28.05.1985
Sameinað þing: 88. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 5679 í B-deild Alþingistíðinda. (4954)
417. mál, sjónvarpsefni frá fjarskiptahnöttum
Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Í þessari þáltill. er hreyft málefni sem menn hafa bundið miklar vonir við og hér hefur verið rætt um allnokkurt skeið. Það hefur verið rætt um það hér á Alþingi líka í vetur að gera ráðstafanir til að nýta dreifikerfi íslenska sjónvarpsins þann tíma sólarhrings sem það er ekki notað til þess að dreifa hugsanlega erlendu sjónvarpsefni frá gervihnöttum
Þetta mál er nú til athugunar hjá Ríkisútvarpinu. En í janúar s. l. beindi ég því formlega til Ríkisútvarpsins að gera ráðstafanir til að kanna þetta mál sérstaklega, bæði að því er varðar norrænt sjónvarp og eins sjónvarp frá öðrum Evrópulöndum. Þetta hefur verið gert. Niðurstaða þessarar athugunar liggur ekki fyrir, en unnið hefur verið að málinu. Bæði hefur útvarpsstjóri unnið að því í félagi við aðra útvarpsstjóra og einnig Pétur Guðfinnsson framkvæmdastjóri sjónvarps. Ég á von á því að hv. 5. landsk. þm., sem hér talaði, hafi tekið þátt í umræðum um þetta mál í útvarpsráði. Sú hugmynd, sem rætt er um í sjálfri þáltill., er því til athugunar og hefur verið það í nokkra mánuði einmitt með það fyrir augum sem í till. er nefnt.
Hitt er svo annað mál að auðvitað er ljóst að í framtíðinni hlýtur að koma að því, og kannske fyrr en okkur varir, að möguleikar verði til þess að dreifa sjónvarpsefni frá erlendum fjarskiptahnöttum og erlendum sjónvarpshnöttum með öðrum hætti en í gegnum íslenska ríkisútvarpið og þá m. a. með þeim hætti sem hv. 5. landsk. þm. nefndi hér. Það er alveg rétt að vitanlega þarf sú starfsemi sem felst í útvarpi og sjónvarpi um kapalkerfi sem og um annað kerfi að lúta tilteknum lögum og reglum. Það hefur átt sér stað á þó nokkrum stöðum á landinu í mörg ár að kapalkerfi hafi verið starfræki án slíkra laga. Það er algerlega ljóst að við slíkt getum við ekki búið og þessu verður að breyta. Það er hins vegar hægt að gera það með fleiri aðferðum en þeirri að taka tillögur Alþfl. í heilu lagi og fella þær inn í útvarpslagafrv. Einmitt þetta mál. starfræksla kapalkerfa eða starfræksla boðveitna, er til meðferðar nú hjá samgrn. og hæstv. samgrh. lýsti því yfir í svari við fsp. hér á Alþingi nú í vetur, í febrúar má ég segja, hver hans afstaða væri í slíkum málum. Hæstv. samgrh. lýsti því yfir, að hann teldi að slík kerfi þyrftu. a. m. k. að sinni, að vera í opinberri eigu. Ljóst er, hvernig sem því verður hagað, að gera verður breytingu á fjarskiptalögum til þess. Það er alsiða og hefur oft gerst hér á Alþingi að tilteknum lögum er breytt með bráðabirgðaákvæði í frv. um allt annað efni. Það er hins vegar ekki skynsamleg og heppileg aðferð. Það er ekki aðgengilegt fyrir fólk að fletta upp atriðum við skulum segja um síma í lögum um útvarp. Um fjarskipti eiga að vera ákvæði í lögum um fjarskipti. Ég hef orð hæstv. samgrh. fyrir því að það sé vilji fyrir þessu. Að því er verið að vinna. Ég tel að þar með verði því náð sem menn eru hér að ræða um.
Hitt er svo annað mál að það er spurning um tíma. hve lengi við verðum háð köplunum í þeim skilningi sem við höfum um þá talað til þessa. Öll þessi mál verða æ einfaldari með hverju árinu sem líður.
Ég vildi, herra forseti, einungis gera grein fyrir því að einmitt þetta atriði, sem hér er vikið að, er nú til umfjöllunar og meðferðar. Vinnan að þessu máli er í fullum gangi með hliðsjón af ýmsum þeim atriðum sem nefnd eru í grg. með þáltill. Ég minnist þess að í vetur, þegar spurt var um sams konar hugmynd í sambandi við norski sjónvarp, komu fram í umr. raddir hv. þm. sem töldu það mikið brot gegn íslenskri menningarpólitík að nýta dreifikerfi íslenska sjónvarpsins í þessu skyni. Það gerði einmitt hv. 5. landsk. þm. sem nú mælir eindregið með þessari till. sem einmitt fjallar um það að nýta dreifikerfi íslenska sjónvarpsins. Að sjálfsögðu er ekki átt við annað með því en að nýta þennan möguleika til þess að gera þessa tilraun, að opna landið fyrir þessum möguleika og gefa um leið íslenska sjónvarpinu tækifæri til að taka t. d. skyndilega við fréttum beint frá evrópskri sjónvarpsstöð. Það gæti óneitanlega verið til tilbreytingar, upplífgandi og fróðlegt í íslenska sjónvarpinu. En það yrði auðvitað aldrei grundvallarstefna. Þetta væri fyrst og fremst til þess að greiða fyrir slíkri tilraun. Slík starfsemi yrði svo að öllum líkindum á vegum annarra er frá liði.
Herra forseti. Ég vonast til þess að þær umr. sem fram fara um þessi mál verði til þess að opna augu æ fleiri manna fyrir því að það sé skynsamlegt frá öllum sjónarmiðum að leggja af þá einangrunarstefnu sem við höfum haft í menningarefnum, að opna augun fyrir því sem fram fer í kringum okkur, gera kleift að velja á milli jafnframt því sem við eflum og styrkjum íslenska menningarstefnu og stuðlum að því að hún verði sem best rekin í íslensku sjónvarpi og útvarpi, bæði á vegum ríkisins og annarra aðila. Til þess þurfum við að samþykkja sem fyrst þau lög sem væntanlega verða til hér fljótlega þegar hv. Ed. hefur þóknast að samþykkja útvarpslagafrv.