22.05.1985
Neðri deild: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5580 í B-deild Alþingistíðinda. (4829)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég skal ekki tefja þessa umr. Ég fagna því að sú brtt., sem nú er fram komin, skuli hafa séð dagsins ljós, því að bæði við 1. og 2. umr. málsins í þessari hv. deild var þessu sjónarmiði komið á framfæri. Hv. 5. þm. Vestf. hreyfði þessu strax við 1. umr. málsins og beindi því til hv. nefndar að skoða það gaumgæfilega hvort ekki væri ástæða til að gera breytingu á frv. í þá átt sem hér er nú lagt til og hefur verið samþykkt í Ed. Ég gerði sams konar athugasemd við 2. umr. þegar ekki var á þetta fallist af hálfu nefndarinnar, en frv. fór hér í gegnum hv. deild óbreytt, en var síðan breytt í Ed.

Ég ætla ekki að vekja hér upp nemar umræður um þetta. Menn getur greint á um það hvort þetta leiðir á verri veginn í þeirri meginstefnu sem menn vildu koma fram í gegnum frv. Ég er þeirrar skoðunar að svo sé ekki. Ég bendi á að hér er um að ræða í sambandi við rækju- og hörpudisksveiðar mikið aflamagn og fjölda fólks sem þarna á hagsmuna að gæta, og án þess að ég vilji lýsa neinu vantrausti á fulltrúa Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, LÍÚ og Sambandsins eða einhverra slíkra aðila í Verðlagsráði þá tel ég betur borgið sjónarmiðum og hagsmunum bæði sjómanna og þeirra sem reka þessi fyrirtæki með því að þeir gæti sjálfir hagsmunanna, meðan við búum við þetta fyrirkomulag sem við komum til með að búa við áfram. Ég fagna því þessari breytingu.

Ég tek undir það með hv. 4. þm. Suðurl. sem oft talar gáfulega, ég tala nú ekki um í sambandi við sjávarútvegsmálin, eins og hv. þm. ætti að vera kunnugt um, að þetta er ekki mál til að gantast með, hvorki karfamálið né neitt af því sem um er að ræða í þessu frv. Þetta er miklu stærra og alvarlegra mál en svo að það eigi við að gantast með það. (HBl: Hver var að gantast með málið?) Því ætti hv. skrifari vor að hafa fylgst með, hafi hann verið í þingdeildinni eins og hans er von og vísa. En ég ítreka: meðan við búum við þetta hljótum við að vilja að þeir aðilar sem þarna hafa mikilla hagsmuna að gæta, eins og fulltrúar þessa veiðiskapar, geti haft áhrif á verðlagningu þessarar vöru eins og gert er ráð fyrir í þeirri brtt. sem nú liggur fyrir.