22.05.1985
Neðri deild: 73. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5581 í B-deild Alþingistíðinda. (4830)

209. mál, Verðlagsráð sjávarútvegsins

Ólafur Þ. Þórðarson:

Herra forseti. Það hefur orðið einhver smámisskilningur hjá hv. 4. þm. Suðurl. Mér er það ekkert gamanmál hvernig staðið er að millifærslum í sjávarútvegi og fjármunir færðir í gegnum þá sjóði til vissra aðila með verðlagningu á karfa. Mér er það ekkert gamanmál. Þetta er náttúrlega spurningin um það m. a. hvort einkaframtakið í landinu vill nota bæjarútgerðir til að ganga af einkaframtakinu dauðu. Svo einfalt er þetta mál. Ég vil hvetja hv. 4. þm. Suðurl. til að kynna sér það hvaða fjármunir hafa farið þarna í styrktaraðgerðir í prósentum talið. (Gripið fram í: Hvað hefur Bæjarútgerð Hafnarfjarðar í tekjuhagnað?) Það er fróðlegt fyrir hv. 12. þm. Reykv. og forstjóra DAS í Hafnarfirði að líta yfir höfnina og fylgjast með því hvaða bátafloti einkaframtaksins kemur þar að landi í dag og hugleiða svo hvort Bæjarútgerð Hafnarfjarðar hafi e. t. v. haft áhrif á þróun mála. Það er fróðlegt. Það er, ef ég man rétt, beint skyggni frá skrifstofunni og út á höfnina. Það er hægt að ræða um verðlagningu á sjávarafla út frá ýmsum forsendum. En það er mjög margt sem bendir til þess að stundum hafi það gerst að þeir aðilar sem sitja í Verðlagsráðinu líti dálítið nálægt sér í ákvarðanatökunni. Og það er af þeirri ástæðu sem Vestfirðingar og sjómenn og fiskverkendur við Breiðafjörð hafa sótt það fast að fá fulltrúa þarna inn þegar verðákvörðun er tekin á rækju og skel.