22.05.1985
Efri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5559 í B-deild Alþingistíðinda. (4793)

428. mál, gjöld af tóbaksvörum

Helgi Seljan:

Virðulegi forseti. Það er ekki ástæða til að hafa mörg orð hér um, en það má hæstv. fjmrh. vita að ekki tel ég hann svo alvondan, og ég hélt að hann vissi það fyrir, að ef mér yrði það á að hæla honum hér í ræðustól væri það al ert fráhvarf frá lífsstefnu minni. Það er þvert á móti. Ég hæli manninum, hæstv. fjmrh., þegar mér sýnist að hann eigi það skilið. Það er mér hins vegar alveg gersamlega ómögulegt eftir þá ræðu sem hann flutti hér áðan því slíks eðlis voru þeir mörgu hringir sem hann fór í sinni 20 mínútna tölu að það væri að æra óstöðugan að fara ofan í allt það rugl sem þar kom fram.

Hann talaði t. d. um að þetta frv. væri misskilið af þeim sem væru því andvígir hér og það væri misskilið af öllum þeim sem hafa um þetta fjallað, hvort sem það eru starfsmenn heilbr.- og trmrn. og landlæknisembættis með héraðslæknum alls staðar frá, læknaráð Landspítalans, Heilbrigðisfulltrúafélag Íslands eða tóbaksvarnanefnd. Enginn hefur lesið frv. eins og á að lesa það. Hvernig á þá að lesa það? Jú, hæstv. fjmrh. fræddi okkur um það. Frv. er flutt, að hans eigin sögn, til að klekkja á umboðsaðilum. Frv. er flutt til þess að klekkja á umboðsaðilum og láta þá fara að vinna fyrir kaupinu sínu. Það er ástæðan fyrir þessum frumvarpsflutningi, að sögn hæstv. ráðh. (Fjmrh: Ekki eina ástæðan.) Ein af ástæðunum — aðalástæðan í raun og veru því að hann margendurtók: Það er sölufyrirkomulagið sem hér er verið um að ræða. Heilbrigðismál og annað þvíumlíkt koma þessu máli ekkert við. — En það vill svo til að þetta er nátengt engu að síður og það er það sem þessir menn sjá, hinir fjölmörgu menn sem hafa lesið þetta frv. og skilið hvaða afleiðingar það getur haft og eru að vara við því.

Ég held að menn hafi ekkert misskilið í þessu, hæstv. fjmrh. En vel kann að vera, og þar mælir hæstv. fjmrh. af reynslu, að umboðsmannakerfið sem slíkt sé hreinn fáránleiki. Þá segi ég við hann og svara með hans eigin orðum: Þá skulum við afnema það. (Fjmrh.: Veistu hvað þú ert að tala um?) Já, ég veit að hæstv. fjmrh. fer strax að segja: Aðilarnir úti í heimi vilja ekki sleppa umboðsaðilum sínum hér heima. Ég þykist vita það. (Fjmrh.: Skiptir engu máli.) Jú, það er eitt af þeim meginmálum sem hafa verið tíunduð í þessu sambandi. Ég ætla ekki að fara út í frekari umræður um það. En það má heita undarlegt ef þetta er gert til að klekkja á umboðsaðilum varðandi tóbakssölu og þeir hafa ekki látið til sín heyra, mótmælt, heldur eru það allt aðrir aðilar sem mótmæla hér og eru hræddir við afleiðingar af þessu máli. Það er undarlegt.

Frv. er ekki um bann á tóbaksneyslu, segir hæstv. ráðh. Það hefur enginn talað um það hér nema hann. Það sem menn eru að vara við í athugasemdunum sem hér hafa verið gerðar og hafa verið tíundaðar hér, eru afleiðingar þeirrar breytingar á sölufyrirkomulagi — eins og hann sagði: á sölufyrirkomulagi — sem hér er verið að gera og þeim afleiðingum sem koma örugglega í kjölfarið. Ég held að það sem hv. 3. þm. Suðurl. sagði hér um þetta mál hafi verið ein allsherjar aðvörun gagnvart þessu máli í heild sinni og það færi vel á því einmitt í tengslum við þetta að menn ræði um heilbrigðisþáttinn. Vitanlega þýðir ekki að deila hér, eins og hæstv. fjmrh. gerði, á landlæknisembættið og heilbrigðisyfirvöld af því að þau geri ekkert í þessu. Þessir aðilar hafa vissulega gert margt í þessum efnum og hefur ekki staðið á þeim að framfylgja þeim fyrirmælum sem löggjafinn hefur sett þeim, síður en svo. Og vitanlega er það meginmálið að landlæknir bannar ekki þessa hluti. Það er Alþingi sjálft sem verður þar að taka afstöðu.

Hv. 4. þm. Norðurl. v. sagði að þetta væri sitt hjartans mál, enda flokksmál. Þá fer flest að verða undarlegt í þessu máli ef flokksmálin eru honum slík hjartans mál eins og hann sagði með hæfilegri túlkun, ef það nægir til stuðnings. (EKJ: Það eru önnur mál mér hjartfólgnari en þetta, það er rétt.) Já, það eru önnur mál þér hjartfólgnari, það er víst óhætt að segja.

Hv. 3. þm. Suðurl. sagði að þyrfti að sníða af þessu frv. vankanta til þess að allt færi hér ekki úr böndum. Hann litur þá reyndar þannig á að þetta frv. þurfi vissulega lagfæringar með, jafnvel þó að það sé orðið að flokksmáli.

Það fer líka vel á því að menn tali um tekjur og gjöld ríkisins í tengslum við þetta mál. Ég held að menn eigi ekki að vera að gantast, eins og mér fannst hæstv. fjmrh. vera að gera, með afleiðingar þessa varðandi dauðsföll. Mér þykir leitt að hann skyldi fara að svara hv. 3. þm. Suðurl. á svo alvörulausan hátt. Hann sagði að 300 menn færu árlega af afleiðingum þess, eins og hann sagði, að einkasala hefur verið á þessu. Þetta er billegt, segir hæstv. ráðh. og er nýbúinn að flytja einhverja billegustu ræðu sem hann hefur flutt hér á Alþingi, en ætlar á eftir að koma mér í allan skilning um umboðsmannakerfið og nauðsyn þess. Og ég hlakka til þeirrar kennslustundar því að ég veit að hann er allra manna fróðastur um þau mál, enda nátengdur því eins og hann margtók fram áðan.

Ég held að ekki sé óeðlilegt, hæstv. fjmrh., að menn ræði einmitt heilbrigðisþáttinn nátengt þessu máli. Og ég vil mótmæla því fyrir hönd allra þeirra fjölmörgu marktæku aðila sem hér hafa gert aths. að þeir séu að fara með tómt rugl, að álit þeirra byggist á eintómum misskilningi, að það sé ekkert að marka hvað þeir segja um þetta, þeir séu alls ekki að tala um það sem málið snýst um og annað þvíumlíkt. Ég mótmæli fyrir þeirra hönd þeim ásökunum sem hæstv. fjmrh. lét falla í þeirra garð hér áðan. Ég mótmæli líka þeim ádeilum hans á heilbrigðisyfirvöld og landlækni að það sé þeirra sök að þannig hefur til tekist um illar afleiðingar af tóbaksneyslu. Þar er fyrst og fremst við löggjafann að sakast, enda kom hann reyndar inn á það annars staðar í sinni ræðu að Alþingi ætti þá að taka þar af skarið. Og ég mótmæli einnig þeim ádeilum og óbeinu árásum á þessa aðila að það sé vegna þess að þeir standi ekki í stykkinu sem ástandið er jafnalvarlegt í þessum málum og raun ber vitni.