01.11.1984
Sameinað þing: 13. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 730 í B-deild Alþingistíðinda. (480)
22. mál, Fiskifélag Íslands
Guðmundur Einarsson:
Herra forseti. Í tilefni af síðustu orðum forseta vil ég taka fram að orð mín voru alls ekki mælt í ávirðingarskyni við fundarstörf forseta. Ég ber til hans fyllsta traust og hef alltaf gert, en hins vegar lýsti ég áhyggjum mínum um hugarfar þm. og það pólitíska ástand sem lýsir sér í því að hér skuli vera rætt um verulega mikilvæg grundvallaratriði í íslenskum stjórnmálum án þess að þeir sjái ástæðu til að vera viðstaddir.