24.05.1985
Efri deild: 81. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5659 í B-deild Alþingistíðinda. (4927)
397. mál, veitinga- og gististaðir
Frsm. (Jón Kristjánsson):
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti samgn. um frv. til laga um veitinga- og gististaði. Nefndin hefur rætt málið og fengið til viðtals Lúðvík Hjálmtýsson fyrrverandi ferðamálastjóra og Ragnhildi Hjaltadóttur frá samgrn. Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með brtt. sem hún flytur á þskj. 986.
Í þessu frv. er þungamiðjan ákvæði um leyfisveitingar til veitinga- og gistihúsarekstrar og flokkun veitinga- og gististaða. Nefndin varð sammála um að leggja til að ráðh. sé heimilt að setja í reglugerð ákvæði um menntun starfsfólks veitinga- og gististaða og binda leyfið skv. lögum þessum skilyrðum er að því lúta.
Hér er einkum átt við menntunarkröfur t. d. matreiðslu- og framreiðslufólks. Nefndin var sammála um að orðið hótel væri skýrara en gistihús um fyrsta flokks gisti- og veitingastað sem veitir alla þjónustu. Orðið hótel er orðið fast í íslensku máli og fellur að öllum beygingum þess og að sögn lögfróðra manna er ekkert því til fyrirstöðu að nota það í lagatexta.
Við 15. gr. flytur nefndin eftirfarandi brtt.: „Fyrri málsgr. orðist svo: Brot gegn lögum þessum og reglugerðum settum með heimild í þeim varða sektum nema þyngri refsing liggi við skv. lögum.“
Hér er sú ein breyting gerð að ráð er fyrir gert að brot á reglugerðum settum með heimild í lögunum varði einnig sektum. Það skal tekið fram að nefndin lítur svo á að ákvæði laga þessara um búnað á gistiheimilum eigi ekki við um gistiheimili sem frágengin voru fyrir gildistöku laga þessara.
Ég sé ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta mál frekar. Nefndin varð sammála um afgreiðslu þess með þeim brtt. sem gerð hefur verið grein fyrir og leggur til að frv. verði samþykkt svo breytt.