22.05.1985
Efri deild: 79. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5560 í B-deild Alþingistíðinda. (4794)
428. mál, gjöld af tóbaksvörum
Haraldur Ólafsson:
Virðulegi forseti. Það fór held ég ekki milli mála í þeim fáu orðum sem ég sagði hér áðan að ég væri andvígur þessu frv. vegna þess sölufyrirkomulags sem þar væri stungið upp á, af því að ég tel það sölufyrirkomulag ekki til þess fallið að draga úr tóbaksnotkun, heldur þvert á móti. Ég taldi einnig að verðstríð, þar sem um væri að ræða lækkað verð á vöru, gæti aukið neyslu. Þetta tel ég skaðlegt. Ég tel að með lögum um tóbaksvarnir hafi verið stigið mjög merkilegt skref til þess að vernda a. m. k. þá sem ekki reykja fyrir reykingum. Það er sannað mál að þær eru skaðlegar, ekki aðeins fyrir þá sem reykja, heldur einnig fyrir þá sem eru innan um reykingafólk. Auknar reykingar fjölga væntanlega sjúkdómstilfellum og út frá því sjónarmiði einu eru þær skaðlegar.
En það er líka fleira í þessu. Ég held að einmitt með því að afnema einkasölu ríkisins sé verið að sleppa þessu máli algerlega lausu. Og því hefur ekki verið svarað. Hæstv. fjmrh. hefur hrist það af sér, þeirri spurningu hefur ekki verið svarað hvort ekki sé líklegt að verðstríði fylgi auglýsingastríð. (Fjmrh.: Auglýsingar eru bannaðar.) Þær eru bannaðar, já. sala bjórs er líka bönnuð á Íslandi en við vitum hvernig því máli var fyrir komið, hvernig það var brotið niður innan frá hægt og rólega og vitandi vits. Núna stöndum við svo gagnvart því að setja löggjöf sem búið er að stuðla að af ákveðnum aðilum árum saman með lögbrotum og með því að víkka reglur stanslaust. Og það er nákvæmlega það sama sem ég óttast í sambandi við breytt sölufyrirkomulag á tóbaki.
Tvískinnungurinn, sem ég talaði um og leyfði mér að kalla ósvífni, hann er ekki aðeins í þessu, heldur í því að ætla sér að koma með einhvers konar syndakvittun með því að auka fjárveitingar til áfengisvarna, til tóbaksvarna, til alls konar varna, sem greitt er af hagnaði af sölu slíkra eiturefna. Það kalla ég tvískinnung. Og ég held að mér sé alveg óhætt að kalla það ósvífni, ekki síst ef það kemur frá hæstv. ríkisstj. Og í sambandi við ummæli hæstv. fjmrh. um landlækni, að hann eigi að stuðla að því að sett verði bann við tóbaksbrúkun, af hverju gerir hæstv. fjmrh. það ekki? Það segir hér í aths. við lagafrv. frá fjmrh.:
„Þá er og bent á það að óviðeigandi sé, í ljósi þess hve skaðsemi tóbaksneyslu er talin ótvíræð, að ríkið skuli stunda verslun með tóbak.“
Þarna tekur hæstv. fjmrh. undir röksemdir heilbrigðisyfirvalda og gerir að sínum en snýr þessu algjörlega við og gerir það að rökum fyrir því að afnema einkasölu ríkisins. (Gripið fram í.) Hæstv. fjmrh. hefur skrifað hér að það sé óviðeigandi, í ljósi þess hve skaðsemi tóbaksneyslu er talin ótvíræð, að ríkið skuli stunda verslun með tóbak. (Gripið fram í.) Það er þá a. m. k. tekið mark á því. Þessi rök eru tekin inn í grg.
En ég ætla ekki að lengja þetta mál. Ég held að ég hafi gert grein fyrir því meginsjónarmiði mínu að ríki og Alþingi beri skylda til einmitt að hafa vit fyrir fólki, eins og það er kallað í hæðnistón af ýmsum, bæði innan þessarar hv. löggjafarsamkomu og utan hennar. Ég held nefnilega að eitt af meginatriðum löggjafar sé að skipa málum á hinn besta hátt fyrir fólkið í landinu. Og meðal þess er einmitt „að hafa vit fyrir fólki“.