22.05.1985
Neðri deild: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5579 í B-deild Alþingistíðinda. (4826)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Sjútvrh. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Aðeins nokkur orð. Ég vil nú minna á það að frv. þetta er samið vegna þess að Alþingi samþykkti hér í ákvæði til bráðabirgða í lögum um Olíusjóð fiskiskipa að hefja endurskoðun þessa máls. Alþingi hefur því haft allt frumkvæði í þessu máli. Það var ekki þáv. sjútvrh. sem hafði það frumkvæði heldur Alþingi sjálft. Ég taldi því eðlilegast að sjútvn. þingsins flyttu þetta mál. Það gat því miður ekki orðið og því var það flutt sem ríkisstjórnarfrv.

Ég er fylgjandi því að fækka í Verðlagsráði og get tekið undir það sem hér hefur verið um það sagt. Ég bendi á að í 1. gr. var ákvæði þess efnis að heimilt væri að skipta um fulltrúa í Verðlagsráði eftir því sem rétt þykir til þess að sjónarmið þeirra fiskseljenda og fiskkaupenda sem hlut eiga að máli við hverja verðákvörðun komi sem best fram. Hins vegar voru rækjuveiðar og skelveiðar um tíma mjög sérhæfðar og ákveðnar verkunarstöðvar, sérstaklega á Vesturlandi og við Ísafjarðardjúp, eingöngu í þeirri vinnslu og engri annarri og jafnvel ákveðin skip eingöngu í þeim veiðum. Nú hefur það breyst og m. a. þess vegna þótti rétt að gera hér breytingu á. Hins vegar er ég sammála hv. 4. þm. Suðurl. um að sú breyting skiptir ekki sköpum í þessu sambandi, þótt ég telji betri þá skipan mála sem kom frá nefndinni á sínum tíma. En ef þetta verður fellt þá kemst náttúrlega ekkert af þessum breytingum til framkvæmda, sem eru sumar hverjar til mikilla bóta.

Ég vildi aðeins minna á það, af því að hér hefur verið sagt að Verðlagsráði sé heimilt að gefa verðlagningu á tilteknum fisktegundum frjálsa, að Verðlagsráð ákveður aðeins lágmarksverð. Það er heimilt að semja um hærra verð. Fiskkaupanda á Vestfjörðum er t. d. heimilt að greiða hærra verð fyrir fiskinn, það er enginn sem bannar það. Það hefur hins vegar gefist vel að safna upplýsingum á einum vettvangi um allar aðstæður á mörkuðum og semja um ákveðið lágmarksverð. Vandræðin byrja hins vegar einkum þegar menn komast ekki að neinu samkomulagi um lágmarksverð vegna mikilla markaðserfiðleika. Ég minni t. d. á þá erfiðleika sem hafa skapast varðandi síldveiðar og markaðsmál frystrar síldar. Þar hefur ekki tekist að finna ákveðið verð og þá hefur þótt skorta heimildir til þess að Verðlagsráð kæmi sér þá saman um það að verðið skyldi verða frjálst. Þessi vandamál eru einkum í því sambandi. En þegar markaðsaðstæður eru mjög góðar, þá koma þessi vandamál ekki í sama mæli upp.