af því að hvorki reki né gangi með skipan þessara mála, skipan laxeldis, hafbeitarstöðva og fiskeldis, í stjórnkerfinu. Þar segir, með leyfi forseta:
„Hinn 6. maí s. l. átti ég fund með forsrh. og gerði honum grein fyrir viðhorfum Landssambands fiskeldisog hafbeitarstöðva. Þau viðhorf koma fram á meðfylgjandi afriti sem ég hef þegar vitnað til. Forsrh. greindi frá skipan nefndar sem m. a. væri ætlað að gera tillögur að stjórnskipan fiskeldismála.
Það liggur fyrir að landbrn. og sjútvrn. gera tilkall til fiskeldis ef svo má að orði komast. Ef fram fer sem horfir er líklegast að endirinn verði sá að til skiptingar muni koma milli ráðuneytanna sem er slæmur kostur. Landssambandið leggur áherslu á að fiskeldi sem atvinnugrein verði hvorki innlimað í landbúnaðarkerfið né sjávarútvegskerfið vegna þess að það á einfaldlega á hvorugum staðnum heima. Þetta er ný atvinnugrein með nýjar þarfir sem þarf gott svigrúm til að þroskast. Það má ekki glata því tækifæri sem nú býðst til að koma á fót þeirri atvinnustarfsemi sem er laus við ósveigjanlegt umhverfi, svo sem miðstýringu ríkisvaldsins og úrelt sjóðakerfi með óheilbrigðum gjaldtökum og millifærslum. Tillaga landssambandsins er þessi: Að fiskeldi í heild sinni verði málefni forsrn. fyrst um sinn.“
Hér er sem sagt komið í ljós að eftir fund sinn með forsrh. sýnist þeim stefna í óefni vegna þess að ekki sé mörkuð stefna um það í hvaða fagráðuneyti þessi grein eigi best heima, en til þess þarf reglugerðarbreytingu. Þeir gera hér eins konar varatill., þrautatill., um það að fiskeldi í heild verði málefni forsrn. fyrst um sinn. Ég get í sjálfu sér vel fallist á það og önnur till., sem ég er reiðubúinn til að mæla fyrir hér á eftir, gefur vísbendingu um það að skoðun mín sé sú að meðan þessu hafi ekki verið skipað með reglugerð sé eðlilegt að forsrn. fari með þessi mál. En auðvitað er eðlilegast, réttast og best að málunum sé endanlega skipað sem allra fyrst og þá tel ég að það eigi að gera í samræmi við þau sjónarmið sem ég hef hér rakið.
Að lokum einungis þetta: Alþingi getur í rauninni ekki sett lög um þetta með góðu móti, þ. e. lög um það undir hvaða rn. þetta skuli falla, vegna þess að því er skipað með reglugerðum hvaða mál falla undir hvert rn. Þess vegna er hinn eðlilegi máti til þess að þingið komi fram vilja sínum og skoðun sinni á þessu máli að álykta um þetta með þáltill. sem er áskorun á ríkisstj. um það hvernig málunum skuli skipað og jafnframt þá viljayfirlýsing Alþingis.
Herra forseti. Að lokinni þessari umr. legg ég til að þessu máli verði vísað til atvmn.