21.05.1985
Sameinað þing: 85. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5538 í B-deild Alþingistíðinda. (4776)
484. mál, friðarfræðsla
Árni Johnsen:
Herra forseti. Það er einkennilegt þegar hv. síðasti ræðumaður kemur upp og ber mönnum á brýn, sem eru að fjalla um mál sem rætt er um að ekki sé hlustað, að menntunin sé vond, að skólinn sé vondur-en kannske væri ástæða til þess að impra á því að maðurinn væri vondur. Það er einkennilegt að fletta þannig upp í hlutum og reyna að finna einhverja afsökun fyrir því þegar menn segja meiningu sína hispuslaust. Ég ætla ekki að endurtaka mikið af því sem ég hef sagt og sagði um þetta mál á síðasta þingi en ég tel fulla ástæðu til þess að vernda börn fyrir pólitísku friðarkjaftæði, eins og ég kalla það hikstalaust. Sú friðarfræðsla, sem við þörfnumst, rúmast innan hefðbundinnar kristindómsfræðslu, almennra samskipta sem tíðkast í okkar landi, og það er ástæðulaust að fara að búa til eitthvert nýtt kerfi. Þess vegna tel ég þessa till. út í hött.