28.05.1985
Sameinað þing: 87. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5669 í B-deild Alþingistíðinda. (4935)
Varamenn taka þingsæti - rannsókn kjörbréfs
Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):
Svohljóðandi bréf hefur borist:
„Reykjavík, 28. maí 1985.
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, 11. þm. Reykv., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Samtaka um kvennalista, Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Salome Þorkelsdóttir,
forseti Ed.“
Kristín Ástgeirsdóttir hefur átt sæti áður á þessu þingi og býð ég hana velkomna til starfa á ný.
Þá liggur fyrir annað bréf svohljóðandi:
„Reykjavík, 38. maí 1985.
Halldór Ásgrímsson, 1. þm. Austurl., hefur ritað mér á þessa leið:
„Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Framsfl. í Austurlandskjördæmi, Guðrún Tryggvadóttir meinatæknir, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.“
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti, með ósk um að fram fari í Sþ. rannsókn á kjörbréfi varamanns.
Ingvar Gíslason,
forseti Nd.“
Hér fylgir með kjörbréf Guðrúnar Tryggvadóttur. Þar sem Guðrún Tryggvadóttir hefur ekki tekið sæti á Alþingi áður á þessu kjörtímabili þarf að rannsaka kjörbréf hennar. Vil ég biðja hv. kjörbréfanefnd að annast það verk að venju og skv. þinglegri skyldu. Á meðan verður fundinum frestað í fimm mínútur. Fundinum er frestað. — [Fundarhlé.]