23.05.1985
Sameinað þing: 86. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5611 í B-deild Alþingistíðinda. (4861)

496. mál, stefna Íslendinga í afvopnunarmálum

Kjartan Jóhannsson:

Herra forseti. Ég tel að það sé að ýmsu leyti merkt að þessi þáltill. skuli liggja hér fyrir þinginu. Það er einstakt að ályktað sé með þessum hætti um utanríkismál. Það hefur ekki gerst áður. Verði þessi till. samþykkt munu menn minnast þessa sem ákveðins áfanga. Efnið er að því leytinu einstakt og samstaðan, ef hún helst, er líka einstök.

Vafalaust er margt ósagt í þessari till. en ég held að það sé ekkert ofsagt og í henni er leitast við að lýsa viðhorfum Íslendinga í megindráttum til þessara atriða. Menn kunna að spyrja hvort það sé eitthvað nýtt eða einhver stefnubreyting sem felist í samþykkt þessarar till. Ég tel að það sem sé nýtt megi telja upp í sjö greinum. Tvennt hef ég áður minnst á, í fyrsta lagi það að Alþingi álykti um utanríkismál með þeim hætti sem hér er gert ráð fyrir og í annan stað að allir flokkar standi saman að slíkri ályktun, en allir flokkar standa að flutningi þessarar ályktunartillögu.

Það er líka nýtt að Alþingi árétti með sérstakri samþykkt gildandi stefnu eins og hún hefur birst okkur um það að á Íslandi séu ekki kjarnorkuvopn.

Í fjórða lagi er það nýtt að Alþingi álykti sérstaklega um afvopnunarmál og leggi með þeim hætti sem hér er gert sérstakan þunga á þann málaflokk og áherslu á vilja sinn til þess að að þeim sé unnið.

Í fimmta lagi er það nýtt að Alþingi telji umr. um kjarnorkuvopnalaus svæði á Norðurlöndum þess eðlis og svo mikilvægar að ástæða sé til að fela utanrmn. að fylgjast sérstaklega með þeim og kanna hugsanlega þátttöku okkar í slíkum umr.

Í sjötta lagi er það nýtt að í þessari till. er gert ráð fyrir því að gerð verði sérstök úttekt á afvopnunarmálum, á þeim hugmyndum sem uppi eru í þeim efnum. Í slíkt hafa Íslendingar aldrei áður ráðist og því er þetta líka nýtt og felur í sér ákveðna stefnubreytingu.

Í sjöunda lagi er það nýtt að varpað er fram hugmynd sem ekki hefur verið til umr. hér áður og lítt hefur borið á, ef hún hefur þá verið rædd á alþjóðlegum vettvangi, um að menn skoði Norður-Evrópu alla, frá Úralfjöllum til Grænlandsstranda, frá norðri til Alpafjalla sem kjarnorkuvopnalaust svæði. Þessari hugmynd er varpað fram í þessum tillögutexta.

Menn kynnu að spyrja hvort þessi till. breyti þá einhverju. Hún breytir því að með samþykkt hennar kemur vilji og skoðun Alþingis fram afdráttarlaust. Hingað til hefur vilji og skoðun Alþingis í utanríkismálum einungis komið fram óbeint. Þetta er verklagsbreyting af hálfu Alþingis. Í samþykkt þessarar till. felst veganesti fyrir utanrrh. Það er að sjálfsögðu ekki tekið af honum vald, vald hans og verksvið er óbreytt, en hann hefur hér veganesti og bakhjarl í störfum sínum og að því ætti honum að geta verið styrkur.

Að því er varðar stefnuna, eins og hún hefur birst í framkvæmd af hálfu ríkisstj., þá er um að ræða í þessari till. ýmis ný áhersluatriði en staðfestingu á gildandi stefnu í öðrum atriðum. Í till. er áréttuð sú stefna, sem núverandi og fyrrv. utanrrh. hafa boðað, að á Íslandi verði ekki staðsett kjarnorkuvopn. Með þessu er verið að ítreka það sem áður hefur verið sagt, í fyrsta lagi það að ákvörðun um þetta atriði sé okkar einna að taka og hvorki þessi vopn né annar vopnabúnaður verði hér staðsettur nema með okkar vilja, að okkar ósk eða með okkar samþykki. Stefnan er skýr. Vilji okkar og stefna er sú að á Íslandi verði framhaldið eins og fortíðin, að hér verði ekki kjarnorkuvopn.

Í þessum ályktunarorðum felst því stuðningur Alþingis við þær yfirlýsingar sem áður hafa verið gefnar um þetta atriði. Það gefur vitaskuld þeim yfirlýsingum, sem hafa verið gefnar, aukinn þunga. En það er nýtt að Alþingi lýsi þannig þessari skoðun sinni og það hlýtur að vera hverjum utanrrh. styrkur að fá stuðning allra flokka við stefnuna.

Þessi ályktun fjallar að meginhluta um afvopnunarmál. Þetta mál er ofarlega á baugi og það tengist hugmyndum okkar um það hvernig eigi að tryggja frið í heiminum. Það hefur vissulega ríkt friður í okkar heimshluta en það hefur líka ríkt ógnarjafnvægi, eða, ef menn vilja orða það svo, gagnkvæm fæling. Hvort friður hafi ríkt vegna ógnarjafnvægisins eða af öðrum orsökum verður seint sannað eða afsannað og við skulum ekki afneita því að svo kunni að vera. Svo mikið er víst að jafnvægi er líklegt til að koma í veg fyrir ófrið. Þess vegna eru jafnvægi og gagnkvæmni lykilatriði, grundvallaratriði, sem aldrei mega gleymast og allar gerðir verða að byggjast á. Áhættan, sem fylgir því að kasta þessum atriðum tveim fyrir róða, er of stór til þess að vitrænt sé að gera það. Þess vegna eru líka þessi atriði, um gagnkvæmni og jafnvægi, rauður þráður þessarar ályktunar að því er varðar vígbúnað og átök. Hér er sem sagt öryggið sett í öndvegið.

Í annan stað er ekki gagn í því samkomulagi sem menn geta ekki treyst og trúað á að verði haldið. Þess vegna er í þessari ályktun lögð áhersla á að hvert það samkomulag sem gert er sé undir öruggu eftirliti og þannig frá því gengið að málsaðilar geti unað því og treyst. Hér er enn og aftur öryggið sett í öndvegið.

Eins og áður er þetta gert í ljósi þess að ætíð og ævinlega er markmið aðeins eitt: nefnilega að þessi ógnarvopn verði aldrei notuð — af engum og hvergi. Hin hlið málsins er sú að jafnvel þótt ógnarjafnvæginu megi þakka friðinn er ljóst að að leita verður nýrra leiða. Það sem kann að hafa gilt í hinu liðna þarf ekki endilega að gilda til frambúðar. Í annan stað er áhættan af slysi við þessar aðstæður, slysi sem yrði fyrir mannleg mistök eða tæknileg, misskilning, örvæntingu eða ofstopa eða af hugsanabrenglun. Svo yfirþyrmandi er þessi áhætta að hún ein hlýtur að fela í sér bón um að fundnar séu aðrar leiðir til að tryggja friðinn.

Í þriðja lagi hefur ógnarjafnvægið, hin gagnkvæma fæling, birst okkur sem kapphlaup þar sem hvorugur aðili fær nokkru sinni fylli sína. Þótt eyða megi mannkyni öllu mörgum sinnum þarf að þeirra dómi sífellt við að bæta í vopnabúrin. Í þetta fara stórkostlegar fjárhæðir ár hvert, sívaxandi, á sama tíma og tugir milljóna manna deyja úr hungri og sjúkdómum. Þessi vítahringur viljum við að rofinn verði. Það felst í þessari ályktun að komið sé meira en nóg og stefnan eigi að vera að draga úr en ekki að auka við. Sá vilji kemur skýrt fram í ályktuninni og jafnframt með hvaða hætti þetta skuli gert. Það kemur fram í fyrstu fjórum mgr. ályktunarinnar.

Undirrót þessa kapphlaups, undirrót þessa ógnarjafnvægis er tortryggnin í heiminum og einkum og sér í lagi tortryggnin milli stórveldanna. Þess vegna er líka, eins og fram kemur í 5. mgr., lögð áhersla á það atriði og nauðsyn þess, að ætíð og hvarvetna leggi Íslendingar því lið að þessari tortryggni verði eytt og þar með undirrótinni sjálfri.

Ég sagði í upphafi að í þessari ályktun, eins og hún liggur hér fyrir, væri jafnframt varpað fram nýrri hugmynd um kjarnorkuvopnalaust svæði í Norður-Evrópu og að kanna eigi grundvöllinn fyrir þeirri hugmynd og leita eftir samstöðu um hana. Þessi hugmynd er ný og hún kann að þykja djörf. En ég tel að hún sé eðlileg miðað við þá umræðu sem átt hefur sér stað um kjarnorkuvopnalaus svæði í Evrópu. Ef undirtektir fengjust væri hér um stórkostlegan áfanga að ræða.

Í umræðum um kjarnorkuvopnalaus svæði hingað til hafa menn rætt annars vegar um rein eða belti frá norðri til suðurs í Evrópu og hins vegar um svæði á Balkanskaga og Norðurlöndum sérstaklega. En hér er tekinn nýr póll í hæðina. Hér er í rauninni á ferðinni hugmynd að nýju tilboði til stórveldanna, tilboði sem felur í sér að slík ákvörðun væri liður í víðtækara samkomulagi til að draga úr vígbúnaði og minnka spennu. Um fyrirkomulag að öðru leyti er einsýnt að þau sjónarmið um gagnkvæmni og jafnvægi, sem ég hef áður vikið að, hljóta að ráða þar ferðinni og vera forsenda fyrir gagnlegu samkomulagi.

Með þessa hugmynd í veganesti er einsýnt að hyggja sérstaklega að þeirri umr. sem í gangi er á Norðurlöndum um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Það er í framhaldi af þessari hugmynd sem Alþingi felur utanrmn. að kanna í samráði við utanrrh. hugsanlega þátttöku Íslands í frekari umræðu um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Það er brýnt og það er rétt að það sé gert. Þessi hugmynd mundi vera falin að öðru leyti í hendur utanrrh. til framkvæmdar og umfjöllunar ef þáltill. yrði samþykkt.

Herra forseti. Eftir þá ítarlegu ræðu, sem hv. formaður utanrmn. flutti hér áðan, sé ég ekki ástæðu til þess að fara að öðru leyti nánar ofan í einstakar mgr. þessarar þáltill. En ég læt að lokum í ljós ánægju með þá samstöðu milli flokka sem birtist í sameiginlegum tillöguflutningi af þessu tagi. Ég læt í ljós ánægju með það raunsæi sem birtist í efni till. og með þann einlæga vilja til þess að takmarka framleiðslu kjarnorkuvopna, stuðla að afvopnun og veita fé til fátækari þjóða heims, sem felst í efni Íill. Ég vona að Alþingi samþykki þessa till. Það hlyti að teljast merkur áfangi við að efla samstöðu milli flokka á Íslandi um málaflokk sem oft hefur verið mikið bitbein en sem nauðsyn er að sem ríkust samstaða sé um, þar sem eru utanríkismál þjóðarinnar.