23.05.1985
Neðri deild: 75. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5634 í B-deild Alþingistíðinda. (4897)

363. mál, lagmetisiðnaður

Frsm. (Páll Pétursson):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir áliti iðnn. Nd. Hér er um að ræða þriggja ára framlengingu á lögum sem gilt hafa. Iðnn. hefur athugað þetta frv. og mælir með samþykkt þess. Undir þetta rita Páll Pétursson, Hjörleifur Guttormsson, Guðrún Agnarsdóttir, Friðrik Sophusson, Ingvar Gíslason og Gunnar G. Schram.