23.05.1985
Sameinað þing: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5605 í B-deild Alþingistíðinda. (4858)
507. mál, þróunaraðstoð Íslands
Steingrímur J. Sigfússon:
Herra forseti. Ég vil fagna þeirri till. sem hér er fram komin og samstaða hefur orðið um í hv. utanrmn. Ég sé sérstaka ástæðu til að gleðjast yfir þeirri samstöðu sem þar hefur náðst og hlýtur að gefa vonir um að í krafti þeirrar samstöðu takist hv. Alþingi og ríkisvaldi á komandi árum að standa við þau markmið sem hér eru gefin fyrirheit um. Ég held að það séu skyldur okkar mannanna við hvert annað sem hér eru fyrst og fremst á ferðinni. Það er mín skoðun, herra forseti, að það sé í raun forsenda árangurs, forsenda friðar, stöðugleika og velferðar í heiminum að aukinn jöfnuður náist í kjörum manna hvar sem þeir búa á hnettinum. Því markmiði verður ekki náð nema breyta að verulegu leyti verðmætaskiptingu heimsins og þeim aðferðum sem notaðar hafa verið við að útdeila verðmætum í krafti nýtingar á sameiginlegum auðlindum jarðarbúa.
Slík þróunaraðstoð á að sjálfsögðu fyrst og fremst að stuðla að því að styðja hverja þjóð til sjálfsbjargar á þeim brautum sem hver og ein þjóð kýs sér, en það gefur þó auga leið að menn ná aldrei nema skammt í því efni að jafna kjör jarðarbúa nema að verulegu leyti verði breytt um hugsunarhátt hvað varðar eignarhald á auðlindum jarðarinnar. Allt of stóran hluta mannkynsins skortir í dag þau grundvallarmannréttindi sem ég tel að komi fyrst og hljóti að koma fyrst allra grundvallarmannréttinda, sem sé aðgang að mat, vatni og húsnæði, svo að ekki sé nú minnst á hluti eins og grundvallarmenntun og læknisþjónustu. Þær þjóðir sem búa við velsæld og eru í bókstaflegri merkingu þess orðs að springa af ýmiss konar efnalegri velsæld og jafnvel offramleiðslu á þeim vörum og þeim gæðum sem aðrar þjóðir vantar, hafa engan siðferðislegan rétt til að halda að sér höndum.
Ég heiti því á hv. Alþingi komandi ára og það Alþingi sem hér situr að standa við þau markmið sem hér eru gefin fyrirheit um og hér eru sett. Okkur er engin vorkunn, Íslendingum, að gera það. Við erum í hópi þeirra þjóða sem búa við hvað mesta velsæld, a. m. k. efnislega velsæld hvað sem um lífshamingjuna er nú sagt, en það gefur auga leið, þó að ekki sé nema litið á þá töflu sem birt er á bls. 2 um þau lönd sem hvað best eru talin hafa það, að þar eru þó nokkur lönd með þjóðartekjur á íbúa talsvert fyrir neðan okkur Íslendinga, sem þó hafa náð miklu lengra á þeirri braut að verja tilskildum hluta til þróunaraðstoðar.
Herra forseti. Ég heiti enn og aftur á alþm. að standa við þessi markmið. Það er að vísu alveg rétt að ekki verða borgaðir margir hlutir með sömu krónunni og þeir fjármunir sem renna til þróunaraðstoðar verða ekki beinlínis notaðir í annað, a. m. k. ekki á því hinu sama ári, en klókir menn hafa nú löngum fundið leiðir til að standa þannig að þróunaraðstoð, a. m. k. að verulegum hluta, að hún sé ekki bein útgjöld fyrir viðkomandi land, heldur aðstoð sem þeir geta með ýmsum hætti látið í té án verulegs beins kostnaðar fyrir sig. Ég held að við Íslendingar höfum þar möguleika ekkert síður en aðrir og getum lagt ýmislegt af mörkum á þeim sviðum þar sem við höfum af að miðla án þess að það kosti okkur mikið í beinhörðum peningum.
Herra forseti. Mér er það mikið metnaðarmál að Alþingi nái að standa við þessa samþykkt sem hér verður vonandi gerð. Ég hef áður lýst eftir því á þessu hv. Alþingi og flutt tillögur um það að eitthvað verði reynt í þessa átt og þegar þær gleðifréttir bárust að utanrmn. væri að vinna að þessu og reyna að ná samstöðu, þá settust menn að sjálfsögðu með krosslagðar hendur og biðu þess og væntu þess að samstaða næðist. Hún hefur nú náðst og í trausti þess lít ég björtum augum til þess að eftir sjö ár getum við Íslendingar loksins borið höfuðið hátt í hópi þjóðanna hvað þetta varðar.