24.05.1985
Efri deild: 81. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5654 í B-deild Alþingistíðinda. (4914)
487. mál, þörungavinnsla við Breiðafjörð
Frsm. (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Hæstv. forseti. Iðnn. hefur fjallað um þetta mál og leggur til að frv. þetta verði samþykki. Einn nm. var fjarstaddur atkvgr. þar sem hann var erlendis þann dag sem málið var afgreitt, þ. e. hv. þm. Stefán Benediktsson.
Þetta frv. fjallar um það að lögum um þörungavinnslu við Breiðafjörð verði breytt þannig að ríkisstj. verði veitt heimild til þess að semja við hlutafélag sem aðilar í Austur-Barðastrandarsýslu hafi forgöngu um að stofnað verði um að það kaupi eða leigi eignir Þörungavinnslunnar hf. Í þessu felst að gert er ráð fyrir að yfirfæra rekstur þörungaverksmiðjunnar til heimaaðila. Sá kostur er talinn álitlegastur nú til þess að mæta þeim vanda sem þörungaverksmiðjan er í. Var rækilega gerð grein fyrir því hér við 1. umr. málsins.
Það er gert ráð fyrir því að aukin ábyrgð heimamanna sé árangursríkust til framkvæmda og það sé besta leiðin til að fylgja eftir þeim breytingum á rekstri fyrirtækisins sem nauðsynlegar eru til þess að fyrirtækið geti skilað arði. Með þessum hætti er líka gert ráð fyrir að best verði stuðlað að eflingu byggðar í Austur-Barðastrandarsýslu, en einmitt það var eitt af meginmarkmiðum með þátttöku ríkisins í rekstri þörungaverksmiðjunnar frá upphafi.
Þessa dagana eru heimamenn að vinna að undirbúningi að stofnun nýs fyrirtækis. Þeim undirbúningi er það langt komið að auglýstur hefur verið stofnfundur nýs fyrirtækis sem verður haldinn að Reykhólum n. k. mánudag. Það er mikill áhugi hjá heimamönnum um þetta mál. Það lýsir því hve þessi byggð á mikið undir því að tryggður sé rekstur þörungaverksmiðjunnar til frambúðar.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um málið en ítreka það sem ég sagði í upphafi að iðnn. leggur til að frv. verði samþykkt.